Nations Bible

Marcos 4

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Jesús kennir mannfjöldanum

1Seinna, þegar mikill fjöldi hafði safnast að honum á strönd Galíleuvatnsins, fór hann út í bát og talaði þaðan til fólksins. 2Hann var vanur að kenna fólkinu í dæmisögum og hér er ein þeirra: 3„Takið eftir! Bóndi nokkur fór út á akur að sá korni. 4Er hann sáði féll sumt af sáðkorninu á götuna og fuglarnir komu og átu það upp. 5Sumt féll í grýtta jörð, þar sem jarðvegur var grunnur. Það korn spratt fljótt, en skrælnaði fyrr en varði í hitanum og dó, því það hafði nær engar rætur. 7Annað lenti meðal þyrna sem uxu yfir það og kæfðu það.

8En sumt af útsæðinu féll í góða jörð og gaf af sér þrítugfalda, sextugfalda eða jafnvel hundraðfalda uppskeru. 9Sá sem hefur eyru til að heyra, taki eftir þessu.“

10Þegar Jesús var orðinn einn með lærisveinunum spurðu þeir hann: „Hvað þýðir sagan sem þú sagðir áðan?“

11Jesús svaraði: „Þið fáið að læra margt um guðsríkið, sem hulið er þeim er utan við það standa. Jesaja spámaður sagði: „Þótt þeir sjái og heyri, skilja þeir ekki, né snúa sér til Guðs til þess að fá syndir sínar fyrirgefnar.“ 13Hvernig fer um allar hinar dæmisögurnar, ef þið skiljið ekki þessa einföldu sögu.

14Bóndinn, sem ég sagði ykkur frá, er sá sem flytur öðrum boðskap Guðs. Hann reynir að sá góðu sæði í hjörtu fólksins. 15Troðni stígurinn, þar sem sumt af korninu féll, lýsir hörðum hjörtum, sem heyra orð Guðs, en Satan kemur þegar í stað og reynir að fá þau til að gleyma því. 16Grýtti jarðvegurinn lýsir hjörtum þeirra sem hlusta með ánægju, 17en það fer fyrir þeim eins og fyrir ungum plöntum í slíkum jarðvegi, ræturnar ná ekki djúpt og þó allt gangi vel í byrjun, þá visna þær – þeir gefast upp jafnskjótt og andstaða og erfiðleikar byrja.

18Þyrnarnir lýsa hjörtum þeirra sem hlusta á gleðitíðindin og taka við þeim. 19En fyrr en varir hefur athygli þeirra beinst að því sem heimurinn hefur að bjóða og að táli auðæfanna. Löngun í metorð og alls kyns gæði gagntekur hug þeirra, svo þar verður ekkert rúm fyrir orð Guðs. Afleiðingin verður sú að fræið ber engan þroskaðan ávöxt.

20Góði jarðvegurinn táknar hjörtu þeirra sem í sannleika hlusta á Guðs orð og taka við því heils hugar og bera ríkulegan ávöxt – þrjátíu, sextíu eða jafnvel hundrað sinnum meira en upphaflega var sáð til í hjörtu þeirra.“

21Jesús sagði við lærisveinana: „Á að byrgja ljósið, þegar kveikt hefur verið á lampanum eða setja hann undir bekk? Nei, auðvitað ekki, því þá kæmi ljósið að engum notum! Lampinn er látinn á góðan stað til að lýsa sem best.

22Dag einn mun allt sem nú er hulið koma í ljós. 23Hlustið, þið sem eyru hafið! 24Gætið þess um fram allt að gera eins og ég segi ykkur, leggið ykkur fram við að skilja orð mín. 25Þeim sem hefur, mun verða gefið, en frá þeim sem ekkert á, mun jafnvel verða tekið það sem hann hefur.

26Hér er önnur líking um guðsríki: Bóndi sáði í akur sinn. 27Tíminn leið og kornið óx dag og nótt án þess að maðurinn hjálpaði þar nokkuð til. 28Moldin gaf vöxtinn. Fyrst skutu kímblöðin upp kollinum og síðar mynduðust öxin á kornstönglunum og að lokum þroskaðist kornið. 29Þá kom bóndinn með sigðina og skar kornið.“

30Síðan spurði Jesús: „Hverju líkist guðsríki? Hvaða dæmisögu eigum við að nota til að lýsa því? 31Það er eins og örlítið sinnepsfræ! Þótt þetta fræ sé minnsta allra frækorna, þá vex upp af því jurt sem verður öllum jurtum stærri og ber langar greinar þar sem fuglarnir geta byggt hreiður sín og leitað skjóls.“

33Þannig fræddi Jesús fólkið með dæmisögum sem voru í samræmi við skilning þess, 34dæmisögulaust talaði hann ekki til þess. Þegar hann var orðinn einn með lærisveinum sínum eftir slíkar stundir, útskýrði hann dæmisögurnar fyrir þeim.

35Þegar kvöldaði sagði Jesús við lærisveinana: „Við skulum fara yfir vatnið.“ 36Þá yfirgáfu þeir fólkið á ströndinni og lögðu af stað. Nokkrir bátar fylgdu á eftir þeim. 37Skyndilega gerði mikið rok og gaf mjög á bátinn, svo við lá að hann fyllti.

38Jesús svaf í skutnum og hafði kodda undir höfðinu. Lærisveinarnir vöktu hann skelfingu lostnir og hrópuðu: „Meistari, sérðu ekki að við erum að farast?“

39Þá hastaði Jesús á vindinn og sagði við vatnið: „Hafðu hægt um þig.“ Þá lygndi og allt varð kyrrt og hljótt!

40Síðan sneri hann sér að þeim og spurði: „Hvers vegna voruð þið svona hræddir? Hafið þið ekki enn lært að treysta mér?“

41Hræddir, en fullir lotningar, sögðu þeir hver við annan: „Hver er þessi maður? Bæði vindur og vatn hlýða honum.“

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Parábolas do reino à beira do mar

  • Marcos 4 começa com Jesus ensinando uma grande multidão a partir de um barco no mar e termina com uma violenta tempestade de vento sobre essa água. Uma cronologia do episódio data essas parábolas à beira-mar e o milagre em um único dia no ano 28 d.C.Fontes: o próprio texto bíblico · Seaside Parables and Miracle
  • Ao explicar o semeador, Jesus diz que Satanás vem e tira a palavra semeada à beira do caminho. O nome Satanás significa adversário ou acusador e, no Novo Testamento, é usado de modo intercambiável com o diabo mais de trinta vezes.Fontes: o próprio texto bíblico · Satan
  • Jesus diz que o reino de Deus é como a semente que brota e cresce enquanto o semeador dorme e acorda, embora ele não saiba como: a terra produz a colheita por si mesma, primeiro o talo, depois a espiga, então o grão que amadurece. Ele também o compara a um grão de mostarda, a menor de todas as sementes semeadas na terra, que se torna a maior de todas as plantas da horta, com as aves fazendo ninho à sua sombra. Ele não dizia nada às multidões sem uma parábola, mas em particular explicava tudo aos seus próprios discípulos.Fontes: o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.