Nations Bible

Marcos 2

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

1Nokkrum dögum síðar sneri Jesús aftur til Kapernaum og fyrr en varði vissu bæjarbúar að hann var kominn heim.

2Á skammri stundu var húsið sem hann dvaldist í orðið svo þéttsetið að fleiri komust ekki þangað inn og meira að segja þröng úti fyrir. Þarna flutti hann orð Guðs.

3Þá komu þar menn sem báru lamaðan mann á börum á milli sín. 4Þeir komust ekki að Jesú vegna mannfjöldans og rufu því gat á leirþakið og létu börurnar með veika manninum síga niður til Jesú.

5Þegar Jesús sá trú þeirra – hversu sannfærðir þeir voru um að hann gæti hjálpað – sagði hann við lamaða manninn: „Sonur minn, syndir þínar eru fyrirgefnar!“

6Nokkrir trúarleiðtogar þjóðarinnar urðu vitni að þessum atburði og hugsuðu með sér: 7„Hvað er að heyra? Þetta er guðlast! Hann heldur þó ekki að hann sé Guð? Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?“

8Jesús las hugsanir þeirra og sagði: „Hvers vegna hugsið þið svona? 9Er nokkuð erfiðara að fyrirgefa syndir hans en að lækna hann? 10Ég skal sanna ykkur að ég, maðurinn frá himnum, hef fyrirgefið honum syndir hans.“ 11Síðan sneri hann sér að lamaða manninum og sagði: „Taktu börurnar og farðu heim. Þú ert heilbrigður.“

12Maðurinn spratt á fætur, tók börurnar og ruddi sér leið gegnum mannfjöldann, sem var agndofa af undrun. Og fólkið tók að lofa Guð og hrópa: „Við höfum aldrei séð neitt þessu líkt.“

13Eftir þetta gekk Jesús niður að vatninu og talaði við mannfjöldann sem þar safnaðist að honum. 14Á leið sinni fram hjá skattstofunni sá hann Leví Alfeusson sitja þar. „Komdu og vertu lærisveinn minn.“ sagði Jesús við hann. Þá stóð Leví upp og fylgdi honum.

15Um kvöldið bauð Leví vinnufélögum sínum á skattstofunni og mörgum sem illt orð fór af, til kvöldverðar, svo þeir gætu hitt Jesú og lærisveina hans. (Í þeim fjölda sem fylgdi Jesú höfðu ekki heldur allir gott orð á sér.) 16Þegar trúarleiðtogar fólksins sáu hann matast með þessum mönnum, sögðu þeir við lærisveina hans: „Hvernig í ósköpunum getur hann fengið af sér að borða með þvílíkum ruslaralýð?“

17Þegar Jesús heyrði þetta, sagði hann við þá: „Veikir þurfa lækni en heilbrigðir ekki! Ég kom ekki til að hvetja hina „góðu“ til að iðrast synda sinna, heldur þá sem vondir eru.“

Mannssonurinn

18Nú stóð yfir fasta hjá lærisveinum Jóhannesar og faríseunum (en þá neyttu þeir ekki matar af trúarástæðum). Menn komu þá til Jesú og sögðu við hann: „Af hverju fasta þínir lærisveinar ekki eins og hinir?“

19Jesús svaraði og sagði: „Hvað gera vinir brúðgumans? Hafna þeir kræsingunum í brúðkaupsveislu hans, og eiga þeir að vera daprir í bragði meðan hann er hjá þeim? Nei!

20En sá dagur kemur að hann verður tekinn frá þeim og þá munu þeir fasta. 21Hver bætir gamla flík með bót sem á eftir að hlaupa? Hvað mundi þá gerast? Bótin mundi hlaupa í fyrsta þvotti og rifna frá og gatið verða ennþá stærra en áður. 22Þið vitið að ekki má setja nýtt vín í gamla skinnbelgi, þá rifna þeir, vínið fer allt niður og belgirnir eyðileggjast. Nýtt vín er sett á nýja belgi.“

23Seinna – á helgidegi var Jesús ásamt lærisveinum sínum á gangi yfir akur. Lærisveinarnir brutu þá öx af stráunum og átu úr þeim kornið.

24Þá sögðu farísearnir við Jesú: „Þetta mega þeir ekki gera! Það er lagabrot að uppskera korn á helgidegi.“

25En hann sagði við þá: „Hafið þið aldrei heyrt hvað Davíð gerði þegar hann og menn hans hungraði? Þeir fóru inn í helgidóm Guðs – það var þegar Abíatar var æðsti prestur – og átu brauðið sem ætlað var prestunum. Það var einnig lagabrot. 27Helgidagurinn varð til mannsins vegna en ekki maðurinn vegna helgidagsins. 28Ég, Kristur, hef vald til að ákveða hvað menn mega gera á helgidögum.“

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Perdão, um cobrador de impostos e o sábado

  • Cafarnaum, a “cidade de Naum”, era uma cidade da Galileia que não é mencionada no Antigo Testamento. O dicionário bíblico de Easton (1897) diz que, depois de Jesus ser expulso de Nazaré, ela se tornou a “sua própria cidade”, o que combina com o relato de Marcos de que o povo soube que ele estava em casa e encheu a casa até não haver lugar nem fora da porta. Quatro homens então destelharam o telhado, abriram uma passagem e desceram um paralítico em sua maca.Fontes: Capernaum · o próprio texto bíblico
  • O homem na coletoria era Levi, filho de Alfeu, cobrador de impostos em Cafarnaum. O dicionário bíblico de Easton (1897) diz que ele era conhecido como Levi e adotou o nome Mateus — um nome judeu comum depois do Exílio, que significa “dom de Deus” — possivelmente em grata lembrança do seu chamado. No mesmo dia, segundo o dicionário, ele ofereceu um grande banquete de despedida para Jesus e seus discípulos, e provavelmente para muitos antigos companheiros, o encontro que Marcos descreve com cobradores de impostos e pecadores.Fontes: Matthew · Alphaeus · o próprio texto bíblico
  • Questionado porque seus discípulos colhiam espigas no sábado, Jesus falou de Davi entrando na casa de Deus e comendo os pães consagrados, lícitos apenas para os sacerdotes, “durante o sumo sacerdócio de Abiatar”, e compartilhando-os com seus companheiros famintos. O dicionário bíblico de Easton (1897) identifica Abiatar como filho do sumo sacerdote Aimeleque, que escapou quando seu pai e os sacerdotes de Nobe foram mortos, levou o éfode e se juntou a Davi na caverna de Adulão.Fontes: Abiathar · o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.