Mateus 6
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
Þóknist Guði með góðverkum ykkar
1Gætið þess að vinna ekki góðverk til þess eins að fá hrós hjá mönnum, því að þá farið þið á mis við launin frá föður ykkar á himnum. 2Látið ekki á því bera, eins og hræsnararnir gera, ef þið gefið einhverjum eitthvað. Þeir láta blása í lúður fyrir sig í samkomuhúsunum og á götuhornunum til þess að fá hrós fyrir góðverk sín! Ég segi ykkur satt: Þeir hafa þegar fengið laun sín.
3Gætið þess að ekki beri mikið á því þegar þið réttið einhverjum hjálparhönd. Segið vinstri hendinni ekki hvað sú hægri gerir! 4Faðir ykkar á himnum veit leyndarmálið og mun launa ykkur.
Um bænina
5Verið ekki eins og hræsnararnir þegar þið biðjið. Þeir biðja á áberandi hátt á götuhornum og í samkomuhúsunum, þar sem allir sjá þá. Ég segi ykkur satt. Allt og sumt sem þeir fá fyrir þetta er athygli annarra! 6Vertu í einrúmi þegar þú biður. Lokaðu dyrunum og bið til föður þíns þannig að enginn viti. Faðir þinn, sem þekkir leyndar hugsanir þínar, mun bænheyra þig. 7Þyljið ekki bænir ykkar í belg og biðu eins og heiðingjarnir. Þeir halda að bænin verði heyrð ef hún er nógu löng og fagurlega orðuð. Minnist þess að faðir ykkar veit nákvæmlega hvers þið þarfnist, jafnvel áður en þið biðjið. 9Biðjið þannig:
„Kæri Faðir, þú sem ert á himnum, helgist þitt nafn. 10Komi ríki þitt. Verði þinn vilji á jörðu eins og á himnum. 11Gefðu okkur fæðu í dag eins og aðra daga. 12Fyrirgefðu okkur syndirnar, eins og við fyrirgefum þeim sem syndga gegn okkur. 13Leiddu okkur ekki í þyngri prófraunir en þær sem við fáum staðist og frelsaðu okkur frá illu. Amen.“ 14Faðirinn á himnum mun fyrirgefa ykkur ef þið fyrirgefið þeim sem hafa brotið gegn ykkur, en ef þið fyrirgefið þeim ekki, mun hann ekki heldur fyrirgefa ykkur.
Nokkur orð um föstu
16Fastið ekki þannig að á því beri eins og hræsnararnir. Þeir reyna að sýnast aðframkomnir, svo að fólk finni til með þeim en það eru einu launin sem þeir fá. 17Verið heldur vel til fara, hreinir og snyrtilegir, 18svo að engan gruni að þið séuð hungraðir. Faðir ykkar á himnum veit leyndarmálið og hann mun launa ykkur.
19Safnið ekki auðæfum á jörðu, því að þar eyðast þau og þeim kynni að verða stolið. 20Safnið heldur verðmætum á himnum! Þar munu þau aldrei rýrna og þar stafar engin hætta af þjófum. 21Séu auðæfi þín á himnum, mun einnig hugur þinn og hjarta vera þar, því að hugurinn er bundinn við það sem þér finnst verðmætast.
Innra ljós
22Augað er lampi líkamans. Ef augu þín eru heilbrigð, þá verður allur líkami þinn bjartur. En ef þau eru sjúk, þá verður allur líkaminn dimmur. 23Ef nú ljósið í þér er myrkur, hvílíkt verður þá myrkrið.
24Ekki er hægt að þjóna tveimur guðum, því að þið munuð hata annan en elska hinn. Enginn getur þjónað bæði Guði og peningum.
Hafið ekki áhyggjur
25Ráðlegging mín er þessi: Hafið engar áhyggjur af mat, drykk, fatnaði eða því um líku. Þið eigið nú þegar líf og líkama, og það er miklu dýrmætara en fæðan og fatnaðurinn. 26Takið eftir fuglunum. Þeir hafa ekki áhyggjur af því hvað þeir eiga að borða, þeir þurfa hvorki að sá né uppskera né safna í forðabúr, því að faðir ykkar á himnum sér fyrir þeim. Þið eruð miklu dýrmætari en fuglarnir, í hans augum. 27Haldið þið ef til vill að áhyggjurnar lengi lífið?
28Hvers vegna hafið þið áhyggjur af fatnaði? Virðið fyrir ykkur blómin sem vaxa á jörðinni. Þau kvíða engu. 29Salómon, í allri sinni dýrð var þó ekki klæddur slíku skarti sem þau! 30Skyldi Guð ekki miklu fremur vilja annast ykkur fyrst honum er svona umhugað um blómin, sem standa í dag en eru fallin á morgun! Æ, þið lítiltrúaðir! 31Hafið því engar áhyggjur af fæðu eða fötum! Verið ekki eins og heiðingjarnir sem hugsa ekki um annað. Ykkar himneski faðir veit vel að þið þarfnist alls þessa.
33Sækist fyrst eftir að tilheyra honum og gera vilja hans, þá mun allt þetta veitast ykkur að auki.
34Kvíðið ekki morgundeginum því hann er einnig í hendi Guðs. Lifið einn dag í senn.

Você sabia?
Justiça em segredo e confiança
- Este capítulo faz parte do Sermão do Monte. Um registro de eventos data esse sermão de 28 d.C. e registra que durou um único dia.Fontes: Sermon on the Mount · o próprio texto bíblico
- Jesus diz para não tocar trombeta nas sinagogas e nas ruas ao dar aos necessitados, como fazem os hipócritas a fim de serem honrados. Ele também adverte contra orar nas esquinas para ser visto e contra jejuar com o rosto desfigurado; em vez disso, descreve orar num quarto interior com a porta fechada e jejuar com a cabeça ungida e o rosto lavado.Fontes: o próprio texto bíblico
- Jesus diz que nem Salomão, em toda a sua glória, se adornou como um dos lírios do campo. Um verbete de dicionário explica que seu nome hebraico, Shelomoh, significa “Pacífico”, que ele era filho de Davi com Bate-Seba e que Natã o chamou de Jedidias, “amado do Senhor”; seu reinado está registrado em 1 Reis 1–11 e 2 Crônicas 1–9.Fontes: o próprio texto bíblico · Solomon
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org