Nations Bible

Mateus 21

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Jesús kemur til Jerúsalem

1Jesús og lærisveinar hans nálguðust nú Jerúsalem. Þegar þeir áttu skammt ófarið til þorpsins Betfage á Olíufjallinu, sendi hann tvo þeirra þangað á undan sér.

2„Þegar þið komið inn í þorpið, munuð þið finna ösnu bundna og fola hjá henni. Leysið þau og færið mér. 3Ef einhver spyr hvað þið séuð að gera, skuluð þið svara: „Drottinn þarfnast þeirra,“ og þá mun spyrjandinn láta ykkur afskiptalausa.“

4Með þessu rættist gamall spádómur sem er svona: 5„Segið Jerúsalem að konungur hennar sé að koma, auðmjúkur og ríðandi á ösnufola!“

6Lærisveinarnir tveir gerðu eins og þeim var sagt 7og komu með ösnuna og folann til Jesú. Þeir lögðu síðan yfirhafnir sínar á folann og Jesús settist á bak. 8Þá breiddu flestir viðstaddra yfirhafnir sínar á veginn en aðrir skáru greinarnar af trjánum og dreifðu þeim á veginn. 9Allt fólkið gekk á undan og hrópaði:

„Guð blessi konunginn, son Davíðs! Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins! Drottinn, sendu honum hjálp þína frá himnum.“

10Allt komst í uppnám í Jerúsalem við komu Jesú og fólkið þar spurði: „Hver er þetta?“ 11Mannfjöldinn, sem fylgdi honum, svaraði þá: „Þetta er Jesús, spámaðurinn frá Nasaret í Galíleu.“

Jesús hreinsar musterið

12Jesús gekk inn í musterið og rak kaupmennina, sem þar voru, á dyr. Hratt um stöllum dúfnasalanna og borðum þeirra sem skiptu peningum. Hann sagði:

13„Biblían segir: „Musteri mitt á að vera bænastaður, en þið hafið gert það að ræningjabæli!“ “

14Blindir menn og bæklaðir streymdu til hans og hann læknaði þá í musterinu. 15Þegar æðstu prestarnir og leiðtogarnir sáu þessi dásamlegu kraftaverk og heyrðu börnin hrópa í musterinu: „Guð blessi son Davíðs!“ urðu þeir gramir og sögðu við hann: „Heyrirðu hvað börnin segja?“

16„Já,“ svaraði Jesús, „hafið þið aldrei lesið þetta: „Jafnvel börnin munu lofa hann.“ “

Fíkjutré visnar

17Síðan fór Jesús til Betaníu og gisti þar um nóttina. 18Á leiðinni til Jerúsalem, morguninn eftir, fann hann til svengdar. 19Þá tók hann eftir fíkjutré, sem stóð rétt við veginn. Hann gekk að trénu til að athuga hvort á því væru nokkrar fíkjur, en svo var ekki, einungis lauf. Þá sagði hann við tréð:

„Upp frá þessu munt þú aldrei bera ávöxt!“ Rétt á eftir visnaði tréð. 20Lærisveinarnir urðu forviða og spurðu:

„Hvernig gat tréð visnað svona fljótt?“

21„Sannleikurinn er sá,“ svaraði Jesús, „að ef þið trúið án þess að efast, þá getið þið gert slíka hluti og jafnvel enn meiri. Þið gætuð til dæmis sagt við þetta fjall: „Flyttu þig út í sjó,“ og það mundi hlýða. 22Þið getið fengið allt, já allt, sem þið biðjið um – ef þið trúið.“

Leiðtogarnir leggja á ráðin

23Þegar Jesús var kominn í musterið og farinn að kenna, komu æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar. Þeir kröfðust þess að hann segði þeim hver hefði gefið honum vald til að reka kaupmennina út daginn áður.

24„Það skal ég segja ykkur, ef þið svarið einni spurningu fyrst,“ sagði Jesús. 25„Sendi Guð Jóhannes skírara? Já, eða nei!“ Þeir báru saman ráð sín:

„Ef við segjum að Guð hafi sent hann, þá mun hann spyrja af hverju við höfum þá ekki trúað honum. 26En ef við segjum að Guð hafi ekki sent hann, þá mun fólkið ráðast á okkur, því að það telur að Jóhannes hafi verið spámaður.“ 27Að lokum svöruðu þeir: „Við vitum það ekki.“

„Þá svara ég ekki heldur spurningu ykkar,“ sagði Jesús.

Dæmisagan um bræðurna

28„En hvað segið þið annars um þetta: Maður nokkur átti tvo syni. Hann sagði við annan: „Sonur minn, þú skalt vinna í víngarðinum í dag.“ 29„Æ, nei, ég nenni því ekki,“ svaraði hann, en seinna sá hann sig um hönd og fór. 30Faðirinn sagði síðan við þann yngri: „Heyrðu, þú skalt fara í jarðræktina.“ Sonurinn svaraði: „Já, pabbi, sjálfsagt!“ en fór ekki fet. 31Hvor þessara tveggja hlýddi föður sínum?“ „Sá fyrri, auðvitað,“ svöruðu þeir. Jesús skýrði nú fyrir þeim merkingu sögunnar og sagði: „Illmennum og vændiskonum verður leiðin til himins greiðfærari en ykkur. 32Jóhannes skírari sagði ykkur að gjöra iðrun og snúa ykkur til Guðs. Það vilduð þið ekki, en það gerðu hins vegar svindlarar og skækjur. Og þótt þið sæjuð það gerast, vilduð þið samt ekki sjá ykkur um hönd og hlýða honum. Þess vegna gátuð þið ekki trúað.“

Dæmisagan um spilltu vínyrkjana

33„Hlustið á þessa sögu: Landeigandi nokkur plantaði vínviði og gerði skjólgarð umhverfis hann. Því næst reisti hann pall fyrir eftirlitsmanninn og leigði síðan víngarðinn nokkrum bændum með því skilyrði að þeir skiptu uppskerunni með honum. Síðan fluttist hann úr landi.

34Þegar uppskerutíminn kom sendi hann menn sína til bændanna að sækja sinn hluta. 35En bændurnir gerðu aðsúg að þeim, börðu einn til óbóta, drápu annan og grýttu þann þriðja.

36Þá sendi hann aðra til þeirra, fleiri en þá fyrri, en allt fór á sömu leið. 37Að lokum sendi víngarðseigandinn son sinn, því hann hugsaði: „Þeir munu áreiðanlega bera virðingu fyrir honum.“ 38En þegar bændurnir sáu son hans koma, sögðu þeir hver við annan: „Þarna kemur erfinginn. Komið! Við skulum drepa hann og þá eigum við víngarðinn!“ 39Síðan drógu þeir hann út úr víngarðinum og drápu hann.

40Hvað haldið þið að landeigandinn muni gera við bændurna þegar hann kemur til baka?“ 41Leiðtogar Gyðinga svöruðu:

„Svona illmenni ætti að lífláta og leigja víngarðinn öðrum, sem greiða leiguna skilvíslega.“ 42Þá spurði Jesús:

„Hafið þið aldrei lesið þessi ritningarorð:

„Steinninn sem smiðirnir höfnuðu, var gerður að hornsteini. Drottinn hefur unnið dásamleg verk!“

43Það sem ég á við er þetta: Guðsríki verður tekið frá ykkur og gefið öðrum, sem afhenda Guði hans hlut í uppskerunni. 44Þeir sem reka sig á þetta sannleiksbjarg munu sundurmerjast, en þeir sem undir verða myljast mélinu smærra.“

45Þegar æðstu prestarnir og hinir leiðtogarnir skildu að Jesús átti við þá – að þeir væru bændurnir í sögunni, 46vildu þeir handtaka hann. Þeir þorðu það þó ekki vegna fólksins sem áleit að Jesús væri spámaður.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Jesus entra em Jerusalém

  • Ao se aproximarem de Jerusalém, Jesus e os discípulos chegaram a Betfagé, no Monte das Oliveiras, e dali ele enviou dois discípulos para trazer uma jumenta e seu jumentinho. Betfagé significa “casa do figo ainda não maduro”; ficava no caminho de Jerusalém a Jericó, bem perto de Betânia, onde ele passou a noite, e era o limite de uma jornada de sábado a partir da cidade, 2.000 côvados. O Monte das Oliveiras recebe o nome das oliveiras que cobrem suas encostas e é uma serra a leste de Jerusalém, separada da cidade pelo vale do Cedrom.Fontes: o próprio texto bíblico · Bethphage · Mount of Olives
  • O texto diz que a entrada cumpriu o que foi dito pelo profeta à Filha de Sião: o rei viria a ela manso, montado num jumento, num jumentinho, cria de jumenta. Sião era o monte sudeste de Jerusalém; quando Davi a tomou dos jebuseus, construiu ali uma cidadela e um palácio, e ela passou a ser conhecida como a cidade de Davi. As multidões que iam adiante e as que o seguiam gritavam: “Hosana ao Filho de Davi!”Fontes: o próprio texto bíblico · Zion
  • Quando Jesus entrou em Jerusalém, a cidade inteira se alvoroçou e perguntou quem ele era; as multidões responderam que era Jesus, o profeta de Nazaré da Galileia. Nazaré não é mencionada no Antigo Testamento e era o lar de José e Maria. O Dicionário Bíblico de Easton (1897) diz que o nome é em geral entendido como forma grega de uma palavra hebraica que significa “broto” ou “rebento”, embora alguns o liguem ao monte atrás da cidade e a uma palavra para quem guarda ou vigia; Galileia significa “circuito” e era chamada “Galileia dos gentios”, distinguindo-se a Alta Galileia da Baixa Galileia, mais ao sul.Fontes: o próprio texto bíblico · Nazareth · Galilee

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 1, 10, 18
  • Mount of Olives · 31.778, 35.246 · versículo 1
  • Zion · Hoje: Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 5
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 11
  • Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 11

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.