Nations Bible

Mateus 2

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Jesús fæðist

1Jesús fæddist í bænum Betlehem í Júdeu á valdatímum Heródesar konungs. Um það leyti komu stjörnufræðingar til Jerúsalem frá Austurlöndum og spurðu:

2„Hvar er nýfæddi Gyðingakonungurinn? Við höfum séð stjörnu hans austur í löndum og nú erum við komnir til þess að sýna honum lotningu.“

3Heródes konungur varð óttasleginn er hann heyrði þetta, og alls kyns sögusagnir komust á kreik í Jerúsalem. 4Heródes kallaði því saman trúarleiðtoga Gyðinga og spurði:

„Hafa spámennirnir sagt hvar Kristur eigi að fæðast?“

5„Já,“ svöruðu leiðtogarnir, „í Betlehem, því að þannig skrifaði Míka spámaður: 6„Þú Betlehem litla, þú ert ekki einhver þýðingarlaus smábær í Júdeu, því frá þér mun koma höfðingi sem annast þjóð mína, Ísrael“.“

7Heródes sendi þá stjörnufræðingunum leynileg boð um að finna sig, og á þeim fundi fékk hann að vita hvenær þeir hefðu fyrst séð stjörnuna. Síðan sagði hann:

8„Farið til Betlehem og leitið að barninu, og þegar þið hafið fundið það, skuluð þið koma aftur og láta mig vita hvar það er, svo að ég geti einnig veitt því lotningu!“

9Að þessum viðræðum loknum héldu stjörnufræðingarnir aftur af stað. Og sjá! Stjarnan birtist þeim á ný og fór fyrir þeim uns hún staðnæmdist loks yfir Betlehem. 10Gleði þeirra var takmarkalaus! 11Þeir gengu inn í húsið þar sem María og barnið voru, krupu á kné frammi fyrir því og tilbáðu það. Síðan tóku þeir upp farangur sinn og gáfu barninu gull, reykelsi og myrru.

12Á heimleiðinni komu þeir ekki við í Jerúsalem til þess að hitta Heródes, því að Guð hafði sagt þeim í draumi að fara aðra leið.

Flóttinn til Egyptalands

13Þegar þeir voru farnir, dreymdi Jósef að hann sæi engil frá Drottni sem sagði:

„Flýðu til Egyptalands og taktu með þér barnið og móður þess, því að Heródes konungur sækist eftir lífi barnsins. Vertu síðan um kyrrt í Egyptalandi þar til ég segi þér að snúa heim aftur.“

14Jósef lagði af stað til Egyptalands með barnið og Maríu þessa sömu nótt. 15Þar dvöldust þau uns Heródes konungur lést, en þá rættust orð spámannsins: „Ég kallaði son minn frá Egyptalandi.“

Saklausum fórnað

16Heródes varð æfur af reiði þegar hann komst að því að stjörnufræðingarnir höfðu brugðist honum og sendi þegar í stað alla hermenn til Betlehem. Hann gaf þeim skipun um að drepa alla drengi, tveggja ára og yngri, sem ættu heima þar í nágrenninu. Þetta gerði Heródes vegna þess að stjörnufræðingarnir höfðu sagt honum að þeir hefðu fyrst séð stjörnuna tveimur árum áður. 17Jeremía spámaður hafði sagt fyrir um þennan hryllilega verknað Heródesar með þessum orðum: 18„Í Rama kveður við angistarvein og óstöðvandi grátur. Rakel grætur börnin sín. Hún er óhuggandi því þau eru ekki lengur lífs.“

19Eftir dauða Heródesar birtist engill Drottins Jósef í draumi í Egyptalandi og sagði:

20„Rís þú á fætur og farðu aftur til Ísraels með Jesú og móður hans.“

21Hann sneri því þegar í stað aftur til Ísraels með Jesú og móður hans. 22Á leiðinni frétti hann sér til mikils ótta að nýi konungurinn í Júdeu væri Areklás, sonur Heródesar. Þá var hann varaður við í öðrum draumi, að fara til Júdeu, og því héldu þau til Galíleu 23og settust að í Nasaret. Þar með rættist þessi spádómur um Krist: „Hann mun kallaður Nasarei.“

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Magos, Herodes e Nazaré

  • O rei Herodes deste capítulo é Herodes, o Grande. Seu filho Arquelau, tido com Malthace, uma mulher samaritana, herdou um terço do reino: a Idumeia, a Judeia e a Samaria. Até poucos dias antes da morte de Herodes, outro filho, Antipas, havia sido nomeado sucessor, mas, em seus últimos momentos, Herodes nomeou Arquelau; por medo dele, José desviou-se da Judeia e retirou-se para a Galileia.Fontes: Archelaus · o próprio texto bíblico
  • Mateus relaciona a morte dos meninos em Belém com palavras ditas pelo profeta Jeremias: uma voz em Ramá, Raquel chorando por seus filhos. Raquel, uma das esposas de Jacó, morreu ao dar à luz Benjamim e foi sepultada à beira do caminho para Efrata, isto é, Belém, logo ao norte da cidade. Seu sepulcro é objeto de grande veneração entre os judeus.Fontes: o próprio texto bíblico · Rachel · Bethlehem
  • Belém, na região montanhosa de Judá, chamava-se antes Efrata e também era conhecida como a cidade de Davi; sob os romanos, ficava na Judeia, a mais meridional das três divisões da Palestina. José e Maria foram, em vez disso, para Nazaré, na Galileia, sua terra, uma cidade não mencionada no Antigo Testamento. Em geral, supõe-se que o nome Nazaré venha do hebraico netser, um broto ou rebento, embora alguns o liguem a uma palavra que significa guardar ou vigiar.Fontes: Bethlehem · Judea · Nazareth · o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Bethlehem · 31.704, 35.208 · versículos 1, 5, 6, 8, 9, 16
  • East · Hoje: region around Amman · 31.955, 35.934 · versículos 1, 2, 9
  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 1, 3
  • Judea · Hoje: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículos 1, 5, 22
  • Egypt · 30.129, 31.308 · versículos 13, 14, 15, 19
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 22
  • Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 23

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.