Nations Bible

Mateus 15

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Umræður um lög og reglur

1Nokkrir farísear og lögfræðingar komu frá Jerúsalem að ræða við Jesú. 2„Hvers vegna fara lærisveinar þínir ekki eftir siðum þjóðar okkar?“ spurðu þeir valdsmannslega, og bættu síðan við: „Þeir virða til dæmis ekki regluna um að þvo sér um hendur fyrir máltíðir.“

3„En hvers vegna eru þessar siðvenjur ykkar í andstöðu við boðorð Guðs?“ spurði Jesús á móti. 4„Eitt af boðorðum Guðs er þannig: „Heiðra skaltu föður þinn og móður, hver sá sem formælir foreldrum sínum er dauðasekur.“ 5Þið segið hins vegar: „Þótt foreldrar þínir þarfnist hjálpar, máttu gefa musterinu það fé sem þú hefur lagt til hliðar handa þeim.“ Með þessu mannaboðorði ónýtið þið þá skipun Guðs að menn heiðri og annist foreldra sína. 7Hræsnarar! Orð Jesaja eiga við um ykkur:

8„Þessir menn heiðra mig með vörunum en hjarta þeirra er langt í burtu frá mér. 9Trúrækni þeirra er gagnslaus, því þeir kenna sín eigin boðorð í stað boðorða Guðs!“ “

10Síðan hrópaði Jesús til mannfjöldans og sagði: „Hlustið á og reynið að skilja þetta: 11Þið saurgist ekki af matnum sem þið neytið, heldur af orðum ykkar og hugsunum!“

12Þá komu lærisveinar hans til hans og sögðu: „Þú móðgaðir faríseana með því sem þú sagðir.“ 13Jesús svaraði: „Hver sú jurt sem ekki er gróðursett af föður mínum, verður slitin upp með rótum. Látið þá afskiptalausa. Þeir eru blindir leiðtogar, ef blindur leiðir blindan, falla báðir í sömu gryfjuna.“

15Þá bað Pétur Jesú að útskýra hvers vegna fólk saurgaðist ekki við að borða mat sem lögin teldu óhreinan.

16„Skilurðu það ekki?“ spurði Jesús. 17„Veistu ekki að það sem við borðum fer í gegnum meltingarfærin og síðan úr líkamanum? 18Ljót orð koma hins vegar frá illu innræti og spilla þeim sem segir þau. 19Illar hugsanir, morð, hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður, lygi og illt umtal, allt á þetta upphaf sitt í huga og sál mannsins. 20Það er þetta sem mengar mannlífið. Það er ekki syndsamlegt að neyta matar með óþvegnum höndum.“

21Jesús hélt síðan burt og fór norður til Týrusar og Sídonar, en þangað voru um 80 kílómetrar.

Heiðingi sýnir trú

22Kanversk kona, sem þar bjó, kom til Jesú og sagði: „Hjálpaðu mér Drottinn, sonur Davíðs konungs! Dóttir mín er með illan anda, sem kvelur hana dag og nótt.“ 23Jesús svaraði henni engu orði. Lærisveinarnir hvöttu hann til að vísa henni burt og sögðu: „Segðu henni að fara, hún ónáðar með þessu kvabbi.“ 24Jesús sagði þá við konuna: „Ég var sendur til að hjálpa Gyðingum, en ekki heiðingjum.“ 25Þá kom hún enn nær, hneigði sig og bað á nýjan leik: „Drottinn, hjálpaðu mér!“ 26„Það er ekki rétt að taka brauðið frá börnunum og gefa það hvolpunum,“ sagði Jesús. 27„Satt er það,“ sagði hún, „en hvolparnir fá þó að tína molana sem falla á gólfið.“ 28„Kona,“ sagði Jesús, „þú hefur mikla trú og þú skalt fá það sem þú baðst um.“ Dóttir hennar varð heilbrigð á sömu stundu.

Jesús læknar fjölda fólks

29Eftir þetta fór Jesús aftur að Galíleuvatni. Þar gekk hann upp á fjall og settist niður. 30Mannfjöldinn kom til hans með lamaða menn, blinda og mállausa, einnig marga aðra sjúklinga. Þeir lögðu þá við fætur Jesú og hann læknaði þá alla. 31Þetta var stórkostleg sjón! Þeir sem mállausir höfðu verið frá fæðingu töluðu nú reiprennandi. Þeir sem höfðu verið lamaðir gengu um og hlupu. Þeir sem voru blindir áður, horfðu nú furðu lostnir í kringum sig! Allir voru glaðir og undrandi og lofuðu Guð Ísraels.

Fjórar þúsundir fá að borða

32Þá kallaði Jesús á lærisveina sína og sagði: „Ég finn til með þessu fólki. Það hefur verið hér í þrjá daga samfleytt, og nú er það orðið matarlaust. Ég vil ekki senda það frá mér þannig á sig komið, því þá örmagnast það á leiðinni heim.“ 33„Hvernig eigum við að útvega mat hér í óbyggðinni handa öllum þessum fjölda?“ spurðu lærisveinarnir. 34„Hvað tókuð þið mikið með ykkur?“ spurði Jesús. „Sjö brauð og nokkra smáfiska,“ svöruðu þeir. 35Jesús bauð þá fólkinu að setjast niður. 36Síðan tók hann brauðin og fiskana, og þakkaði Guði. Að því búnu skipti hann matnum í skammta, sem lærisveinarnir báru til fólksins. 37Allir fengu nóg, 4.000 karlmenn auk kvenna og barna! Þegar leifunum hafði verið safnað saman, fylltu þær sjö körfur!

39Eftir þetta sendi Jesús fólkið heim, sjálfur fór hann í bátnum yfir til Magadanhéraðs.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Tradição, a costa de Tiro e pão à beira do lago

  • Fariseus e escribas vieram de Jerusalém e perguntaram por que os discípulos de Jesus comiam sem lavar as mãos, tratando isso como uma quebra da tradição dos anciãos. Ele respondeu citando Isaías, que o Easton's Bible Dictionary (1897) identifica como filho de Amoz e situa nos reinados de Uzias, Jotão, Acaz e Ezequias, sobre gente que honra a Deus com os lábios enquanto o coração está longe.Fontes: o próprio texto bíblico · Isaiah
  • Jesus retirou-se então para a região de Tiro e Sidom, onde uma mulher cananeia pediu que ele curasse a filha e o chamou de Filho de Davi. Sidom, na costa do Mediterrâneo ao norte de Tiro, tomou o nome de Zidão, o filho mais velho de Canaã e antepassado dos sidônios e dos fenícios. Era a mais antiga cidade fenícia e a cidade-mãe de Tiro; ficava no território de Aser, mas nunca foi subjugada.Fontes: o próprio texto bíblico · Sidon · Tyre · Canaan
  • Depois, Jesus seguiu ao longo do mar da Galileia, sentou-se num monte e curou as pessoas postas a seus pés, antes de alimentar quatro mil homens, além de mulheres e crianças, com sete pães e alguns peixinhos. O Easton's Bible Dictionary (1897) observa que João chama esse lago de mar de Tiberíades e situa sua superfície a 682 pés abaixo do Mediterrâneo. O mesmo dicionário diz que a travessia de barco terminou em Magadã, nome que aparece só neste capítulo e que Marcos chama de Dalmanuta, na margem oeste do lago.Fontes: o próprio texto bíblico · Sea of Galilee · Magadan

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 1
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 21
  • Sidon · Hoje: Sandikli archaeological site in Sidon · 33.561, 35.372 · versículo 21
  • Tyre · 33.271, 35.196 · versículo 21
  • Canaan · 32.767, 35.333 · versículo 22
  • Sea of Galilee · 32.819, 35.590 · versículo 29

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.