Lucas 9
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
1Dag nokkurn kallaði Jesús lærisveinana tólf til sín og gaf þeim vald yfir öllum illum öndum – til að reka þá út – og til að lækna sjúkdóma. 2Síðan sendi hann þá af stað til að predika og lækna. 3„Takið ekkert til ferðarinnar,“ sagði hann, „hvorki staf né mat, fé né föt, 4og gistið aðeins á einu heimili í hverjum bæ fyrir sig.
5Vilji fólkið í þeim bæ ekki hlusta á ykkur þegar þið komið, þá snúið við og gefið í skyn vanþóknun Guðs með því að dusta rykið af fótum ykkar um leið og þið farið.“
6Þeir lögðu af stað og ferðuðust um þorpin, fluttu gleðiboðskapinn og læknuðu sjúka.
Heródes og aðrir í óvissu
7Þegar Heródes landstjóri frétti um allt er gerst hafði, varð hann undrandi og kvíðinn, því sumir sögðu: „Jesús er Jóhannes skírari risinn upp frá dauðum.“ 8Aðrir sögðu: „Hann er Elía eða einhver hinna fornu spámanna risinn upp frá dauðum“ og sögurnar gengu um allt.
9„Ég lét hálshöggva Jóhannes,“ sagði Heródes, „en nú heyri ég þessar einkennilegu sögur! Hver er þessi Jesús eiginlega?“ Og hann leitaði færis að sjá Jesú.
10Þegar postularnir komu aftur til Jesú og sögðu honum hvað þeir höfðu gert, fór hann ásamt þeim, svo lítið bar á, áleiðis til Betsaída. 11En fólkið komst að því hvert hann ætlaði og elti hann. Hann tók vel á móti því, fræddi það enn frekar um guðsríki og læknaði þá sem sjúkir voru.
12Þegar leið að kvöldi, komu lærisveinarnir tólf til hans og hvöttu hann til að senda fólkið til nálægra þorpa og bóndabæja, svo að það gæti náð sér í mat og húsaskjól fyrir nóttina. „Hér í óbyggðinni er engan mat að fá,“ sögðu þeir.
13„Gefið þið því að borða,“ sagði Jesús.
„Ha, við?“ andmæltu þeir, „við höfum aðeins fimm brauð og tvo fiska og það er ekkert handa öllu þessu fólki. Viltu að við förum og kaupum mat handa öllum hópnum?“ 14Karlmennirnir einir vora um fimm þúsund!
„Segið þeim að setjast niður í fimmtíu manna hópum,“ svaraði Jesús, 15og það var gert.
16Jesús tók þá brauðin fimm og fiskana, leit upp til himins og þakkaði. Síðan braut hann brauðin í smástykki og rétti lærisveinunum, en þeir báru matinn til fólksins. 17Fólkið borðaði vel, en þrátt fyrir það fylltu þeir tólf körfur með brauðmolum að máltíðinni lokinni!
18Eitt sinn þegar Jesús hafði verið einn á bæn, kom hann til lærisveinanna, sem sátu þar skammt frá og spurði: „Hvern segir fólk mig vera?“
19Þeir svöruðu: „Jóhannes skírara eða Elía, og sumir halda að þú sért einhver hinna fornu spámanna, risinn upp frá dauðum.“
20„En þið?“ spurði hann, „hvern segið þið mig vera?“
Pétur varð fyrir svörum og sagði: „Þú ert Kristur, sonur Guðs.“
21Jesús lagði ríkt á við þá að hafa ekki orð á þessu við neinn, 22„því ég, Kristur,“ sagði hann, „verð að þjást mikið. Leiðtogar þjóðar okkar – öldungarnir, æðstu prestarnir og lögvitringarnir – munu hafna mér og taka mig af lífi, en ég mun rísa upp á þriðja degi.“
23Síðan bætti hann við: „Sá sem vill fylgja mér, verður fúslega að leggja til hliðar eigin þrár og þægindi og dag hvern, þola háð og niðurlægingu, og fylgja mér fast eftir. 24Hver sem fórnar lífi sínu mín vegna, mun bjarga því, en sá sem vill halda því fyrir sjálfan sig, mun glata því. 25Hvaða ávinningur er í því að eignast allan heiminn, ef maður glatar sálu sinni?
26Þegar ég, Kristur, kem í dýrð minni og dýrð föður míns og heilagra engla, mun ég blygðast mín fyrir hvern þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð. 27Ég segi ykkur sannleikann: Sumir ykkar, sem hér standa, munu ekki deyja fyrr en þeir hafa séð guðsríki.“
Jesús ummyndast
28Viku síðar tók Jesús þá Pétur, Jakob og Jóhannes með sér og fór upp á fjallið til að biðjast fyrir. 29Meðan hann var að biðja, lýsti andlit hans og föt hans urðu ljómandi hvít. 30Þá birtust allt í einu tveir menn, sem fóru að tala við hann, það voru Móse og Elía. 31Þeir ljómuðu og töluðu við hann um að samkvæmt fyrirætlun Guðs ætti hann að deyja í Jerúsalem.
32Svefn hafði sótt á Pétur og félaga hans. En nú vöknuðu þeir og sáu ljómann sem stóð af Jesú, og mennina tvo standa hjá honum. 33Þegar Móse og Elía voru að skilja við hann, hrökk út úr Pétri, sem var svo ringlaður að hann vissi varla hvað hann sagði: „Meistari, við skulum vera hérna lengur! Við getum reist hér þrjú skýli – eitt handa þér, annað handa Móse og það þriðja handa Elía.“ 34Meðan Pétur sagði þetta myndaðist ský í kringum þá og þeir urðu mjög hræddir. 35Þá kom rödd úr skýinu, sem sagði: „Þessi er minn útvaldi sonur, hlustið á hann.“ 36Þegar röddin hljóðnaði, var Jesús einn eftir með lærisveinum sínum.
Lærisveinarnir sögðu engum frá því sem þeir höfðu séð á fjallinu, fyrr en löngu síðar.
Jesús og neyð mannanna
37Daginn eftir, er Jesús kom niður af fjallinu ásamt lærisveinunum þremur, mætti þeim mikill mannfjöldi. 38Maður einn í hópnum hrópaði þá til hans og sagði: „Meistari, viltu líta á drenginn minn, hann er einkasonur minn. 39Illur andi er sífellt að ná tökum á honum, svo að hann æpir, fær krampa og froðufellir. Hann lætur hann eiginlega aldrei í friði og er alveg að gera út af við hann. 40Ég bað lærisveina þína að reka andann út, en þeir gátu það ekki.“
41„Æ, hvað þið eigið erfitt með að trúa,“ sagði Jesús (við lærisveinana), „hversu lengi þarf ég að umbera ykkur? Komið hingað með drenginn.“
42Meðan drengurinn var á leiðinni til Jesú, fleygði illi andinn honum til jarðar og hann fékk hræðilegt krampakast. Þá skipaði Jesús andanum að fara, hann læknaði drenginn og afhenti föður hans hann.
43Allir urðu forviða á mætti Guðs. En á meðan fólkið var að undrast verk Jesú, sneri hann sér að lærisveinunum og sagði: 44„Festið vel í minni það sem ég segi nú: Ég, Kristur, mun verða svikinn.“ 45En þeir skildu ekki við hvað hann átti, þetta var þeim hulið og þeir þorðu ekki að spyrja hann út í þetta.
46Nú fóru lærisveinarnir að deila um hver þeirra yrði mestur (í hinu komandi ríki Guðs). 47Þá tók Jesús lítið barn, setti það hjá sér 48og sagði við þá: „Hver sá sem tekur á móti þessu barni í mínu nafni, tekur á móti mér. Og sá sem tekur á móti mér, tekur á móti Guði, sem sendi mig. Sá ykkar sem fúsastur er að þjóna öðrum, hann er mikill.“
49Jóhannes lærisveinn hans kom til hans og sagði: „Meistari, við sáum mann sem notaði nafn þitt til að reka út illa anda og við bönnuðum honum það, því hann er ekki einn af okkur.“
50„Það hefðuð þið ekki átt að gera,“ sagði Jesús, „því að hver sem ekki er andstæðingur ykkar, er vinur ykkar.“
51Nú leið að því að Jesús skyldi fara til himna og því ákvað hann að halda beina leið til Jerúsalem.
52Dag nokkurn sendi hann menn á undan sér til bæjar í Samaríu til að útvega honum gistingu þar. 53En þorpsbúar ráku sendiboðana til baka! Þeir vildu ekkert með þá hafa, vegna þess að þeir voru á leið til Jerúsalem.
54Þegar Jesús og lærisveinar hans fengu fréttirnar, sögðu Jakob og Jóhannes við Jesú: „Meistari, eigum við að gefa skipun um að eldur falli af himnum og eyði þeim?“ 55En Jesús ávítaði þá og sagði: „Þið vitið ekki hver fékk ykkur til að segja þetta! Ég, Kristur, kom ekki til að eyða mannslífum, heldur til að bjarga þeim.“ 56Þeir fóru síðan í annað þorp.
57Á leiðinni sagði maður nokkur við Jesú: „Ég vil fylgja þér hvert sem þú ferð.“
58Jesús svaraði: „Refir eiga greni og fuglarnir hreiður en ég, Kristur, á engan samastað.“
59Við annan mann sagði Jesús: „Fylg þú mér!“ Maðurinn tók því vel og sagði: „Leyfðu mér samt að annast útför föður míns fyrst.“ 60Þessu svaraði Jesús: „Láttu þá sem ekki eiga eilíft líf um það, en far þú og boða guðsríki.“
61Enn annar sagði: „Drottinn, ég vil fylgja þér, en leyfðu mér samt fyrst að kveðja þá sem heima eru.“ 62„Sá sem lætur leiða sig burt frá því verki, sem ég ætlaði honum,“ svaraði Jesús, „er ekki hæfur í guðsríki.“

Você sabia?
Missão, identidade e o caminho para Jerusalém
- Herodes, o tetrarca, perplexo com o que se dizia de Jesus, é Herodes Antipas, filho de Herodes com Malthace. Ele disse que tinha decapitado João, enquanto alguns afirmavam que João havia ressuscitado dos mortos, outros que Elias, o tesbita, o "Elias" do Novo Testamento, tinha aparecido, e outros ainda que um antigo profeta havia surgido. Uma cronologia desses acontecimentos data a decapitação de João em 29 d.C.Fontes: Herod Antipas · Elijah · John Beheaded · o próprio texto bíblico
- Depois que os apóstolos voltaram, Jesus retirou-se com eles para uma cidade chamada Betsaida, onde acolheu as multidões, falou do reino de Deus e alimentou cerca de cinco mil homens com cinco pães e dois peixes. O dicionário bíblico de Easton (1897) situa essa Betsaida no lado leste do lago, a duas milhas rio Jordão acima, na região de Gaulonitis; Filipe, o tetrarca, ampliou-a e chamou-a Julias, por causa da filha do imperador. Alguns supuseram que havia apenas uma Betsaida, construída dos dois lados do lago, perto de onde o Jordão nele entra; o verbete identifica as ruínas como et-Tel.Fontes: Bethsaida · o próprio texto bíblico
- Pedro, chamado originalmente Simão, respondeu que Jesus é "o Cristo de Deus". Cerca de oito dias depois, Jesus levou Pedro, Tiago e João a um monte para orar; Moisés e Elias apareceram em glória e falaram da partida que Jesus estava para cumprir em Jerusalém. Tiago, irmão mais velho de João e pescador em sociedade com Pedro, estava com eles; ele e João eram chamados Boanerges, "filhos do trovão", provavelmente por causa de sua ousadia e energia, e mais tarde perguntaram se deviam fazer descer fogo do céu sobre uma aldeia de samaritanos que não quis receber Jesus, porque ele seguia para Jerusalém.Fontes: Simon Peter · James (Son of Zebedee) · o próprio texto bíblico
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org