Nations Bible

Lucas 5

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Jesús kallar menn til fylgdar við sig

1Dag einn var hann að predika niðri við strönd Genesaretvatnsins. Fólkið þyrptist að og þrengdi að honum, því allir vildu heyra orð Guðs. 2Hann tók þá eftir tveim mannlausum bátum í fjörunni – áhafnirnar voru þar skammt frá að þvo net sín. 3Jesús fór út í annan bátinn og bað eigandann, Símon, að leggja lítið eitt frá landi, svo hann gæti setið í bátnum og talað þaðan til mannfjöldans.

4Þegar hann hafði lokið máli sínu sagði hann við Símon: „Farðu nú út á dýpið og leggðu netin.“

5„Herra,“ svaraði Símon, „við höfum verið að í alla nótt og ekki orðið varir, en fyrst þú segir það, þá skulum við reyna.“

6Í þetta skipti varð veiðin svo mikil að netin rifnuðu! 7Þá kölluðu þeir til félaga sinna á hinum bátnum og báðu þá að hjálpa sér. Ekki leið á löngu uns þeir höfðu drekkhlaðið báða bátana.

8Þegar Símon Pétur sá þetta, féll hann að fótum Jesú og sagði: „Farðu frá mér, herra, ég er of syndugur til að vera nálægt þér.“ 9Bæði hann og félagar hans, Jakob og Jóhannes Sebedeussynir, voru gagnteknir af undrun á öllum þessum afla.

En Jesús sagði við Símon: „Vertu óhræddur! Héðan í frá skaltu veiða menn.“

11Þegar þeir höfðu landað aflanum yfirgáfu þeir allt og fylgdu honum.

Margir læknast

12Svo bar við, er Jesús var staddur í einu þorpinu, að hann mætti manni sem þjáðist af holdsveiki. Þegar maðurinn sá Jesú, fleygði hann sér í götuna fyrir framan hann og grátbað hann að lækna sig.

„Herra, þú getur læknað mig ef þú vilt,“ sagði hann. 13Jesús rétti út höndina, snerti manninn og sagði: „Ég vil að þú verðir heilbrigður.“ Um leið hvarf holdsveikin! 14Jesús bað manninn að segja þetta engum, en fara strax og láta prestinn skoða sig. „Fórnaðu síðan því sem lög Móse fyrirskipa þeim sem læknast af holdsveiki,“ bætti Jesús við, „því það er sönnun þess að þér sé batnað.“

15Orðrómurinn um mátt Jesú breiddist nú æ hraðar út og mikill mannfjöldi kom til að hlusta á hann og fá bót meina sinna. 16Oft dró hann sig þó út úr á óbyggða staði og var þar á bæn.

17Einn daginn, er hann var að kenna, sátu þar nokkrir af leiðtogum og fræðimönnum þjóðarinnar. (Þeir komu úr hverju þorpi í Galíleu og Júdeu og einnig frá Jerúsalem.) Lækningakraftur frá Guði var með Jesú þegar þetta var.

18Þá komu nokkrir menn og báru á milli sín lamaðan mann á dýnu. Þeir reyndu að olnboga sig í gegnum þvöguna og inn til Jesú, en án árangurs. Þá fóru þeir upp á þakið, losuðu nokkrar þakhellur og létu þann lamaða síga á dýnunni niður til Jesú.

20Þegar Jesús sá trú þeirra sagði hann við lamaða manninn: „Vinur minn, syndir þínar eru fyrirgefnar.“

21„Hvað heldur maðurinn að hann sé,“ sögðu farísearnir og lögvitringarnir hvorir við aðra. „Þetta er guðlast! Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð?“

22Jesús vissi hvað þeir hugsuðu og svaraði: „Hvers vegna kallið þið þetta guðlast? 23Hvort er auðveldara að fyrirgefa syndir hans eða lækna hann? 24Nú ætla ég að lækna hann og sanna þar með að ég hef vald til að fyrirgefa syndir.“ Síðan sneri hann sér að lamaða manninum og sagði ákveðinn: „Taktu dýnuna þína og farðu heim, því nú ertu orðinn heilbrigður.“ 25Samstundis spratt maðurinn á fætur í augsýn allra, tók dýnuna sína, gekk heimleiðis og lofaði Guð! 26Fólkið varð óttaslegið, lofaði Guð og sagði hvað eftir annað: „Við höfum séð ótrúlega hluti í dag.“

27Síðar er Jesús var á leið út úr þessum bæ, sá hann skattheimtumann, Leví að nafni, sitja hjá skattstofunni. Það var á allra vitorði að skattheimtumenn þessir sviku fé út úr fólki. Jesús gekk til Leví og sagði: „Komdu og vertu lærisveinn minn.“ 28Leví stóð þá samstundis upp, yfirgaf allt og fylgdi Jesú.

29Stuttu síðar efndi Leví til veislu og var Jesús heiðursgesturinn. Þarna voru samankomnir margir vinnufélagar Leví, svo og aðrir gestir.

Kvartanir hinna lærðu

30Farísearnir og lögvitringarnir komu þá til lærisveina Jesú og kvörtuðu um að Jesús borðaði með slíkum stórsyndurum.

31Jesús varð fyrir svörum og sagði: „Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru. 32Ég kom til að kalla syndara burt frá syndinni, en ekki til að eyða tíma með þeim sem þegar telja sig nógu góða.“

33Það næsta sem þeim fannst þeir þurfa að gera athugasemd við, var að lærisveinarnir væru í veislu í stað þess að fasta. „Lærisveinar Jóhannesar skírara fasta oft og biðja,“ sögðu þeir, „einnig lærisveinar faríseanna, en af hverju eru þínir alltaf étandi og drekkandi?“

34„Segið mér eitt, fasta menn þegar þeir halda hátíð?“ sagði Jesús. „Er veislumatnum sleppt í brúðkaupsveislum? 35Sá tími mun hins vegar koma er brúðguminn verður tekinn og líflátinn og þá mun þá ekki langa í mat.“

36Jesús sagði þeim dæmisögu: „Enginn rífur pjötlu af nýjum fötum til að bæta gamla flík. Þá eyðileggjast ekki aðeins nýju fötin, heldur lítur gamla flíkin verr út en áður! 37Enginn setur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir nýja vínið belgina og það fer til spillis og belgirnir eyðileggjast. 38Nýtt vín verður að láta á nýja belgi. 39Sá sem drukkið hefur gamalt vín, hefur ekki áhuga á nýju. „Það gamla er ljúffengara segir hann.“

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Chamados, curas e vinho novo

  • Jesus ensinou o povo do barco de Simão, no lago de Genesaré, enquanto a multidão se apertava na margem. O nome vem de uma cidade de Naftali, na margem ocidental, antes chamada Quinerete; a planície junto ao lago, notável pela fertilidade e pela beleza, era chamada “o Paraíso da Galileia”.Fontes: Gennesaret · o próprio texto bíblico
  • Simão, também chamado Pedro, cresceu em Betsaida, na costa ocidental do mar da Galileia, e aprendeu o ofício de pescador. Tiago e João, seus sócios no outro barco, eram filhos de Zebedeu, um pescador galileu; o Dicionário Bíblico de Easton (1897) infere que Zebedeu tinha certa posição em Cafarnaum, pois possuía dois barcos e jornaleiros.Fontes: Simon Peter · James (Son of Zebedee) · Zebedee · o próprio texto bíblico
  • O homem que Jesus chamou da coletoria se chama Levi neste capítulo; em outros relatos é Mateus, filho de Alfeu, cobrador de impostos em Cafarnaum. O Dicionário Bíblico de Easton (1897) sugere que ele talvez tenha adotado o nome Mateus em grata lembrança do chamado, e descreve o grande banquete que ofereceu naquele mesmo dia como uma festa de despedida.Fontes: Matthew · o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Gennesaret · Hoje: El Ghuweir · 32.861, 35.507 · versículo 1
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 17
  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 17
  • Judea · Hoje: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículo 17

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.