Lucas 3
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
Jóhannes hefur starf sitt
1Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, komu boð frá Guði til Jóhannesar (Sakaríassonar) þar sem hann hafðist við úti í eyðimörkinni. Þegar þetta gerðist var Pílatus landstjóri í Júdeu, Heródes héraðsstjóri í Galíleu og bróðir hans, Filippus, í Átúreu og Trakónítis. Lýsanías var yfir Ablílene og Annas og Kaífas voru æðstuprestar. 3Þá lagði Jóhannes leið sína til ýmissa staða beggja megin Jórdanar og bauð fólkinu að láta skírast og sýna með því að það hefði snúið sér frá syndinni og til Guðs, til að fá fyrirgefningu.
4Þannig lýsti Jesaja spámaður Jóhannesi: „Rödd hrópar í auðninni: „Ryðjið Drottni veg! Fyllið upp dalina! 5Jafnið fjöllin við jörðu! Gerið brautirnar beinar! 6Og mannkynið allt mun sjá hjálpræði Guðs!“ “
7Hér er lítið sýnishorn af því sem Jóhannes sagði við fólkið þegar það kom til að láta skírast: „Þið höggormsafkvæmi! Þið viljið skírast, svo að þið komist hjá því að taka afleiðingum synda ykkar, en samt viljið þið ekki snúa ykkur til Guðs af heilum hug!
8Nei, farið fyrst og sýnið með líferni ykkar að þið hafið í raun og veru tekið nýja stefnu. Þið skuluð ekki halda að ykkur sé borgið vegna þess að þið eruð afkomendur Abrahams, nei, það nægir ekki. Guð getur skapað Abrahamssyni af þessu grjóti! 9Öxi dómarans er reidd gegn ykkur og þið verðið höggvin upp frá rótum. Sérhvert tré, sem ekki ber góðan ávöxt, verður fellt og því kastað í eldinn.“
10„Hvað viltu að við gerum?“ spurði fólkið.
11„Sá sem á tvær skyrtur, gefi aðra fátækum og ef þið eigið umframbirgðir af mat, þá gefið þær hungruðum,“ svaraði hann.
12Jafnvel skattheimtumenn, sem þekktir voru fyrir að stela, komu til að láta skírast. Þeir spurðu: „Með hverju getum við sýnt að við höfum iðrast synda okkar?“
13„Með því að vera heiðarlegir,“ svaraði Jóhannes. „Gætið þess að taka ekki hærri skatta af fólkinu en rómversku yfirvöldin krefjast.“
14„En við,“ sögðu nokkrir hermenn, „hvað með okkur?“ Jóhannes svaraði: „Reynið ekki að komast yfir peninga með ógnunum og ofbeldi. Dæmið engan ranglega og látið ykkur nægja laun ykkar.“
15Nú hafði vaknað eftirvænting hjá fólkinu og töldu margir jafnvel að Jóhannes væri Kristur. 16En Jóhannes sagði: „Ég skíri aðeins með vatni, en bráðlega kemur sá sem hefur miklu meira vald en ég. Sannleikurinn er sá að ég er ekki einu sinni verður þess að vera þræll hans. Hann mun skíra ykkur með heilögum anda og eldi. 17Hismið mun hann skilja frá korninu og brenna það í óslökkvandi eldi, en geyma kornið og setja í hlöður sínar.“ 18Margar slíkar viðvaranir flutti Jóhannes fólkinu um leið og hann boðaði því gleðitíðindin. 19(En þegar Jóhannes gagnrýndi Heródes, landstjóra Galíleu, opinberlega fyrir að kvænast Heródías, konu bróður síns, og fyrir marga aðra óhæfu, lét Heródes varpa honum í fangelsi og jók þar með enn við syndir sínar.) 21Dag einn bættist Jesús í þann stóra hóp, sem tók skírn hjá Jóhannesi. Á meðan hann var að biðjast fyrir, opnuðust himnarnir, 22og heilagur andi kom yfir hann í dúfulíki. Þá heyrðist rödd af himni sem sagði: „Þú ert minn elskaði sonur, sem ég hef velþóknun á.“
Ættartala Jesú
23Jesús var um þrítugt, þegar hann hóf starf sitt meðal fólksins.
Almennt var litið á Jesú sem son Jósefs,
Jósef var sonur Elí,
24Elí var sonur Mattats,
Mattat var sonur Leví,
Leví var sonur Melkí,
Melkí var sonur Jannaí,
Jannaí var sonur Jósefs,
25Jósef var sonur Mattatíasar,
Mattatías var sonur Amosar,
Amos var sonur Naúms,
Naúm var sonur Eslí,
Eslí var sonur Naggaí,
26Naggaí var sonur Maats,
Maat var sonur Mattatíasar,
Mattatías var sonur Semeíns,
Semeín var sonur Jóseks,
Jósek var sonur Jóda,
27Jóda var sonur Jóhanans,
Jóhanan var sonur Hresa,
Hresa var sonur Serúbabels,
Serúbabel var sonur Sealtíels,
Sealtíel var sonur Nerí,
28Nerí var sonur Melkí,
Melkí var sonur Addí,
Addí var sonur Kósams,
Kósam var sonur Elmadams,
Elmadam var sonur Ers,
29Ers var sonur Jesú,
Jesús var sonur Elíesers,
Elíeser var sonur Jóríms,
Jórím var sonur Mattats,
Mattat var sonur Leví,
30Leví var sonur Símeons,
Símeon var sonur Júda,
Júda var sonur Jósefs,
Jósef var sonur Jónams,
Jónam var sonur Eljakíms,
31Eljakím var sonur Melea,
Melea var sonur Menna,
Menna var sonur Mattata,
Mattata var sonur Natans,
Natan var sonur Davíðs,
32Davíð var sonur Ásaí,
Ásaí var sonur Óbeðs,
Óbeð var sonur Bóasar,
Bóas var sonur Salmons,
Salmon var sonur Nahsons,
33Nahson var sonur Ammínadabs,
Ammínadab var sonur Arní,
Arní var sonur Esroms,
Esrom varsonur Peres,
Peres var sonur Júda,
34Júda var sonur Jakobs,
Jakob var sonur Ásaks,
Ásak var sonur Abrahams,
Abraham var sonur Tara,
Tara var sonur Nakórs,
35Nakór var sonur Serúks,
Serúk var sonur Reús,
Reú var sonur Peleks,
Pelek var sonur Ebers,
Eber var sonur Sela,
36Sela var sonur Kenans,
Kenan var sonur Arpaksads,
Arpaksad var sonur Sems,
Sem var sonur Nóa,
37Nói var sonur Lameks,
Lamek var sonur Metúsala,
Metúsala var sonur Enoks,
Enok var sonur Jareds,
Jared var sonur Mahalalels,
Mahalalel var sonur Kenans,
38Kenan var sonur Enoss,
Enos var sonur Sets,
Set var sonur Adams
og faðir Adams var Guð.

Você sabia?
João Batista prepara o caminho
- Lucas situa a pregação de João no décimo quinto ano de Tibério César, enteado de Augusto, que o sucedeu em 14 d.C. e morreu em 37 d.C. O Dicionário Bíblico de Easton (1897) observa que João iniciou seu ministério público naquele ano e que Pôncio Pilatos, o sexto procurador romano da Judeia, de 26 a 36 d.C., manteve a sede em Cesareia num período que abrangeu os ministérios de João e de Jesus. Herodes Antipas, filho de Herodes, era então tetrarca da Galileia.Fontes: o próprio texto bíblico · Tiberius · Pontius Pilate · Herod Antipas
- O capítulo situa esses acontecimentos durante o sumo sacerdócio de Anás e de Caifás. O Dicionário Bíblico de Easton (1897) registra que Anás foi sumo sacerdote de 7 a 14 d.C. e foi deposto pelo procurador romano, e que Caifás, que havia se casado com a filha de Anás, foi elevado a esse cargo em 25 d.C. O mesmo verbete sugere que os judeus ainda podiam considerar Anás o sumo sacerdote legítimo, pois a lei de Moisés mantinha o cargo por toda a vida, e que ele provavelmente servia com Caifás como presidente do Sinédrio ou como adjunto do sumo sacerdote.Fontes: o próprio texto bíblico · Annas
- João, filho de Zacarias, era de linhagem sacerdotal: o pai era sacerdote da turma de Abias, e a mãe, Isabel, pertencia às filhas de Arão. O Dicionário Bíblico de Easton (1897) observa que a missão de João era objeto de profecia, inclusive a voz que clama no deserto em Isaías, e que seu nascimento ocorreu seis meses antes do de Jesus. Neste capítulo, ele prega um batismo de arrependimento em toda a região ao redor do Jordão, e o tetrarca Herodes depois o prende, após João o repreender por causa de Herodias.Fontes: o próprio texto bíblico · John the Baptist
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
- Abilene · 33.627, 36.106 · versículo 1
- Galilee · 32.760, 35.527 · versículos 1, 19
- Ituraea · 33.400, 35.850 · versículo 1
- Judea · Hoje: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículo 1
- Trachonitis · Hoje: Lajat · 32.969, 36.455 · versículo 1
- Jordan · Hoje: Jordan River · 31.761, 35.558 · versículo 3
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org