Nations Bible

Lucas 24

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

„Hann er upprisinn“

1Mjög snemma á sunnudagsmorgni fóru konurnar með smyrslin til grafarinnar. 2Þá sáu þær að stóra steininum, sem var fyrir grafardyrunum, hafði verið velt frá. 3Þær fóru inn í gröfina og sáu að líkami Drottins Jesú var horfinn.

4Þær skildu ekkert í þessu og reyndu að ímynda sér hvað orðið hefði um hann. En skyndilega birtust tveir menn hjá þeim, í skínandi hvítum klæðum, svo að þær fengu ofbirtu í augun. 5Þær urðu skelfingu lostnar, hneigðu sig og huldu andlit sín.

Mennirnir spurðu: „Hvers vegna leitið þið hans sem er lifandi, meðal hinna dauðu? 6Hann er ekki hér. Hann er upprisinn! Munið þið ekki hvað hann sagði við ykkur í Galíleu. Að Kristur yrði svikinn í hendur vondra manna, sem myndu krossfesta hann, en eftir það mundi hann rísa upp á þriðja degi.“

8Þá minntust þær orða hans 9og flýttu sér aftur til Jerúsalem til að segja lærisveinunum ellefu – og öllum hinum – hvað gerst hafði. 10Konurnar sem fóru til grafarinnar voru þær María Magdalena, Jóhanna, María móðir Jakobs og nokkrar aðrar. 11En lærisveinarnir trúðu ekki frásögn þeirra.

12Samt sem áður hljóp Pétur út að gröfinni til að athuga þetta. Hann nam staðar úti fyrir gröfinni og leit inn, en sá ekkert nema léreftsdúkinn. Pétur varð mjög undrandi og fór aftur heim.

13Þennan sama sunnudag fóru tveir af fylgjendum Jesú gangandi til þorpsins Emmaus, sem er rúma 12 kílómetra frá Jerúsalem. 14Á leiðinni ræddu þeir saman um atburði þessa. 15Þá kom Jesús sjálfur til þeirra og slóst í för með þeim, 16en þeir þekktu hann ekki ( – það var eins og Guð héldi því leyndu fyrir þeim).

17„Um hvað eruð þið að tala, svona áhyggjufullir?“ spurði Jesús.

Þeir námu staðar rétt sem snöggvast, daprir á svip. 18Kleófas, annar þeirra, varð fyrir svörum og sagði: „Þú hlýtur að vera eini maðurinn í Jerúsalem, sem ekki hefur heyrt um hina hræðilegu atburði sem þar hafa gerst undanfarna daga.“

19„Hvað þá?“ spurði Jesús.

„Jú, þetta með Jesú, manninn frá Nasaret,“ sögðu þeir. „Hann var spámaður, sem gerði ótrúleg kraftaverk, og frábær kennari. Hann var virtur bæði af Guði og mönnum. 20En æðstu prestarnir og leiðtogar þjóðar okkar handtóku hann og framseldu rómversku yfirvöldunum, sem dæmdu hann til dauða og krossfestu hann. 21Við héldum að hann væri Kristur og að hann hefði komið til að bjarga Ísrael.

Þetta gerðist fyrir þrem dögum, 22en nú snemma í morgun fóru nokkrar konur úr hópi okkar, fylgjenda hans, út að gröfinni. Komu síðan aftur með þær furðulegu fréttir að líkami hans væri horfinn og að þær hefðu séð engla, sem sögðu að hann væri á lífi! 24Sumir okkar hlupu þangað til að gá að því og það reyndist rétt – líkami Jesú var horfinn eins og konurnar höfðu sagt.“

25Þá sagði Jesús: „Æ, skelfing eruð þið heimskir og tregir! Hvers vegna eigið þið svona erfitt með að trúa því sem Biblían segir? 26Sögðu spámennirnir það ekki greinilega fyrir að Kristur yrði að þjást á þennan hátt, áður en hann gengi inn í dýrð sína?“

27Síðan vitnaði Jesús í hvert spámannaritið á fætur öðru. Hann byrjaði á fyrstu Mósebók og svo áfram í gegnum Gamla testamentið og útskýrði fyrir þeim hvað þar væri sagt um hann sjálfan.

28Nú var stutt eftir á leiðarenda. Jesús lét sem hann ætlaði lengra, 29en þeir margbáðu hann að gista hjá sér, því það var orðið framorðið. Hann lét undan og fór með þeim.

30Þeir settust niður til að borða og Jesús flutti þakkarbæn yfir matnum. Síðan tók hann brauð, braut það og rétti þeim. 31Þá var eins og augu þeirra opnuðust og þeir þekktu hann. En þá hvarf hann þeim sýnum. 32Þeir tóku að ræða saman um hve vel þeim hefði liðið meðan hann talaði við þá úti á veginum og útskýrði fyrir þeim Biblíuna. 33Og þeir biðu ekki boðanna, en lögðu af stað aftur til Jerúsalem. Þar fögnuðu postularnir ellefu þeim og aðrir vinir Jesú, með þessum orðum: „Drottinn er sannarlega upprisinn! Hann hefur birst Pétri.“

35Lærisveinarnir tveir frá Emmaus sögðu þeim þá hvernig Jesús hafði birst þeim er þeir voru á leiðinni og hvernig þeir hefðu þekkt hann þegar hann braut brauðið.

36Allt í einu, meðan þeir voru að tala um þetta, stóð Jesús sjálfur mitt á meðal þeirra, heilsaði þeim og sagði: „Friður sé með ykkur.“

37Lærisveinarnir urðu skelfingu lostnir og héldu að þeir sæju vofu!

38„Hvers vegna eruð þið hræddir?“ spurði hann. „Hvers vegna efist þið um að þetta sé ég? 39Lítið á hendur mínar og fætur. Þið sjáið það sjálfir að þetta er ég. Komið við mig og gangið úr skugga um að ég er ekki vofa. Vofur hafa ekki líkama eins og þið sjáið mig hafa.“ 40Meðan hann var að tala, rétti hann út hendur sínar, svo að þeir gætu séð naglaförin, og hann sýndi þeim einnig særða fæturna.

41Þarna stóðu þeir og vissu ekki hverju þeir ættu að trúa. Þeir voru í senn fullir gleði og efasemda. „Hafið þið nokkuð að borða?“ spurði Jesús.

42Þeir réttu honum stykki af steiktum fiski, 43Sem hann neytti fyrir augum þeirra.

44Hann sagði: „Munið þið ekki að þegar ég var með ykkur, þá sagði ég ykkur að allt, sem skrifað væri um mig af Móse, spámönnunum og í Sálmunum, yrði að rætast.“ 45Síðan opnaði hann hjörtu þeirra til að þeir gætu skilið þessa staði í Biblíunni, 46og sagði svo: „Fyrir löngu var ritað að Kristur yrði að líða og deyja og rísa síðan upp frá dauðum á þriðja degi, 47og að svohljóðandi gleðiboðskapur ætti að berast frá Jerúsalem út til allra þjóða: Allir þeir sem iðrast og snúa sér til mín, munu fá fyrirgefningu syndanna. 48Þið hafið séð þessa spádóma rætast.

49Ég mun senda heilagan anda yfir ykkur, eins og faðir minn lofaði. Segið engum frá þessu enn sem komið er, en bíðið hérna í borginni þar til heilagur andi kemur og fyllir ykkur krafti frá Guði.“

50Eftir þetta fór Jesús með þá út að veginum, sem liggur til Betaníu, og þar lyfti hann höndum sínum til himins og blessaði þá. 51En meðan hann var að blessa þá, hvarf hann sjónum þeirra og fór til himna.

52Lærisveinarnir tilbáðu hann og sneru aftur til Jerúsalem gagnteknir fögnuði. 53Þeir héldu sig síðan stöðugt í musterinu og lofuðu Guð.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

A manhã da ressurreição e o caminho de Emaús

  • Lucas descreve Emaús como uma aldeia a cerca de sete milhas de Jerusalém. O Easton's Bible Dictionary (1897) cita essa distância como sessenta furlongs e registra duas identificações: el-Kubeibeh, a mais de sete milhas a noroeste de Jerusalém, cujo nome, 'pequena cúpula', vem dos restos de uma igreja dos cruzados que ainda se encontram ali, e Khurbet Khamasa, 'as ruínas de Khamasa', a cerca de oito milhas a sudoeste, onde também há ruínas dos cruzados.Fontes: Emmaus · o próprio texto bíblico
  • Maria Madalena, Joana, Maria, mãe de Tiago, e outras mulheres que iam com elas foram quem contou aos apóstolos o que havia acontecido no túmulo. Maria Madalena recebe o nome de Magdala, sua terra natal, e o Easton's Bible Dictionary (1897) considera um equívoco identificá-la com a mulher chamada 'pecadora' em Lucas 7. Joana, esposa de Cuza, administrador de Herodes Antipas, tetrarca da Galileia, era uma das mulheres que serviam a Jesus, e o mesmo dicionário diz que ele lhe apareceu depois da ressurreição.Fontes: Mary Magdalene · Joanna · o próprio texto bíblico
  • Um dos dois discípulos no caminho chama-se Cléopas, forma abreviada de Cleópatros. O Easton's Bible Dictionary (1897) diz que nada se sabe de certo sobre ele e que não é seguro que fosse o Clopas de João 19:25 nem o Alfeu de Mateus 10:3, embora possa ter sido.Fontes: Cleophas · o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 6
  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 13, 18, 33, 47, 49, 52
  • Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 19

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.