Nations Bible

Lucas 22

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Samsæri gegn Jesú

1Nú voru páskarnir í nánd. Þeir eru mesta hátíð Gyðinga og þá eru einungis borðuð ósýrð brauð. 2Æðstu prestarnir og fræðimennirnir voru að velta því fyrir sér hvernig þeir gætu ráðið Jesú af dögum. En þeir óttuðust að fólkið svaraði með því að gera uppreisn.

3Þegar þetta var fór Satan í Júdas Ískaríot, einn af þeim tólf. 4Júdas kom að máli við æðstu prestana og varðstjóra musterisins til að ræða um hvernig hann ætti að koma Jesú í hendur þeirra. 5Þeir urðu glaðir þegar þeir heyrðu að hann væri fús að hjálpa þeim og hétu honum launum. 6Upp frá þessu beið Júdas eftir hentugu tækifæri til að handtaka Jesú í kyrrþey þegar fólkið væri hvergi nærri.

Páskamáltíðin undirbúin

7Dagurinn fyrir páska rann upp – dagur ósýrðu brauðanna – en þá átti að slátra páskalambinu og borða það með ósýrða brauðinu. 8Jesús sendi Pétur og Jóhannes af stað til að finna húsnæði þar sem þeir gætu undirbúið páskamáltíðina.

9„Hvert viltu að við förum?“ spurðu þeir.

10„Þegar þið komið inn í Jerúsalem,“ svaraði Jesús, „mun mæta ykkur maður sem ber vatnskrús. Fylgið honum eftir þangað sem hann fer 11og segið húsráðanda þar: „Við erum með skilaboð frá meistara okkar, um að þú sýnir okkur herbergið þar sem hann geti snætt páskamáltíðina með lærisveinum sínum.“ 12Þá mun hann fara með ykkur upp í stórt herbergi sem okkur er ætlað. Það er staðurinn. Farið nú og undirbúið máltíðina.“

13Þeir fóru til borgarinnar og fundu allt eins og Jesús hafði sagt og undirbjuggu páskamáltíðina.

Síðasta máltíðin

14Á tilsettum tíma kom Jesús og settist til borðs og postularnir með honum.

15Hann sagði: „Ég hef innilega þráð að neyta þessarar páskamáltíðar með ykkur áður en ég líð, 16því að það segi ég ykkur að ég mun ekki neyta hennar aftur, fyrr en hún fullkomnast í guðsríki.“

17Þá tók Jesús bikar, flutti þakkarbæn og sagði: „Takið þetta og skiptið því á milli ykkar. 18Ég mun ekki drekka vín á ný fyrr en guðsríki er komið.“

19Og hann tók brauð, þakkaði Guði og braut það í sundur, fékk þeim og sagði: „Þetta er líkami minn, sem fyrir ykkur er gefinn, gerið þetta í mína minningu.“

20Á sama hátt tók hann bikarinn eftir kvöldmáltíðina og mælti: „Þessi bikar er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði sem fyrir ykkur er úthellt. 21Sá er svíkur mig, situr hér til borðs með mér. 22Að vísu verð ég að deyja, það er liður í áætlun Guðs, en vei þeim manni sem veldur því að ég verð framseldur.“

23Þá fóru lærisveinarnir að þrátta sín á milli um það hver þeirra gæti fengið sig til slíks, 24og líka um það hver þeirra gæti talist mestur.

25Þá sagði Jesús: „Konungar þjóðanna drottna yfir þeim og þeir sem láta menn kenna á valdi sínu eru nefndir velgjörðamenn.

26En meðal ykkar er sá mestur sem þjónar hinum. 27Í heiminum er það foringinn sem situr við borðið og þjónar hans ganga um beina. En hjá okkur er þetta öðruvísi. Ég þjóna ykkur. 28Þið hafið ekki brugðist mér þennan erfiða tíma. 29En eins og faðir minn hefur gefið mér ríki sitt, eins gef ég ykkur það svo að þið getið 30etið og drukkið við borð mitt í ríki mínu. Þið munuð sitja í hásætum og dæma hinar tólf ættkvíslir Ísraels.

31Símon, Símon, Satan krafðist þín til að sigta þig eins og hveiti, 32en ég hef beðið þess að trú þína þrjóti ekki að fullu og öllu. Styrk þú bræður þína þegar þú hefur iðrast og snúið aftur til mín.“

33Símon svaraði: „Drottinn, ég er reiðubúinn að fara með þér í fangelsi og jafnvel deyja með þér.“ 34„Pétur,“ svaraði Jesús, „ég skal segja þér nokkuð. Haninn mun ekki gala í dag fyrr en þú hefur þrisvar neitað því að þú þekkir mig.“

35Og Jesús hélt áfram og sagði: „Þegar ég sendi ykkur í predikunarferðir, peningalausa, nestislausa og án þess að þið hefðuð skó til skiptanna, skorti ykkur þá nokkuð?“

„Nei, ekkert,“ svöruðu þeir.

36„En núna“ sagði hann, „skuluð þið taka með ykkur nestispoka, ef þið eigið, og peninga. Ef þið eigið ekkert sverð, þá seljið jafnvel fötin ykkar til að geta keypt sverð. 37Þetta segi ég, því að nú er þessi spádómur að rætast: „Hann mun dæmdur sem afbrotamaður.“ Allt sem spámennirnir skrifuðu um mig mun rætast.“

38„Meistari“ svöruðu þeir, „við höfum hérna tvö sverð.“

„Það er nóg,“ svaraði hann.

Jesús handtekinn

39Síðan yfirgaf Jesús loftherbergið í fylgd lærisveinanna og fór eftir venju út til Olíufjallsins. 40Þegar þangað kom sagði hann: „Biðjið Guð að þið fallið ekki í freistni.“

41Hann fór spölkorn frá þeim, kraup niður og bað: „Faðir, ef þú vilt, þá taktu þennan bikar frá mér. Verði þó ekki minn vilji, heldur þinn.“ 43Þá birtist honum engill af himni sem styrkti hann. 44Því að hann var í slíkri dauðans angist að sviti hans varð eins og blóðdropar sem féllu á jörðina og bæn hans varð enn ákafari. 45Að lokum stóð hann upp, gekk til lærisveinanna og fann þá sofandi. Þeir höfðu sofnað af þreytu og hryggð.

46„Hví sofið þið?“ spurði hann, „Rísið upp og biðjið þess að þið fallið ekki fyrir freistingunni.“

47Hann hafði ekki sleppt orðinu, er hóp manna bar þar að. Fremstur gekk Júdas, einn postulanna. Hann gekk til Jesú og kyssti hann vingjarnlega á kinnina.

48Jesús sagði við hann: „Júdas, svíkur þú mig með kossi.“

49Þegar lærisveinarnir ellefu skildu hvað um var að vera, hrópuðu þeir: „Meistari, eigum við að berjast? Við tókum sverðin með okkur.“ 50Einn þeirra brá sverði og hjó hægra eyrað af þjóni æðsta prestsins.

51En Jesús sagði: „Sýnið enga frekari mótstöðu.“ Síðan snerti hann sárið og læknaði eyrað. 52Jesús sneri sér nú að æðstu prestunum, varðforingjum musterisins og trúarleiðtogum, sem fremstir stóðu, og spurði: „Er ég þá ræningi? Hvers vegna komið þið með sverð og kylfur til að handsama mig? 53Af hverju handtókuð þið mig ekki í musterinu? Þar var ég daglega. En þetta er ykkar tími og vald myrkraaflanna.“

Pétur neitar því að hafa þekkt Jesú

54Þá gripu þeir Jesú og leiddu til bústaðar æðsta prestsins. Pétur fylgdi í humátt á eftir. 55Hermennirnir kveiktu bál í húsagarðinum og settust umhverfis það til að hlýja sér, en Pétur smeygði sér inn í hópinn svo lítið bar á.

56Við bjarmann frá eldinum tók ein þjónustustúlkan eftir honum og gaf honum nánar gætur. Loks sagði hún: „Þessi maður var með Jesú.“

57„Nei, kona góð,“ svaraði Pétur, „þann mann þekki ég alls ekki.“

58Stuttu seinna tók einhver annar eftir honum og sagði: „Þú hlýtur að vera einn af þeim.“

„Nei, herra minn, það er ég ekki,“ svaraði Pétur.

59Um það bil klukkustundu síðar fullyrti enn einn þetta og sagði: „Ég veit að þessi maður er einn af lærisveinum Jesú, því að þeir eru báðir frá Galíleu.“

60„Góði maður“ svaraði Pétur, „ég skil bara alls ekki hvað þú ert að tala um.“ En áður en hann hafði sleppt orðinu gól hani.

61Á sömu stundu sneri Jesús sér við og leit til Péturs. Þá minntist Pétur orða Jesú: „Áður en haninn galar í dag, muntu þrisvar afneita mér.“ 62Þá gekk Pétur út fyrir og grét sárt.

63Verðirnir sem gættu Jesú, tóku nú að hæða hann. Þeir bundu fyrir augu hans, slógu hann með hnefunum og spurðu: „Hver sló þig núna, spámaður?“ 65Síðan smánuðu þeir hann á allan hátt.

66Í morgunsárið kom hæstiréttur Gyðinga saman. Í honum voru meðal annars æðstu prestarnir og aðrir trúarleiðtogar þjóðarinnar. Jesús var nú leiddur fram fyrir þetta ráð 67og spurður hvort hann héldi því fram að hann væri Kristur.

„Þó ég segi ykkur það“ svaraði hann, „þá trúið þið mér ekki og munuð ekki heldur leyfa mér að flytja mál mitt. 69En innan skamms mun ég, Kristur, setjast í hásæti við hlið almáttugs Guðs.“

70„Með þessu ertu að fullyrða að þú sért sonur Guðs,“ hrópuðu þeir.

„Já“ svaraði hann, „ég er hann.“

71„Við þurfum ekki fleiri vitni!“ æptu þeir. „Við höfum sjálfir heyrt hann segja það.“

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

A ceia da Páscoa e a prisão

  • O capítulo chama de Páscoa a Festa dos Pães Asmos, que se aproximava, e situa a refeição no dia em que o cordeiro da Páscoa devia ser sacrificado. Jesus enviou Pedro e João, ambos de Betsaida e ambos pescadores, para prepará-la; eles encontraram uma grande sala mobiliada no andar superior e, chegada a hora, ele se reclinou à mesa com os apóstolos.Fontes: o próprio texto bíblico · Simon Peter · John the Apostle
  • Judas, um dos Doze, é chamado Iscariotes, sobrenome explicado como homem de Queriote, e é identificado como filho de Simão. O capítulo diz que Satanás — nome que significa adversário ou acusador — entrou nele; Judas então combinou com os principais sacerdotes e os oficiais do templo entregar Jesus por dinheiro, longe da multidão.Fontes: o próprio texto bíblico · Judas Iscariot · Satan
  • Depois da refeição, Jesus foi, como de costume, ao Monte das Oliveiras, uma serra a leste de Jerusalém, assim chamada pelas oliveiras que cobrem suas encostas e separada da cidade pelo vale do Cedrom. Ele se afastou cerca de um tiro de pedra para além dos discípulos, ajoelhou-se e orou; então chegou uma multidão conduzida por Judas, e Jesus foi levado à casa do sumo sacerdote.Fontes: o próprio texto bíblico · Mount of Olives

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 10
  • Mount of Olives · 31.778, 35.246 · versículo 39

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.