Nations Bible

Lucas 20

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

1Dag nokkurn var Jesús að kenna og predika í musterinu. Þá lögðu æðstu prestarnir til atlögu við hann ásamt öðrum trúarleiðtogum og mönnum úr ráðinu.

2Þeir kröfðust þess að hann segði þeim með hvaða valdi hann hefði rekið musteriskaupmennina út.

3„Áður en ég svara ætla ég að spyrja ykkur annarrar spurningar,“ svaraði hann: 4„Var Jóhannes sendur af Guði eða starfaði hann aðeins í eigin mætti?“

5Þeir ráðguðust um þetta. „Ef við segjum að boðskapur hans hafi verið frá himnum, þá erum við fallnir í gildru, því að þá spyr hann: „Hvers vegna trúðuð þið honum þá ekki?“ 6Ef við segjum hins vegar að Jóhannes hafi ekki verið sendur af Guði, þá ræðst múgurinn á okkur, því allir eru vissir um að hann hafi verið spámaður.“ 7Að lokum svöruðu þeir: „Við vitum það ekki.“

8„Þá mun ég ekki heldur svara spurningu ykkar,“ sagði Jesús.

9Jesús sneri sér aftur að fólkinu og sagði því eftirfarandi sögu: „Maður plantaði víngarð, leigði hann nokkrum bændum og fór síðan til útlanda, þar sem hann bjó í nokkur ár. 10Þegar uppskerutíminn kom, sendi hann einn af mönnum sínum til búgarðsins til að sækja sinn hluta uppskerunnar. En leigjendurnir börðu hann og sendu hann tómhentan til baka. 11Þá sendi hann annan, en sama sagan endurtók sig: Hann var barinn og auðmýktur og sendur allslaus heim. 12Sá þriðji var einnig særður og enn fór á sömu leið. Honum var líka misþyrmt og hann rekinn í burtu.

13„Hvað á ég að gera“ sagði eigandi víngarðsins við sjálfan sig. „Já, nú veit ég það! Ég sendi son minn, sem ég elska, þeir munu áreiðanlega sýna honum virðingu.“

14En þegar leigjendurnir sáu son hans, sögðu þeir: „Nú er tækifærið. Þessi náungi á að erfa allt landið eftir föður sinn. Komum! Drepum hann, og þá eigum við þetta allt.“

15Þeir drógu hann út fyrir víngarðinn og drápu hann.

Hvað haldið þið nú að eigandinn hafi gert? 16Það skal ég segja ykkur. Hann mun koma og drepa þá alla og leigja öðrum víngarðinn.“

„Annað eins og þetta getur aldrei gerst,“ mótmæltu áheyrendur.

17Jesús horfði á þá og sagði: „Hvað á þá Biblían við þegar hún segir: „Steinninn, sem smiðirnir höfnuðu, var gerður að hornsteini.“ 18Og hann bætti við: „Hver sá sem hrasar um þann stein, mun limlestast og þeir sem undir honum verða, munu sundurkremjast.“

19Nú vildu æðstu prestarnir og trúarleiðtogarnir handtaka hann á stundinni, því að þeir skildu að sagan um víngarðsmennina átti við þá. Þeir voru einmitt þessir forhertu leigjendur í sögunni. En þeir óttuðust að fólkið stofnaði til óeirða ef þeir tækju hann. Þeir reyndu því að fá hann til að segja eitthvað sem hægt væri að ákæra hann fyrir til rómverska landstjórans, og fá hann handtekinn.

20Með þetta í huga sendu þeir til hans njósnara sem þóttust sakleysið uppmálað. 21Þeir sögðu við Jesú: „Herra, við vitum að þú ert heiðarlegur kennari. Þú segir alltaf sannleikann og veitir fræðslu um Guð, en hopar ekki fyrir andstæðingum þínum. 22Segðu okkur nú eitt – er rétt að greiða rómverska keisaranum skatt?“

23Jesús sá við bragðinu og svaraði: 24„Sýnið mér mynt. Hvers mynd og nafn er á henni?“

„Rómverska keisarans,“ svöruðu þeir.

25Þá sagði Jesús: „Greiðið keisaranum allt sem hans er – og gefið Guði það sem Guði ber.“

26Bragðið mistókst. Þeir undruðust svar hans og þögðu.

27Þá komu til hans nokkrir saddúkear. Þeir trúa hvorki á líf eftir dauðann né upprisu. Þeir sögðu:

„Lög Móse segja að deyi maður barnlaus, þá eigi bróðir hans að kvænast ekkjunni og börn þeirra skulu teljast börn látna mannsins og bera nafn hans. 29Við vitum um sjö bræður. Elsti bróðirinn kvæntist en dó barnlaus. 30Bróðir hans kvæntist þá ekkjunni og dó líka barnlaus. 31Þannig gekk þetta, koll af kolli, þar til allir sjö höfðu átt konuna, en dáið án þess að eiga börn. 32Að lokum dó konan líka. 33Nú spyrjum við: Hverjum þeirra verður hún gift í upprisunni, fyrst hún giftist þeim öllum?“

34„Hjónabandið er fyrir þá sem lifa á jörðinni,“ svaraði Jesús, „en þeir sem verðskulda guðsríki ganga ekki í hjónaband við upprisuna, 36og þeir munu aldrei deyja. Þeir eru synir Guðs og eru eins og englarnir. Þeir hafa risið upp frá dauðum til nýs lífs.

37Hvers vegna efist þið um upprisuna? Sjálfur Móse talar um hana. Hann lýsir því hvernig Guð birtist honum í brennandi runna. Hann talar um að Guð sé „Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs.“ Ef við segjum að Drottinn sé Guð einhvers manns, þá þýðir það að sá maður er lifandi en ekki dauður! Því Guð er sá sem gefur lífið.“

39„Þetta er vel sagt, herra,“ sögðu nokkrir lögvitringar sem þar stóðu. 40En fleiri urðu spurningarnar ekki, því þeir þorðu ekki að spyrja hann neins!

41Nú lagði Jesús spurningu fyrir þá og sagði: „Af hverju segið þið að Kristur sé afkomandi Davíðs konungs? 42Davíð sagði í Sálmunum: „Guð sagði við minn Drottin: „Sittu mér til hægri handar, þar til ég legg óvini þína að fótum þér.“ “ 44Hvernig getur Kristur verið hvort tveggja í senn, sonur Davíðs og Drottinn Davíðs?“

45Síðan sneri hann sér að lærisveinum sínum og sagði við þá, svo að fólkið heyrði: 46„Gætið ykkar á þessum fræðimönnum! Þeir njóta þess að ganga um göturnar í fínum fötum og láta fólk hneigja sig fyrir sér. Þeim finnst vænt um heiðurssætin í samkomuhúsum og hátíðarveislum. 47En meðan þeir þylja sínar löngu bænir með helgisvip, eru þeir jafnvel að hugsa upp ráð til að hafa fé af ekkjum. Guð mun því dæma þessa menn til hinnar þyngstu refsingar.“

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Debates nos pátios do templo

  • Quando lhe perguntam com que autoridade age, Jesus pergunta se o batismo de João vinha do céu ou dos homens. Os líderes não respondem: se disserem que vinha do céu, ele pode perguntar por que não creram nele; se disserem que vinha dos homens, temem que o povo os apedreje, pois a multidão está convencida de que João era profeta. O Easton's Bible Dictionary (1897) descreve João Batista como de linhagem sacerdotal — seu pai, Zacarias, sacerdote do turno de Abias, e sua mãe, Isabel, das filhas de Arão — e observa que a missão dele foi objeto de profecia.Fontes: o próprio texto bíblico · John the Baptist
  • Alguns saduceus, que dizem não haver ressurreição, perguntam de quem seria esposa uma mulher se, como Moisés escreveu, sete irmãos a tivessem desposado, um após o outro, para suscitar descendência. Jesus aponta a passagem da sarça ardente, em que Moisés chama o Senhor de Deus de Abraão, Deus de Isaque e Deus de Jacó, e afirma que Deus é Deus dos vivos. O Easton's Bible Dictionary chama Abraão, filho de Terá, de pai de uma multidão; Isaque, de único filho de Abraão com Sara; e Jacó, também chamado Israel, de segundo gêmeo de Isaque e Rebeca, aquele que segue nos calcanhares de outro.Fontes: o próprio texto bíblico · Abraham · Isaac · Jacob (Israel)
  • Jesus pergunta como o Cristo pode ser filho de Davi se o próprio Davi, no livro dos Salmos, o chama de Senhor. O Easton's Bible Dictionary identifica Davi como o oitavo e mais novo filho de Jessé, cidadão de Belém, que no início apascentava as ovelhas do pai nas terras altas de Judá.Fontes: o próprio texto bíblico · David

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.