Nations Bible

Lucas 1

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Sobre este livro

Sobre Lucas

  • O Dicionário Bíblico de Easton (1897) apresenta o evangelista Lucas como um gentio; a data e as circunstâncias de sua conversão são desconhecidas. Segundo a própria declaração dele, observa Easton, ele não foi testemunha ocular nem ministro da palavra desde o princípio. Easton considera provável que fosse médico em Trôade, convertido ali por Paulo, a quem então se uniu.Fontes: Easton: Luke
  • Esse dicionário não data o Evangelho. Situa Lucas com Paulo em Filipos, depois como companheiro na viagem de Filipos a Jerusalém, ausente durante as prisões em Jerusalém e Cesareia, e de novo presente quando Paulo partiu para Roma, permanecendo até o fim da primeira prisão; a última menção do médico amado está em 2 Timóteo 4:11.Fontes: Easton: Luke
  • Sob os romanos, no tempo de Jesus, a Judeia era a mais meridional das três divisões da Palestina e parte da província da Síria. Pôncio Pilatos, sexto procurador da Judeia de 26 a 36 d.C., tinha sede em Cesareia e subia com frequência a Jerusalém; seu governo abrangeu os ministérios de João Batista e de Jesus. Herodes Antipas, filho de Herodes com Malthace, é nomeado na narrativa de Lucas.Fontes: Judea · Pontius Pilate · Herod Antipas
  • A narrativa inicial de Lucas trata de João Batista, de ascendência sacerdotal: seu pai, Zacarias, era sacerdote da turma de Abias, e sua mãe, Isabel, era das filhas de Arão; o nascimento de João ocorreu seis meses antes do de Jesus. Maria, esposa de José, da tribo de Judá e da linhagem de Davi, morava em Nazaré quando o anjo Gabriel anunciou que ela seria a mãe do Messias; depois visitou sua prima Isabel. O verbete sobre Maria afirma que a genealogia dela é dada em Lucas 3.Fontes: John the Baptist · Mary (Mother of Jesus) · Nazareth
  • Easton cita muitas passagens nos escritos de Lucas e nas cartas de Paulo como indício da extensão e da exatidão do conhecimento médico de Lucas. Depois que Jesus foi expulso de Nazaré, Cafarnaum, cidade da Galileia não mencionada no Antigo Testamento, tornou-se a sua própria cidade e cenário de muitos atos de sua vida. A Galileia havia muito era conhecida como Galileia dos gentios.Fontes: Easton: Luke · Capernaum · Galilee

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

1Heiðraði Þeófílus.

Nú þegar hafa verið skrifaðar allmargar frásögur um Krist, byggðar á heimildum postulanna og annarra sjónarvotta. 3En ég taldi rétt að rannsaka þessar heimildir á ný frá upphafi til enda, og nú sendi ég þér árangur þeirra nákvæmu athugana sem ég hef gert. 4Þetta geri ég til að fullvissa þig um sannleiksgildi þess sem þú hefur heyrt hjá öðrum.

Engillinn birtist Sakaría

5Frásaga mín hefst á prestinum Sakaría, sem var uppi á dögum Heródesar konungs í Júdeu. Sakaría var úr flokki Abía, en það var einn af mörgum flokkum musterisþjónanna. Elísabet, kona hans, var einnig af gyðinglegri prestaætt; afkomandi Arons. 6Þau hjón voru bæði guðrækin og leituðust við að halda boðorð Guðs óaðfinnanlega. 7Þau voru barnlaus – Elísabet gat ekki átt börn – og auk þess orðin roskin.

8Dag nokkurn þegar Sakaría var að sinna störfum sínum í musterinu – flokkur hans var einmitt á vakt þá vikuna – féll það í hlut hans að fara inn í musterið og brenna reykelsi frammi fyrir Drottni. 10Eins og ávallt er reykelsisfórnin fór fram, stóð fjöldi fólks fyrir utan musterið á bæn.

11Allt í einu sá Sakaría engil standa hægra megin við reykelsisaltarið. Honum varð hverft við og hann varð mjög hræddur. 13Engillinn sagði: „Sakaría, vertu óhræddur! Ég kem til að segja þér að Guð hefur heyrt bæn þína. Konan þín, hún Elísabet, mun fæða þér son! Þú skalt láta hann heita Jóhannes. 14Fæðing hans mun verða ykkur báðum mikið gleðiefni og margir munu samgleðjast ykkur, 15því hann á eftir að verða einn af hetjum Guðs. Hann má aldrei snerta vín né sterka drykki, en þess í stað mun hann fyllast heilögum anda, meira að segja áður en hann fæðist! 16Hann mun snúa mörgum Gyðingum til Drottins, Guðs þeirra. 17Hann verður mikilmenni og máttugur eins og Elía, hinn forni spámaður. Hann mun koma á undan Kristi, búa fólkið undir komu hans og kenna því að elska Drottin eins og forfeður þess gerðu, og lifa sem trúað fólk.“ 18Þá sagði Sakaría við engilinn: „Já, en þetta er útilokað! Ég er orðinn gamall og konan mín líka.“ 19Engillinn svaraði: „Ég er Gabríel! Ég stend frammi fyrir hásæti Guðs, sem sendi mig til að flytja þér þessar góðu fréttir 20En fyrst þú trúðir mér ekki, munt þú verða mállaus þangað til barnið er fætt. Ég ábyrgist að orð mín munu rætast á sínum tíma.“

21Fólkið beið eftir Sakaría og undraðist hve honum dvaldist í musterinu. 22Þegar hann kom út, gat hann ekkert sagt, og fólkið skildi af látbragði hans að hann hlyti að hafa séð sýn inni í musterinu. 23Eftir þetta dvaldist hann í musterinu sinn tíma og fór síðan heim. 24Stuttu síðar varð Elísabet kona hans þunguð en hún leyndi því fyrstu fimm mánuðina.

25„En hvað Drottinn er góður að leysa mig undan þeirri skömm að geta ekki átt barn!“ hrópaði hún.

Fæðing Jesú sögð fyrir

26Mánuði síðar sendi Guð engilinn Gabríel til meyjar sem María hét og bjó í þorpinu Nasaret í Galíleu. Hún var trúlofuð manni að nafni Jósef og var hann af ætt Davíðs konungs. 28Gabríel birtist henni og sagði: „Sæl, þú hin útvalda! Drottinn er með þér!“

29María varð undrandi og reyndi að skilja hvað engillinn ætti við. 30„Vertu ekki hrædd, María,“ sagði engillinn, „Guð ætlar að blessa þig ríkulega. 31Innan skamms munt þú verða barnshafandi og eignast dreng, sem þú skalt nefna Jesú. 32Hann mun verða mikill og kallast sonur Guðs. Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs konungs, ættföður hans, 33og hann mun ríkja yfir Ísrael að eilífu. Á ríki hans mun enginn endir verða!“

34„Hvernig má það vera?“ spurði María, „ég hef ekki karlmanns kennt.“ 35Engillinn svaraði: „Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur Guðs mun umlykja þig, barnið þitt verður því heilagt sonur Guðs. 36Nú eru sex mánuðir síðan Elísabet frænka þín óbyrjan, eins og fólk kallaði hana – varð þunguð í elli sinni! 37Guði er ekkert um megn.“ 38Og María sagði: „Ég vil hlýða og þjóna Drottni. Verði allt eins og þú sagðir.“ Þá hvarf engillinn.

39Nokkrum dögum síðar fór María til fjallaþorpsins í Júdeu þar sem Sakaría bjó og heimsótti Elísabetu. 41Þegar María heilsaði, tók barn Elísabetar viðbragð í kviði hennar og hún fylltist heilögum anda. 42Hún hrópaði upp í gleði sinni og sagði við Maríu: „Guð hefur blessað þig umfram allar aðrar konur, og barni þínu er ætluð hin æðsta blessun hans. 43Hvílíkur heiður fyrir mig að móðir Drottins míns skuli heimsækja mig. 44Um leið og þú komst inn og heilsaðir mér tók barnið mitt viðbragð af gleði! 45Þú trúðir að Guð mundi standa við orð sín og þess vegna hefur hann ríkulega blessað þig.“ 46Og María sagði: „Ó, ég lofa Drottin! 47Ég gleðst í Guði, frelsara mínum. 48Hann mundi eftir lítilmótlegri ambátt sinni og héðan í frá munu allar kynslóðir tala um hvernig Guð blessaði mig. 49Hann, hinn voldugi og heilagi, hefur gert mikla hluti fyrir mig. 50Miskunn hans við þá sem trúa á hann, varir frá kynslóð til kynslóðar.

51Hann hefur unnið stórvirki með mætti sínum og tvístrað hinum stoltu og drambsömu. 52Hann hefur steypt höfðingjum úr hásætum og upphafið auðmjúka. 53Hann hefur mettað hungraða gæðum og látið ríka fara tómhenta frá sér. 54Hann hefur hjálpað þjóni sínum, Ísrael, og ekki gleymt loforðum sínum. 55Hann lofaði feðrum okkar – Abraham og afkomendum hans – að sýna þeim miskunn að eilífu.“

56Eftir þetta dvaldist María hjá Elísabetu í þrjá mánuði, en að því búnu hélt hún heim.

Jóhannes skírari fæðist

57Þegar meðgöngutíma Elísabetar lauk, fæddi hún son. 58Vinir og ættingjar fréttu fljótt hve góður Drottinn hafði verið Elísabetu og samglöddust henni.

59Þegar barnið var átta daga gamalt komu þeir til að vera viðstaddir umskurnina. Allir gerðu ráð fyrir að drengurinn yrði látinn heita Sakaría eftir föður sínum, 60en Elísabet sagði: „Nei, hann á að heita Jóhannes.“

61„Hvers vegna?“ spurði fólkið undrandi, „það er enginn með því nafni í allri fjölskyldunni!“ 62Faðir barnsins var síðan spurður með bendingum hvað barnið ætti að heita.

63Hann bað um spjald og skrifaði á það, öllum til mikillar furðu: „Nafn hans er Jóhannes.“ 64Á sama andartaki fékk hann málið og lofaði Guð. 65Nágrannarnir urðu undrandi og fréttin um þetta barst um alla fjallabyggð Júdeu. 66Þeir sem heyrðu þetta, veltu því vandlega fyrir sér og sögðu: „Hvað skyldi verða úr þessu barni? Hönd Drottins er greinilega með því á sérstakan hátt.“

67Sakaría, faðir drengsins, fylltist heilögum anda og spáði: 68„Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því hann hefur vitjað þjóðar sinnar til að bjarga henni. 69Hann gefur okkur máttugan frelsara af ætt Davíðs konungs, þjóns síns, 70eins og hinir heilögu spámenn höfðu sagt fyrir, 71til að frelsa okkur undan óvinum okkar og öllum þeim sem hata okkur.

72Hann sýndi forfeðrum okkar miskunn og minntist síns heilaga loforðs, sem hann gaf Abraham, að frelsa okkur frá óvinum okkar, 75helga okkur og gera okkur hæf til að dvelja hjá sér að eilífu.

76Þú, sonur minn, verður kallaður spámaður almáttugs Guðs, því þú munt ryðja Kristi veg. 77Þú munt veita fólkinu þekkingu á hjálpræðinu og fyrirgefningu syndanna. 78Þessu mun kærleikur Guðs og miskunn koma til leiðar, hann sendir okkur ljós sitt. 79Það mun lýsa þeim er sitja í myrkri og skugga dauðans, og leiða okkur á friðarveg.“

80Og drengurinn óx og Guð styrkti hann. Þegar hann hafði aldur til, fór hann út í óbyggðina og dvaldist þar þangað til hann hóf starf sitt meðal þjóðarinnar.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Os anúncios de João e de Jesus

  • Zacarias servia na divisão sacerdotal de Abias, a oitava das vinte e quatro turmas em que Davi havia repartido os sacerdotes. Só quatro desses grupos voltaram do exílio e foram então redistribuídos sob os nomes antigos. Os sacerdotes serviam no templo duas vezes por ano, durante uma semana de cada vez, e todos os dias se lançavam sortes para a solene oferta do incenso.Fontes: Zacharias · o próprio texto bíblico
  • O anjo que estava à direita do altar do incenso disse chamar-se Gabriel e afirmou que permanece na presença de Deus. O mesmo nome designa o anjo enviado a Daniel para explicar a visão do carneiro e do bode e transmitir a predição das setenta semanas, e foi Gabriel quem também anunciou a Maria que ela teria um filho.Fontes: Gabriel · o próprio texto bíblico
  • Isabel era descendente de Arão. Maria, da tribo de Judá e da linhagem de Davi, estava ligada a ela por casamento e foi de Nazaré, na Galileia, cidade que não é mencionada no Antigo Testamento, visitá-la na região montanhosa de Judá.Fontes: Elisabeth · Mary (Mother of Jesus) · Nazareth · o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Judea · Hoje: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículos 5, 39, 65
  • Holy Place · Hoje: on Mount Moriah · 31.778, 35.236 · versículos 9, 21, 22
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 26
  • Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 26

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.