João 8
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
Hvar eru ákærendurnir?
1Jesús fór nú til Olíufjallsins, 2en snemma næsta morgun var hann aftur kominn í musterið. Fólkið þyrptist að og hann settist niður og ávarpaði það. 3Á meðan hann var að tala, komu farísearnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar með konu sem staðin hafði verið að því að drýgja hór. Þeir stilltu henni upp í allra augsýn.
4„Kennari,“ sögðu þeir við Jesú. „Þessi kona var staðin að því að drýgja hór. 5Lög Móse segja að slíkar konur eigi að grýta. Hvað viltu segja um það?“
6Ætlun þeirra var að fá hann til að segja eitthvað sem þeir gætu ákært hann fyrir. Þá beygði Jesús sig niður og skrifaði í sandinn með fingrunum. 7Á meðan héldu hinir áfram að krefja hann svars. Jesús stóð upp og sagði: „Allt í lagi. Grýtið hana, en sá ykkar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum!“
8Síðan kraup hann aftur niður og hélt áfram að skrifa í sandinn, 9en leiðtogarnir laumuðust í burtu, fyrst sá elsti og síðan einn af öðrum. Að lokum var Jesús þar einn ásamt konunni og mannfjöldanum.
10Jesús stóð þá upp og spurði konuna: „Hvar eru þeir? Ákærði þig enginn?“
11„Nei, herra, enginn,“ svaraði hún.
„Ég ákæri þig ekki heldur,“ sagði Jesús, „farðu og syndgaðu ekki framar.“
12Seinna, þegar Jesús var að ávarpa mannfjöldann, sagði hann: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki staulast í myrkrinu, því ég mun lýsa honum veginn til eilífs lífs.“
13„Þetta er lygi!“ hrópuðu farísearnir. „Þú ert alltaf að hrósa sjálfum þér.“
14„Það er satt sem ég sagði,“ svaraði Jesús, „enda þótt ég hafi sagt þetta um sjálfan mig, því ég veit hvaðan ég kom og hvert ég fer, en það vitið þið ekki. 15Þið dæmið mig án þess að rannsaka mál mitt fyrst. Ég mun ekki dæma ykkur strax, 16en þótt ég gerði það, þá væri sá dómur réttlátur að öllu leyti, því faðir minn, sem sendi mig, er með mér. 17Lög ykkar segja að sé vitnisburður tveggja manna samhljóða, sé hann tekinn gildur. 18Ég er annað vitnið og hitt er faðir minn sem sendi mig.“
19„Hvar er faðir þinn?“ spurðu þeir.
„Þið þekkið mig ekki og því þekkið þið ekki heldur föður minn,“ svaraði Jesús. „Ef þið þekktuð mig, þá mynduð þið einnig þekkja hann.“ 20Jesús mælti þetta hjá fjárhirslunni í musterinu. En hann var ekki handtekinn, því að tími hans var enn ekki kominn.
Trúuðum fjölgar og rökræður aukast
21Seinna sagði Jesús aftur við faríseana: „Ég fer burt og þið munuð leita mín og deyja í syndum ykkar, því að þið getið alls ekki komist þangað sem ég fer.“
22Þá sögðu þeir: „Ætlar hann að fremja sjálfsmorð? Hvað á hann við með þessu: Þið getið ekki komist þangað sem ég fer?“
23Jesús sagði því við þá: „Þið komið að neðan, en ég að ofan. Þið eruð af þessum heimi en ekki ég, 24og því sagði ég að þið mynduð deyja í syndum ykkar, aðskildir frá Guði. Ef þið trúið ekki að ég sé Kristur, sonur Guðs, þá munuð þið deyja í syndum ykkar.“
25„Segðu okkur hver þú ert,“ sögðu þeir.
„Ég hef margsinnis sagt ykkur það,“ svaraði hann. 26„Ég gæti dæmt ykkur fyrir margt og frætt ykkur um margt, en ég vil það ekki, því ég segi aðeins það sem sá er sendi mig biður mig að segja og hann er sannleikurinn.“ 27Þeir skildu ekki enn að hann var að tala við þá um Guð.
28Jesús sagði því: „Þegar þið hafið krossfest mig, þá munuð þið skilja að ég er Kristur og að það sem ég hef talað, er ekki frá eigin brjósti heldur frá föðurnum. 29Sá sem sendi mig er með mér – hann hefur ekki yfirgefið mig því ég geri aðeins það sem honum er þóknanlegt.“
30Eftir þessi orð Jesú, trúðu margir leiðtoganna að hann væri Kristur.
Jesús sagði við þá: „Ef þið farið eftir orðum mínum, þá eruð þið sannir lærisveinar mínir, 32og þið munuð þekkja sannleikann og sannleikurinn mun gera ykkur frjálsa.“
33„En við erum afkomendur Abrahams,“ sögðu þeir, „og við höfum aldrei verið þrælar nokkurs manns. Hvað áttu við með orðinu „frjáls“?“
34„Þið eruð allir þrælar syndarinnar,“ svaraði Jesús. 35„Þrælar hafa engin réttindi, en sonurinn hefur öll réttindi. 36Ef sonurinn gerir ykkur frjálsa verðið þið sannarlega frjálsir. 37Ég veit vel að þið eruð afkomendur Abrahams en samt reyna sumir ykkar að lífláta mig, af því að orð mín fá ekki rúm hjá ykkur. 38Ég hef áður sagt ykkur hvað ég sá þegar ég var hjá föður mínum, en þið viljið aðeins fara að ráðum föður ykkar.“
39„Abraham er faðir okkar,“ svöruðu þeir.
„Nei!“ sagði Jesús, „ef svo væri, færuð þið að ráðum hans. 40En nú viljið þið hins vegar lífláta mig, einungis vegna þess að ég sagði ykkur sannleikann, sem ég heyrði hjá Guði – slíkt mundi Abraham aldrei gera! 41Þegar þið gerið slíka hluti, þá eruð þið að hlýðnast ykkar raunverulega föður.“
„Við erum ekki óskilgetnir,“ svöruðu þeir. „Guð er okkar eini og sanni faðir.“
42„Ef svo væri,“ sagði Jesús, „þá munduð þið elska mig, því að hingað kom ég frá Guði. Það var hann sem sendi mig. Ég er ekki hér á eigin vegum. 43Hvers vegna skiljið þið mig ekki? Jú, það er vegna þess að þið eruð hindraðir af Satan. 44Hann er faðir ykkar og þið njótið þess að framkvæma illvirki hans. Hann var morðingi frá öndverðu og hataði sannleikann – það finnst ekki snefill af sannleika í honum. Honum er fullkomlega eðlilegt að ljúga. Hann er faðir lyginnar, 45og það er einmitt ástæða þess að þið trúið mér ekki þegar ég segi ykkur sannleikann.
46Getur nokkur ykkar sannað á mig hina minnstu synd? (Nei, enginn!) Nú segi ég ykkur sannleikann, en hvers vegna trúið þið mér ekki? 47Sá sem á Guð að föður, tekur með gleði á móti orði hans. Ef svo er ekki með ykkur, þá sýnir það að þið eruð ekki börn hans.“
48„Þú ert Samverji, útlendingur og djöfull!“ hvæstu leiðtogarnir. „Það er langt síðan við sögðum að í þér væri illur andi!“ 49„Nei,“ svaraði Jesús, „það er enginn illur andi í mér, því ég heiðra föður minn og þess vegna lítilsvirðið þið mig. 50Ég hef engan áhuga á að upphefja sjálfan mig, en Guð vill upphefja mig og hann mun dæma þá sem hafna mér.
51Ég segi ykkur satt: Sá sem hlýðir orðum mínum, mun aldrei að eilífu sjá dauðann.“
52„Nú vitum við að þú hefur illan anda,“ sögðu leiðtogarnir, „því að Abraham dó og sama er að segja um spámennina, en nú segir þú að sá sem hlýði þér, muni aldrei deyja! 53Ertu þá meiri en Abraham forfaðir okkar? Því að hann dó. Og ertu meiri en spámennirnir sem dóu? Hver heldurðu eiginlega að þú sért?“ 54Þá svaraði Jesús: „Það væri ekki til neins fyrir mig að hrósa mér, en það er faðir minn – sem þið haldið fram að sé ykkar Guð – sem segir öll þessi yndislegu orð um mig, 55en hann þekkið þið ekki. Ég þekki hann! Ef ég segði að ég þekkti hann ekki, þá væri ég að ljúga eins og þið! Þegar ég segi að ég þekki hann og hlýði honum í öllu, þá er ég að segja sannleikann. 56Abraham faðir ykkar hlakkaði til að sjá minn dag. Hann vissi að ég var að koma og það gladdi hann.“
57Þá sögðu leiðtogarnir: „Þú ert ekki einu sinni orðinn fimmtugur, en samt segist þú hafa séð Abraham!“
58„Ég segi ykkur satt,“ svaraði Jesús, „ég var til þegar Abraham fæddist!“
59Þegar leiðtogarnir heyrðu þetta, tóku þeir upp steina til að grýta hann. En þeir misstu sjónar af honum, því hann gekk burt frá þeim og yfirgaf musterið.

Você sabia?
Luz, lei e Abraão
- João 8 começa com Jesus indo ao monte das Oliveiras e voltando, de manhã cedo, aos pátios do templo, onde se senta e ensina o povo que se reúne. O monte das Oliveiras é uma serra a leste de Jerusalém, separada da cidade pelo vale do Cedrom, e recebe esse nome por causa das oliveiras que cobrem suas encostas.Fontes: o próprio texto bíblico · Mount of Olives
- Escribas e fariseus trazem uma mulher surpreendida em adultério e perguntam a Jesus o que ele diz sobre a ordem de Moisés, na Lei, de apedrejar tal mulher, buscando pô-lo à prova e obter base para acusá-lo. Ainda nos pátios do templo, perto do tesouro, Jesus diz mais tarde: "Eu sou a luz do mundo". Uma lista datada de eventos situa os dois episódios em 29 d.C., cada um com duração de um dia.Fontes: o próprio texto bíblico · Woman Caught in Adultery · Light of the World/I am discourse
- Quando Jesus diz que a verdade os libertará, seus ouvintes respondem que são descendentes de Abraão e que nunca foram escravos de ninguém. Abraão é chamado "pai de uma multidão"; era filho de Terá e herdeiro das promessas. Depois que Jesus declara "antes de Abraão nascer, eu sou", eles apanham pedras para atirar nele.Fontes: o próprio texto bíblico · Abraham
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
- Mount of Olives · 31.778, 35.246 · versículo 1
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org