João 6
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
Jesús mettar fimm þúsundir
1Eftir þetta fór Jesús til landsvæðisins hinum megin Galíleuvatnsins, sem kennt er við Tíberías, 2og fylgdi honum gífurlegur mannfjöldi. Margt af þessu fólki var pílagrímar á leið til Jerúsalem á páskahátíðina, en það langaði til að sjá Jesú lækna hina sjúku og því fylgdi það honum hvert fótmál.
Jesús gekk upp á fjallið ásamt lærisveinum sínum og settist, og sá þá að mannfjöldinn var að koma.
Hann sneri sér að Filippusi og sagði: „Filippus, hvar getum við keypt brauð til að gefa fólkinu að borða?“ 6(Jesús hafði ákveðið með sjálfum sér hvað hann ætlaði að gera, en með þessu var hann að reyna Filippus.)
7Filippus svaraði: „Þótt við keyptum ekki nema handa hluta þeirra, mundi það kosta mikla peninga!“
8Þá sagði Andrés, bróðir Símonar Péturs: „Hér er ungur drengur með fimm byggbrauð og tvo fiska, en það dugar að vísu skammt handa öllum þessum fjölda.“
10„Látið fólkið setjast niður,“ sagði Jesús. Þá settist allt fólkið niður í grasigróna brekkuna og voru karlmennirnir einir um fimm þúsund. 11Því næst tók hann brauðin, flutti þakkarbæn og skipti þeim meðal fólksins, og fengu allir eins mikið og þeir vildu.
12Þegar allir höfðu borðað nægju sína sagði Jesús: „Tínið nú saman leifarnar svo að ekkert fari til spillis.“ 13Það var gert og afgangs urðu tólf sneisafullar körfur!
14Þegar fólkinu varð ljóst hvílíkt kraftaverk hafði gerst hrópaði það: „Hann er áreiðanlega spámaðurinn, sem við höfum beðið eftir!“
15Þegar Jesús sá að fólkið ætlaði að taka hann með valdi og gera hann að konungi, gekk hann enn hærra upp á fjallið, einn síns liðs.
Jesús gengur á vatninu
16Um kvöldið fóru lærisveinarnir niður að vatninu og biðu hans. 17Þegar myrkrið skall á og Jesús var enn ókominn, stigu þeir í bátinn, héldu út á vatnið og stefndu til Kapernaum. 18En á leiðinni hvessti skyndilega svo vatnið varð mjög úfið. Þeir höfðu róið um sex kílómetra þegar þeir sáu Jesú koma gangandi í átt til sín. Þeir urðu skelkaðir, 20en þá kallaði hann til þeirra og sagði: „Verið óhræddir, þetta er ég!“ 21Þeir tóku hann upp í bátinn og um leið sáu þeir að þeir voru komnir þangað sem þeir ætluðu sér.
Brauð lífsins
22Morguninn eftir fór fólkið að safnast saman á ströndinni hinum megin vatnsins (í von um að hitta Jesú), því það vissi að hann hafði komið þangað með lærisveinum sínum, og að lærisveinarnir höfðu síðan farið á sínum bát, en skilið Jesú eftir. Þarna voru margir smábátar frá Tíberías. 24Þegar fólkinu varð ljóst að hvorki Jesús né lærisveinar hans voru þar, þá steig það í bátana og fór yfir vatnið til Kapernaum, til að leita hans.
25Þegar fólkið kom þangað og fann hann, spurði það: „Herra, hvernig komstu hingað?“
26Jesús svaraði: „Ég segi ykkur satt, þið leitið mín vegna þess að ég gaf ykkur að borða, en ekki vegna þess að þið trúið á mig. 27Hugsið ekki um það sem eyðist, eins og til dæmis mat. Leitið heldur eilífa lífsins sem ég, Kristur, get gefið ykkur, og einmitt þess vegna sendi Guð mig hingað.“
28„Hvað eigum við þá að gera til að þóknast Guði?“ spurði fólkið.
29„Guðs vilji er að þið trúið þeim sem hann sendi,“ svaraði Jesús.
30„Þá verður þú að sýna okkur fleiri kraftaverk, ef þú vilt að við trúum því að þú sért Kristur,“ svaraði fólkið. „Gefðu okkur ókeypis brauð á hverjum degi eins og forfeður okkar fengu á leið sinni yfir eyðimörkina. Það stendur í Biblíunni að Móse hafi gefið þeim brauð frá himni.“
32„Það var ekki Móse, sem gaf þeim það,“ svaraði Jesús, „heldur faðir minn. En nú vill hann gefa ykkur hið sanna brauð af himni. 33Brauð Guðs er sá sem Guð sendi frá himni og gefur heiminum líf.“
34„Herra,“ sögðu þeir, „gefðu okkur slíkt brauð á hverjum degi!“
35„Ég er brauð lífsins,“ svaraði Jesús, „þann mun ekki hungra sem til mín kemur og þann aldrei þyrsta sem á mig trúir. 36Ég segi enn: Vandi ykkar er að þið trúið ekki á mig þótt þið hafið séð mig. 37Allir þeir sem faðirinn gefur mér, koma til mín, og þann sem til mín kemur, mun ég alls ekki reka burt. 38Ég kom hingað frá himni til að gera vilja Guðs sem sendi mig, en ekki minn eigin vilja. 39Vilji Guðs er sá að ég týni ekki neinum þeirra sem hann hefur gefið mér, heldur veki þá til eilífs lífs á dómsdegi. 40Það er vilji föður míns að allir sem sjá soninn og trúa á hann, eignist eilíft líf og að ég reisi þá upp á efsta degi.“
41Þegar Gyðingarnir heyrðu hann segja að hann væri brauð frá himni, gagnrýndu þeir hann sín á milli og hrópuðu: 42„Ha? Hvað á hann við? Þetta er bara hann Jesús Jósefsson! Við þekkjum föður hans og móður. Hvernig getur hann sagt að hann hafi komið niður af himni?“
43„Verið ekki með þennan kurr,“ svaraði Jesús. 44„Enginn getur komið til mín, nema faðirinn, sem sendi mig, leiði hann og á efsta degi mun ég reisa hann upp frá dauðum. 45Svo segir Biblían um þá: „Guð mun sjálfur fræða þá.“ Þeir sem hlusta á föðurinn og læra sannleikann hjá honum, munu dragast að mér. 46Ekki svo að skilja að þeir sjái föðurinn í raun og veru, ég er sá eini sem það hef gert.
47Ég segi ykkur satt: „Hver sem trúir á mig, mun þegar í stað eignast eilíft líf!“ 48Ég er brauð lífsins! Það var ekkert líf í brauðinu sem féll af himni og forfeður ykkar átu í eyðimörkinni – þeir dóu allir um síðir. Það er aðeins til eitt himneskt brauð og þeir sem þess neyta munu ekki deyja. Ég er þetta lifandi brauð, sem kom niður af himni, og sá sem neytir þess mun lifa að eilífu. Þetta brauð er ég sjálfur – hold mitt sem gefið er heiminum til lífs.“
52Þá tóku Gyðingarnir að þrátta sín á milli um það hvað hann ætti við og spurðu: „Hvernig getur þessi maður gefið okkur hold sitt að borða?“
53Jesús sagði því aftur: „Ég segi ykkur satt og legg á það áherslu: Þið getið ekki átt eilíft líf í ykkur, nema þið etið hold Krists og drekkið blóð hans. 54Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt hefur eilíft líf, og ég mun vekja hann upp á efsta degi. 55Hold mitt er sönn fæða og blóð mitt sannur drykkur. 56Hver sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, er í mér og ég í honum. 57Ég lifi í krafti föðurins, hans sem lifir, og á sama hátt munu þeir lifa sem hlutdeild eiga í mér. 58Ég er hið sanna brauð sem kom niður af himni og hver sem etur þetta brauð, mun lifa að eilífu en ekki deyja eins og forfeður ykkar, sem átu brauð frá himni.“ 59Þessa ræðu hélt Jesús í samkomuhúsinu í Kapernaum. 60Þá sögðu sumir lærisveina hans: „Þetta var hörð ræða! Hver getur hlýtt á annað eins?“
61Jesús vissi með sjálfum sér að lærisveinarnir voru óánægðir og sagði því við þá: „Hneykslar þetta ykkur? 62Hvað mynduð þið segja ef þið sæjuð mig, Krist, fara aftur til himins? 63Það er aðeins heilagur andi sem getur lokið þessu upp fyrir ykkur, þið getið aldrei skilið það af eigin mætti. Nú hef ég sagt ykkur hvernig þið getið eignast þetta sanna líf, 64en sumir ykkar trúa mér samt ekki.“ (Jesús vissi frá byrjun hverjir það voru sem ekki trúðu, og hann vissi einnig hver mundi svíkja hann.)
65Hann bætti við og sagði: „Þetta átti ég við þegar ég sagði að enginn gæti komið til mín nema faðirinn leiddi hann til mín.“
66Eftir þessi orð Jesú, fóru margir lærisveina hans frá honum fyrir fullt og allt.
67Jesús sagði þá við þá tólf: „En þið, ætlið þið líka að fara?“
68Símon varð fyrir svörum: „Meistari, hvert ættum við að fara? Þú ert sá eini sem hefur orð eilífs lífs, 69við trúum þér og vitum að þú ert hinn heilagi sonur Guðs.“
70Þá sagði Jesús: „Ég útvaldi ykkur tólf, en einn ykkar er djöfull.“ 71Hér átti hann við Júdas, son Símonar Ískaríot, einn þeirra tólf, en sá varð síðar til þess að svíkja hann.

Você sabia?
O pão da vida
- Neste capítulo, João chama o lago de Mar da Galileia e também de Mar de Tiberíades. O Dicionário Bíblico de Easton descreve-o com doze milhas e meia de comprimento e de quatro a sete milhas e meia de largura, e com a superfície 682 pés abaixo do Mediterrâneo. De Tiberíades, na margem ocidental, diz-se que foi fundada por Herodes Antipas no ano 16 d.C. e que recebeu o nome em honra do imperador Tibério; alguns barcos dessa cidade aportaram perto do lugar onde o povo tinha comido o pão.Fontes: o próprio texto bíblico · Sea of Galilee · Tiberias
- Naquela noite, os discípulos partiram de barco rumo a Cafarnaum, e no dia seguinte a multidão atravessou e encontrou Jesus ali. Ele proferiu o ensinamento sobre o pão da vida na sinagoga de Cafarnaum. O Dicionário Bíblico de Easton observa que a cidade, não mencionada no Antigo Testamento, tornou-se a própria cidade de Jesus depois de ele ser expulso de Nazaré e foi cenário de muitos episódios do seu ministério.Fontes: o próprio texto bíblico · Capernaum
- Quando a multidão se aproximava, Jesus perguntou a Filipe onde poderiam comprar pão, pergunta que o relato diz ter sido para pô-lo à prova, pois Jesus já sabia o que ia fazer. Filipe, como André e Pedro, era de Betsaida; respondeu que duzentos denários não comprariam o bastante para cada pessoa receber um pedaço pequeno. André, irmão de Pedro, indicou então um menino com cinco pães de cevada e dois peixes pequenos, e o Dicionário Bíblico de Easton, citando esse diálogo entre outras passagens, diz que Filipe parece ter ocupado um lugar de destaque entre os apóstolos.Fontes: o próprio texto bíblico · Phillip the Apostle · Andrew · Simon Peter
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org