Nations Bible

João 21

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Morgunverður við sólarupprás

1Seinna birtist Jesús lærisveinunum á ný og þá við Galíleuvatnið. Það gerðist á þennan hátt:

2Nokkrir okkar voru þar, Símon Pétur, Tómas, „tvíburinn“, Natanael frá Kana í Galíleu, Jakob bróðir minn og ég, og tveir aðrir lærisveinar.

3„Ég ætla út að fiska,“ sagði Símon Pétur.

„Við komum með þér,“ sögðum við hinir. Við fórum en urðum ekki varir alla nóttina. 4Við sólarupprás sáum við mann standa á ströndinni en við þekktum hann ekki.

5Hann kallaði til okkar og sagði: „Hafið þið fengið nokkuð, drengir?“

„Nei,“ svöruðum við.

6„Kastið þá netinu hægra megin við bátinn og þá munuð þið fáʼann!“ kallaði hann. Þetta gerðum við og þá fylltist netið af fiski og var mergðin slík að við gátum ekki innbyrt það.

7Þá sagði ég við Pétur: „Þetta er Drottinn!“ Þá snaraði Pétur sér úr treyjunni, stökk út í og synti að landi. 8Við hinir vorum kyrrir í bátnum og drógum netið, sem var alveg fullt, á eftir okkur þennan spöl, sem við áttum ófarinn í land. 9Þegar þangað kom, sáum við að þar hafði verið kveiktur eldur. Einnig var þar steiktur fiskur og brauð.

10„Komið hingað með nokkra af fiskunum, sem þið veidduð,“ sagði Jesús. 11Símon Pétur fór þá og dró netið á land og taldi úr því 153 stóra fiska. En þótt fjöldinn væri slíkur, hafði netið ekki rifnað.

12„Komið, við skulum fá okkur að borða,“ sagði Jesús. Enginn okkar þorði að spyrja hann, hvort hann væri Drottinn í raun og veru, við vorum reyndar vissir um að svo væri. 13Og hann skipti á milli okkar fiskunum og brauðinu.

14Þetta var í þriðja sinn sem Jesús birtist okkur eftir upprisuna.

15Að morgunverðinum loknum, sagði Jesús við Símon Pétur: „Símon Jónasson, elskar þú mig meira en þeir hinir?“

„Já,“ svaraði Pétur, „þú veist að ég elska þig.“

Þá sagði Jesús við hann: „Gættu lamba minna.“

16Jesús endurtók spurninguna og sagði: „Símon Jónasson, elskar þú mig í raun og veru?“

„Já, Drottinn,“ svaraði Pétur, „þú veist að ég elska þig.“ „Annastu sauði mína,“ sagði Jesús.

17Og í þriðja sinn spurði Jesús hann: „Símon Jónasson, ert þú sannur vinur minn?“

Pétur varð hryggur þegar hann heyrði Jesú spyrja þess sama í þriðja sinn og svaraði: „Drottinn, þú þekkir hjarta mitt og veist að ég elska þig.“

„Gæt þú sauða minna,“ svaraði Jesús. 18Síðan bætti hann við og sagði: „Þegar þú varst ungur, gerðirðu það sem þig langaði til og fórst hvert sem þú vildir. En þegar þú eldist muntu verða að rétta út hendur þínar og aðrir munu taka þig með valdi og fara með þig þangað sem þú vilt ekki.“ 19Þetta sagði Jesús til að láta hann vita með hvaða hætti hann mundi deyja og vegsama Guð. Síðan sagði Jesús við hann: „Fylgdu mér!“

20Pétur sneri sér þá við og sá mig, lærisveininn sem Jesús elskaði, koma á eftir sér, en það var ég sem hafði hallað mér upp að Jesú við kvöldmáltíðarborðið og spurt: „Meistari, hver af okkur mun svíkja þig?“ 21Pétur spurði því Jesú: „Hvað með hann, Drottinn? Hvernig mun hann deyja?“

22Jesús svaraði: „Hvað varðar þig um það, ef ég vil að hann lifi þangað til ég kem aftur? En þú skalt fylgja mér.“

23Þetta varð til þess að sá orðrómur barst út meðal bræðranna að þessi lærisveinn mundi ekki deyja, en það hafði Jesús ekki sagt. Hann sagði aðeins: „Hvað varðar þig um það, ef ég vil að hann lifi þangað til ég kem aftur?“

24Ég er þessi lærisveinn! Ég sá þessa atburði gerast og hef ritað um þá hér. Við vitum að frásögn mín er sönn.

25Ég býst við að heimurinn mundi varla rúma allar þær bækur sem til yrðu, ef skrifa ætti allt sem gerðist í lífi Jesú.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Café da manhã à beira do mar de Tiberíades

  • Entre os reunidos à beira do mar de Tiberíades estavam Tomé, também chamado Dídimo — o equivalente grego de seu nome hebraico, que significa “gêmeo” — e Natanael, de Caná da Galileia, cujo nome significa “dom de Deus”. Natanael só é nomeado no Evangelho de João, que nunca inclui Bartolomeu na lista, e os dois têm sido identificados um com o outro. Também estavam ali os filhos de Zebedeu, Tiago e João, cujo pai era um pescador galileu, com dois barcos e servos contratados.Fontes: o próprio texto bíblico · Thomas · Nathanael · Zebedee
  • Simão Pedro, que convida os outros a ir pescar, tinha sido treinado nesse ofício. Três vezes Jesus se dirige a ele como “Simão, filho de João”. O Easton's Bible Dictionary (1897) diz que o nome do pai deve ser lido “João”, como na Revised Version, e não “Jonas”.Fontes: o próprio texto bíblico · Simon Peter · Jonas
  • Caná, cidade da Galileia perto de Cafarnaum e terra natal de Natanael, não é mencionada no Antigo Testamento. Alguns a identificam com Kana el-Jelil, oito ou nove milhas ao norte de Nazaré; outros, com Kefr Kenna, cerca de cinco milhas a nordeste de Nazaré e doze milhas em linha reta de Tiberíades. Natanael estava entre aqueles a quem Jesus se mostrou vivo depois da ressurreição, no mar de Tiberíades, e o capítulo chama essa ocasião de terceira aparição desse tipo aos discípulos.Fontes: o próprio texto bíblico · Cana · Nathanael

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Sea of Galilee · 32.819, 35.590 · versículo 1
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 2

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.