Nations Bible

João 12

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

„Samvistir okkar eru brátt á enda“

1Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu, þar sem Lasarus bjó, sá sem hann hafði reist upp frá dauðum, 2og nú var haldin veisla Jesú til heiðurs. Marta þjónaði til borðs og Lasarus sat við sama borð og Jesús.

3Þá var það að María tók fram krukku með dýrum ilmsmyrslum úr nardussafa og smurði fætur Jesú, og þurrkaði þá síðan með hári sínu. Við þetta fylltist húsið af sætum ilmi.

4Júdas Ískaríot, einn lærisveina hans – sá sem síðar sveik hann – sagði þá: 5„Þetta ilmsmyrsl er gífurlega dýrt. Það hefði átt að selja það og gefa fátækum andvirðið.“ 6Þetta sagði hann ekki vegna þess að honum væri annt um fátæka, heldur sá hann um fjárreiður lærisveinanna og dró stundum undan til eigin þarfa.

7Jesús svaraði: „Láttu hana í friði. Hún var að undirbúa útför mína. 8Þú getur hjálpað fátækum, en samvistir okkar eru brátt á enda.“

9Þegar almenningur í Jerúsalem frétti að Jesús væri að koma, flykktist fólk til að sjá hann og Lasarus – þann sem hann reisti upp frá dauðum. 10Af þessari ástæðu ákváðu æðstu prestarnir að taka Lasarus líka af lífi, 11því að hans vegna höfðu margir framámenn yfirgefið þá og voru farnir að trúa því að Jesús væri Kristur.

Mannfjöldinn fagnar Jesú

12Daginn eftir flaug sú frétt um alla borgina að Jesús væri á leiðinni til Jerúsalem. Tóku þá margir hátíðargestanna pálmagreinar sér í hönd, gengu niður veginn á móti honum og hrópuðu: „Frelsarinn! Frelsarinn! Guð blessi konung Ísraels! Dýrð sé Guði!“

14Jesús hafði ungan asna að reiðskjóta og rættist þar með spádómur er þannig hljóðar: 15„Óttist ekki, Ísraelsmenn, því að konungur ykkar kemur til ykkar, hógvær og ríðandi á ösnufola!“

16(Lærisveinar hans skildu ekki að nú var þessi spádómur að rætast. En þegar Jesús var farinn til dýrðar sinnar á himnum, áttuðu þeir sig á hve margir spádómar höfðu ræst fyrir augum þeirra, án þess að þeir veittu því athygli.)

17Fólkið, sem sá Jesú reisa Lasarus upp frá dauðum, sagði frá þeim atburði, 18og það varð til þess að margir fóru út til móts við Jesú – fólkið hafði heyrt um þetta stórkostlega kraftaverk. 19Þá sögðu farísearnir hver við annan: „Við höfum tapað! Sjáið þið: Allur heimurinn eltir hann!“

20Grikkir nokkrir, sem komnir voru til Jerúsalem á páskahátíðina, 21heimsóttu Filippus, en hann var frá Betsaída. „Herra,“ sögðu þeir við hann, „okkur langar að hitta Jesú.“

22Filippus sagði Andrési frá þessu og fóru þeir báðir til Jesú til að láta hann vita.

23Jesús svaraði þeim og sagði, að nú væri komið að því að hann sneri aftur til dýrðar sinnar á himnum og bætti síðan við: „Ég verð að falla og deyja líkt og hveitikornið, sem fellur í moldina og deyr. Ef ég dey ekki, þá verð ég einsamall, eins og yfirgefið fræ, en dauði minn mun hins vegar leiða af sér mörg ný „hveitikorn“ – ríkulega uppskeru, því margir munu eignast nýtt líf. 25Ef þið elskið líf ykkar hér á jörðinni, þá tapið þið því, en ef þið fórnið því, þá eignist þið eilífa dýrð í staðinn.

26Ef þessir Grikkir vilja verða lærisveinar mínir, segið þeim þá að koma og fylgja mér, því að þjónar mínir verða að vera þar sem ég er. Ef þeir fylgja mér, mun faðirinn heiðra þá. 27Nú er sál mín sárhrygg. Ætti ég þá að biðja svo: „Faðir, hlífðu mér við því sem bíður mín?“ Nei, það er einmitt ástæðan til þess að ég kom. 28Faðir, gerðu nafn þitt dýrlegt.“

Þá kom rödd af himni, sem sagði: „Ég hef þegar gert það dýrlegt og mun aftur gera það dýrlegt.“

29Mannfjöldinn heyrði röddina og héldu sumir að það hefði verið þruma, en aðrir sögðu að engill hefði talað við hann.

30Þá sagði Jesús við fólkið: „Röddin kom ykkar vegna, en ekki mín vegna. 31Nú er stund dómsins runnin upp yfir þennan heim. Og þá verður Satan, höfðingja þessa heims, varpað á dyr. 32Ég verð hafinn upp (á krossinum) og mun draga alla til mín.“ 33Með þessum orðum gaf hann til kynna hvernig hann myndi deyja.

34„Býstu við dauða þínum?“ spurði fólkið. „Okkur skilst að Kristur eigi að lifa að eilífu og að hann muni aldrei deyja. Af hverju segirðu að hann muni deyja? Um hvaða Krist ertu að tala?“

35Jesús svaraði: „Enn um sinn mun ljós mitt skína á meðal ykkar. Gangið því í ljósinu meðan hægt er, áður en myrkrið skellur á, því eftir það getið þið ekki lengur ratað rétta leið. 36Trúið á ljósið meðan tími er til og þá verðið þið ljósberar.“ Að svo mæltu yfirgaf Jesús þá og faldi sig fyrir þeim.

37Þrátt fyrir öll kraftaverkin sem hann hafði gert, trúðu fæstir því, af mannfjöldanum, að hann væri Kristur. 38Þetta kom heim og saman við það sem Jesaja spámaður hafði sagt: „Drottinn, hver mun trúa okkur? Hver mun líta á hin miklu kraftaverk sem vitnisburð um þig?“ 39Þeir gátu sem sagt ekki trúað, enda hafði Jesaja einnig spáð eftirfarandi: 40„Guð hefur blindað augu þeirra og hert hjörtu þeirra, svo að þeir hvorki sjá né skilja, til að þeir snúi sér til mín og ég geti læknað þá.“ 41Þessi orð Jesaja voru spádómur um Jesú, því að hann hafði séð dýrð Krists í sýn.

42Samt trúðu ýmsir af leiðtogum þjóðarinnar að Jesús væri Kristur. En þeir vildu ekki láta það í ljós af ótta við að farísearnir bönnuðu þeim að sækja guðsþjónustur í samkomuhúsunum. 43Hrós manna var þeim meira virði en dýrð Guðs.

44Nú hrópaði Jesús: „Sá sem trúir mér, trúir sjálfum Guði sem sendi mig. 45Þegar þið sjáið mig, sjáið þið þann sem sendi mig. 46Ég er ljós sem kom til að skína í þessum dimma heimi, svo að þeir sem mér treysta, þurfi ekki framar að ganga í myrkrinu. 47Ég dæmi ekki þá sem óhlýðnast orðum mínum, því að ég kom til að frelsa heiminn en ekki til að dæma hann. 48Þeir sem hafna mér og mínum boðskap, verða dæmdir á degi dómsins, eftir sannleikanum sem ég hef flutt. 49Það sem ég hef sagt eru ekki mín orð, heldur hef ég flutt ykkur það sem faðir minn bauð mér að segja. 50Ég veit að orð hans gefa eilíft líf og þess vegna hef ég sagt allt það sem hann bauð mér að segja.“

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

A unção em Betânia e a entrada em Jerusalém

  • Betânia, onde Jesus chegou seis dias antes da Páscoa, ficava a cerca de duas milhas a leste de Jerusalém, na encosta sudeste do monte das Oliveiras, à beira da estrada para Jericó, e recebeu o nome das palmeiras que cresciam ali. Era o lar de Lázaro, a quem Jesus havia ressuscitado dos mortos depois de quatro dias no túmulo, e de suas irmãs Marta e Maria; os principais sacerdotes planejaram matar Lázaro também, porque por causa dele muita gente estava crendo em Jesus.Fontes: o próprio texto bíblico · Bethany · Lazarus
  • Num jantar em que Marta servia e Lázaro se reclinava à mesa, Maria ungiu os pés de Jesus com cerca de uma pinta de perfume caro feito de nardo puro e os enxugou com os cabelos, de modo que a casa ficou cheia da fragrância. Judas Iscariotes, filho de Simão, cujo sobrenome significa um homem de Kerioth, perguntou por que o perfume não foi vendido por trezentos denários para os pobres; ele era ladrão e, como responsável pela bolsa, costumava tirar do que era colocado nela, e ia trair Jesus.Fontes: o próprio texto bíblico · Judas Iscariot · Simon
  • No dia seguinte, a grande multidão que viera para a festa tomou ramos de palmeira e saiu ao encontro de Jesus, que vinha para Jerusalém sentado num jumentinho, gritando louvor ao Rei de Israel, como está escrito a respeito da Filha de Sião. Sião era o monte sudeste de Jerusalém, onde Davi construiu uma cidadela e um palácio depois de tomá-lo, de modo que se tornou a cidade de Davi. A princípio seus discípulos não entenderam essas coisas, mas, depois que Jesus foi glorificado, lembraram-se de que elas também tinham sido escritas a respeito dele.Fontes: o próprio texto bíblico · Zion

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 11, 12, 20
  • Zion · Hoje: Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 15
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 21

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.