Nations Bible

Hebreus 9

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

1Í fyrri sáttmálanum milli Guðs og Ísraelsmanna voru reglur um tilbeiðslu og þar var einnig rætt um heilagt tjald hér á jörðu. 2Í þeim helgidómi – tjaldinu – voru tvö herbergi. Í fremra herberginu, sem kallað var hið heilaga, var borð ásamt ljósastjaka úr gulli. Á borðinu voru sérstök brauð, sem notuð voru við helgiathafnir. 3Síðan tók við fortjald og innan við það var annað herbergi, sem kallaðist „hið allra helgasta“. 4Þar inni var reykelsisaltari úr gulli og einnig kista sem kölluð var sáttmálsörkin. Var hún lögð skíru gulli bæði að utan og innan. Í kistunni voru steinplötur, sem á voru rituð boðorðin tíu, gullkrukka með dálitlu af manna og stafur Arons, sem hafði blómgast. 5A loki kistunnar voru styttur af englum, svokallaðir kerúbar, sem standa áttu vörð um dýrð Guðs. Þeir þöndu vængi sína yfir hið gullna lok arkarinnar, sem kallaðist náðarstóllinn, en nóg um það.

6Þegar tjaldið var fullbúið, sinntu prestarnir störfum sínum í fremra herberginu hvenær sem þeir þurftu, 7en aðeins æðsti presturinn fékk að fara inn í innra herbergið. Þangað fór hann aðeins einu sinni á ári, aleinn, og þá með blóð sem hann stökkti á náðarstólinn. Það var fórn til Guðs, til þess að gjalda fyrir eigin syndir og mistök og einnig fyrir syndir alls fólksins.

8Þetta bendir heilagur andi á, til að sýna okkur að alþýða manna fékk ekki að ganga inn í hið allra helgasta á dögum gamla sáttmálans, þegar fremra herbergið og það sem þar fór fram, var í fullu gildi.

9Þetta segir okkur, sem nú lifum, býsna merkilega hluti. Meðan gamla lagakerfið var í gildi voru gjafir og fórnir bornar fram, en þær dugðu ekki til að hreinsa hjörtu fólksins. 10Gamla kerfið snerist allt um vissar reglur. Þar voru reglur um hvað ætti að borða og hvað ætti að drekka, reglur um hvernig og hvenær ætti að þvo sér; já, reglur um þetta og reglur um hitt. Fólkið var skyldugt að fara eftir þessum reglum, allt þar til Kristur kom og opnaði nýja og betri leið til hjálpræðis.

11Kristur kom sem æðsti prestur nýs og betri sáttmála og þann sáttmála höfum við nú. Hann gekk inn í hina miklu og fullkomnu tjaldbúð himnanna, sem hvorki er gerð af manna höndum né úr jarðnesku efni. 12Hann fór með blóð inn í hið allra helgasta, í eitt skipti fyrir öll, og stökkti því á náðarstólinn. Blóð þetta var ekki blóð úr geitum eða kálfum, heldur hans eigið blóð og með því tryggði hann okkur eilíft hjálpræði.

Nýi sáttmálinn

13Fyrst blóð úr nautum og geitum og aska af kvígum gat hreinsað manninn af synd, samkvæmt gamla sáttmálanum, 14þá getið þið rétt ímyndað ykkur hvort blóð Krists muni ekki breyta hjörtum okkar og lífi! Fórn hans leysir okkur undan þeirri kvöð að þurfa að hlýða gömlu reglunum og kemur því jafnframt til leiðar að við þráum að þjóna lifandi Guði. Kristur lagði líf sitt af frjálsum vilja í hendur Guðs, með hjálp heilags anda, til að deyja fyrir syndir okkar. Hann var fullkominn og syndlaus – algjörlega lýtalaus. 15Kristur færði okkur þennan nýja sáttmála til þess að allir þeir, sem boðnir eru, geti komið og notið um eilífð þeirrar blessunar sem Guð hefur heitið þeim. Kristur dó til að forða okkur undan refsingunni, sem við höfðum kallað yfir okkur, vegna syndanna sem við drýgðum meðan gamli sáttmálinn var í gildi.

16Þegar maður deyr og skilur eftir sig erfðaskrá, þá fær enginn neitt af arfinum fyrr en sannast hefur að sá, er gerði erfðaskrána, sé dáinn. 17Erfðaskráin gengur ekki í gildi fyrr en sá er látinn, sem hana gerði, og meðan hann er á lífi, getur enginn notfært sér hana til að komast yfir þær eignir sem honum eru ánafnaðar.

18Þetta skýrir hvers vegna blóði fórnardýranna var úthellt (en það bendir einmitt fram til dauða Krists) og það meira að segja áður en fyrri sáttmálinn tók gildi. 19Eftir að Móse hafði afhent fólkinu lögbók Guðs, tók hann blóð kálfa og geita ásamt vatni og stökkti því með ísópsgrein og skarlatsrauðri ull yfir sjálfa bókina og allt fólkið. 20Síðan sagði hann: „Blóð þetta er tákn þess að sáttmálinn milli ykkar og Guðs hefur tekið gildi, en þennan sáttmála bauð Guð mér að gera milli ykkar og sín.“ 21Síðan stökkti hann á sama hátt blóði á hið heilaga tjald og á öll áhöldin sem notuð voru til helgihaldsins. 22Það má með sanni segja, að nálega allt sem tilheyrði gamla sáttmálanum, hafi verið helgað með því að stökkva á það blóði, því að ekki fæst fyrirgefning án úthellingar blóðs.

23Hjá því varð ekki komist að Móse yrði þannig að hreinsa þetta heilaga, en jafnframt jarðneska tjald og allt sem í því var – allt gert eftir himneskri fyrirmynd – með því að stökkva á það dýrablóði. Himnesk fyrirmynd þessa tjalds var einnig hreinsuð og helguð, en þó með miklu dýrlegri fórn.

24Kristur gekk inn í sjálfan himininn til að koma fram fyrir Guð sem talsmaður okkar. Það gerðist ekki í jarðneska helgidómnum, því að hann var aðeins eftirmynd hins himneska. 25Og ekki fórnfærði Kristur sjálfum sér, hvað eftir annað, eins og jarðneskur æðsti prestur, sem ber árlega fram dýrablóð að fórn í hinu allra helgasta. 26Þá hefði hann orðið að deyja margsinnis, allt frá því heimurinn varð til. Nei, það hefði verið óhugsandi! Hann kom í eitt skipti fyrir öll, á hinum síðustu tímum, til að brjóta vald syndarinnar á bak aftur að eilífu. Það gerði hann með því að deyja fyrir okkur.

27Eins og það liggur fyrir manninum að deyja einu sinni og koma síðan fyrir dóminn, 28þannig dó Kristur líka einu sinni sem fórn fyrir syndir margra. Eftir það mun hann koma á ný, ekki til að deyja fyrir syndir, heldur til að flytja þeim hjálpræði sitt, sem hans bíða.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

O santuário terreno

  • Este capítulo descreve o santuário terreno da primeira aliança como um tabernáculo dividido em duas salas. Segundo o Easton's Bible Dictionary (1897), a sala exterior, o Lugar Santo, tinha vinte côvados de comprimento e dez de altura e de largura. Não havia abertura para a luz do dia, de modo que só o candelabro de ouro a iluminava.Fontes: o próprio texto bíblico · Holy Place
  • Um véu dos materiais mais custosos e das cores mais brilhantes separava o Lugar Santo do Lugar Santíssimo. Os sacerdotes entravam regularmente na primeira sala para cumprir seus deveres, mas só o sumo sacerdote entrava na sala interior, e apenas uma vez por ano, nunca sem sangue, oferecido por si mesmo e pelos pecados que o povo havia cometido por ignorância.Fontes: Holy Place · o próprio texto bíblico
  • Este capítulo coloca o altar de ouro do incenso no Lugar Santíssimo, junto com a arca revestida de ouro, que continha um vaso de ouro com maná, a vara de Arão que floresceu e as tábuas de pedra da aliança. O Easton's Bible Dictionary (1897), por sua vez, situa esse altar no Lugar Santo, com a mesa dos pães da proposição. Arão, cuja vara é mencionada aqui, era o irmão mais velho de Moisés e o filho mais velho de Anrão e Joquebede.Fontes: o próprio texto bíblico · Holy Place · Aaron

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Holy Place · Hoje: on Mount Moriah · 31.778, 35.236 · versículos 2, 8, 12, 25
  • Most Holy Place · Hoje: on Mount Moriah · 31.778, 35.236 · versículos 3, 7

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.