Nations Bible

Hebreus 11

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Að trúa er að treysta

1Hvað er trú? Það er örugg vissa um að von okkar verði að veruleika. Trúin er sannfæring um að við fáum það sem við vonum, enda þótt við sjáum það ekki. 2Fyrr á tímum urðu margir frægir fyrir trú sína. 3Með því að trúa – treysta orðum Guðs – þá skiljum við hvernig alheimurinn hefur orðið til úr engu, eftir skipun Guðs.

4Fyrir trú hlýddi Abel Guði og bar fram fórn, sem Guði líkaði betur en fórn Kains. Abel var maður Guði að skapi og það staðfesti Guð með því að taka fórn hans gilda. Þótt Abel sé löngu dáinn, getum við enn lært af honum hvernig á að treysta Guði.

5Enok treysti Guði og því tók Guð hann til sín, án þess að láta hann deyja fyrst. Skyndilega var hann horfinn, því að Guð nam hann burt. Áður en þetta gerðist, hafði Guð látið í ljós velþóknun sína á Enok. 6Það er ekki hægt að þóknast Guði nema trúa honum og treysta. Sá sem leitar Guðs, verður að trúa því að hann sé til og að hann launi þeim sem til hans leita.

7Nói var einn þeirra sem treystu Guði. Þegar hann heyrði viðvörun Guðs um framtíðina, trúði hann honum, þótt þess sæjust engin merki að flóð væri í aðsigi. Hann beið ekki boðanna, heldur byggði örkina og frelsaði fjölskyldu sína. Traustið, sem Nói bar til Guðs, var algjör andstæða syndar þeirrar og vantrúar, sem einkenndi heiminn – þann heim sem neitaði að hlýða Guði. Guð tók Nóa að sér vegna trúar hans.

8Abraham treysti Guði. Þegar Guð sagði honum að yfirgefa heimili sitt og fara til fjarlægs lands, sem hann ætlaði að gefa honum, þá hlýddi Abraham og lagði af stað án þess einu sinni að vita hvert leiðin lá. 9Þegar hann kom á áfangastað – til landsins sem Guð hafði lofað honum – þá bjó hann þar í tjöldum eins og hann væri gestkomandi. Hið sama gerðu Ísak og Jakob, en þeir höfðu einnig fengið sama loforð hjá Guði. 10Hvers vegna gerði Abraham þetta? Vegna þess að hann beið þess í trú að Guð flytti hann til hinnar voldugu borgar, sem Guð hefur reist á himnum.

11Sara trúði einnig og þess vegna gat hún orðið móðir, þrátt fyrir háan aldur. Henni var orðið ljóst að Guð hafði gefið henni loforð, sem hann var fær um að standa við. 12Þannig varð Abraham, sem orðinn var of gamall til að geta eignast barn, forfaðir heillar þjóðar, sem skipti milljónum eins og stjörnur himinsins og sandkorn á sjávarströnd.

13Þetta fólk trúarinnar, sem ég hef nú nefnt, dó án þess að fá að reyna allt, sem Guð hafði lofað, en það vissi hvað það átti í vændum og gladdist, því að það leit á sig sem útlendinga og gestkomandi á þessari jörð. 14Af því má sjá að það hefur vænst raunverulegs heimilis á himnum.

15Ef þau hefðu viljað, þá hefðu þau getað snúið aftur til þeirra gæða, sem heimurinn hafði að bjóða, 16en það vildu þau ekki. Takmark þeirra var himinninn. Guð blygðast sín því ekki fyrir að kallast Guð þeirra og nú hefur hann reist þeim borg á himnum.

17Guð reyndi trú Abrahams og hún stóðst. Abraham treysti Guði og loforðum hans. Guð bauð honum að fórna Ísak, syni sínum. Hann hlýddi, 18og var alveg að því kominn að lífláta Ísak, sem Guð hafði þó lofað að yrði forfaðir heillar þjóðar. 19Abraham trúði því að ef Ísak dæi, þá mundi Guð reisa hann upp frá dauðum. Það má segja að Ísak hafi verið dauðans matur frá sjónarmiði Abrahams, en þó var lífi hans bjargað. 20Síðar blessaði Ísak Jakob og Esaú, hann vissi að Guð mundi blessa framtíð þeirra beggja.

21Það var í trú sem Jakob, þá ellihrumur og deyjandi, blessaði báða syni Jósefs, þar sem hann hallaði sér fram á staf sinn og bað.

22Það var einnig í trú að Jósef, þá kominn að leiðarlokum ævi sinnar, sagði að Guð mundi leiða Ísraelsmenn burt frá Egyptalandi. Hann var svo viss að hann tók loforð af fólkinu um að það hefði bein hans meðferðis þegar það færi.

23Foreldrar Móse gengu einnig fram í trú. Þegar þeim varð ljóst að barnið, sem Guð hafði gefið þeim, var óvenjulegt, þá voru þau viss um að Guð mundi forða því frá þeim dauðdaga, sem Faraó hafði fyrirskipað. Þau voru alls óhrædd og leyndu drengnum í þrjá mánuði.

24Síðar, þegar Móse var orðinn fullorðinn, hafnaði hann því í trú að vera talinn dóttursonur Faraós og kaus fremur að þola illt með þjóð Guðs en að njóta skammvinns syndaunaðar. 26Hann áleit betra að þjást fyrir Krist, sem koma átti, en að eignast öll auðævi Egyptalands, því að hann hugsaði um launin sem hann mundi fá hjá Guði. 27Hann yfirgaf Egyptaland í trausti á Guð, jafnvel þótt Faraó reiddist og væri því andsnúinn. Móse hélt sínu striki rétt eins og hann sæi Guð fara á undan sér. 28Hann trúði að Guð mundi frelsa þjóð sína og því fyrirskipaði hann fólkinu að slátra lambi, eins og Guð hafði boðið og dreifa blóðinu á dyrastafi húsa sinna, svo hinn skelfilegi engill dauðans snerti ekki elsta barnið í hverri fjölskyldu, eins og gerðist meðal Egypta.

29Ísraelsþjóðin treysti Guði og hélt rakleiðis gegnum Rauðahafið, eins og þurrt land væri. Egyptar veittu þeim eftirför og reyndu að fara sömu leið, en þeir drukknuðu allir.

30Það var trú sem kom því til leiðar að múrar Jeríkó hrundu, eftir að Ísraelsmenn höfðu gengið hringinn í kringum þá í sjö daga, samkvæmt skipun Guðs. 31Það var einnig fyrir trú á mátt Guðs að vændiskonan Rahab hélt lífi, því að hún tók vel á móti njósnurum Ísraelsmanna. Aðrir íbúar borgarinnar fórust hins vegar allir vegna þess að þeir óhlýðnuðust Guði.

Slíka menn átti heimurinn ekki skilið

32Finnst ykkur þörf á fleiri dæmum? Það tæki langan tíma ef ég ætti að rifja upp sögurnar um trú Gídeons, Baraks, Samsonar, Jefta, Davíðs, Salómons og allra spámannanna. 33Menn þessir treystu Guði og þess vegna unnu þeir orrustur, sigruðu konungsríki, stjórnuðu þjóð sinni með sóma og báru úr býtum það sem Guð hafði lofað þeim. Þeir björguðust úr ljónagryfjum 34og logandi eldsofnum. Sumir björguðust frá sverðseggjum vegna trúar sinnar. Aðrir, sem verið höfðu máttfarnir eða sjúkir, öðluðust nýtt þrek fyrir trú. Sumir fylltust eldmóði og stökktu heilum herjum á flótta – í trú, 35og konur heimtu ástvini sína úr helju vegna trúar sinnar.

Þeir voru einnig til sem treystu Guði og voru barðir til dauða, því að þeir vildu heldur deyja en kaupa sér frelsi með því að afneita Guði. Þessir menn treystu því að síðar meir mundu þeir rísa upp til nýs og betra lífs.

36Sumir voru hæddir og húðstrýktir, svo að bak þeirra varð eitt flakandi sár, en aðrir lágu fjötraðir í dýflissum. 37Sumir voru grýttir til dauða og aðrir sagaðir í sundur. Sumum var heitið frelsi, ef þeir afneituðu trúnni – þeir voru síðan drepnir með sverði. Sumir reikuðu um fjöll og firnindi, klæddir gærum og geitaskinnum og földu sig í sprungum og hellisskútum. Þeir voru hungraðir, sjúkir og illa haldnir. Slíka menn átti heimurinn ekki skilið. 39En þótt menn þessir, menn trúarinnar, hafi treyst Guði og verið honum að skapi, þá fékk þó enginn þeirra að sjá öll fyrirheitin rætast. 40Því að Guð ætlaði þeim að bíða og deila með okkur fullkomnum launum.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Exemplos de fé ao longo da história

  • Hebreus 11 define a fé como a certeza das coisas que se esperam e a convicção de fatos que não se veem, apresentando um panorama cronológico de personagens desde Gênesis até a era dos profetas.Fontes: o próprio texto bíblico
  • O capítulo destaca Abraão, Isaque e Jacó habitando em tendas como forasteiros na terra prometida, retratando a vida nômade deles como sinal de expectativa por uma cidade celestial permanente.Fontes: Abraham · Isaac · Jacob (Israel) · o próprio texto bíblico
  • O autor percorre momentos decisivos da história de Israel, incluindo a renúncia de Moisés às riquezas do Egito, a travessia do mar Vermelho e a queda das muralhas de Jericó.Fontes: Egypt · Red Sea · Jericho

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Egypt · 30.129, 31.308 · versículos 22, 26, 27
  • Jericho · Hoje: Tell es Sultan · 31.872, 35.445 · versículo 30

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.