Nations Bible

Gálatas 4

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

1Þið vitið að ef faðir deyr og eftirlætur ungum syni sínum mikil auðæfi, þá er barnið lítið betur statt en þræll meðan það vex úr grasi, enda þótt það hafi erft allar eigur föður síns. 2Barnið verður að gera það sem forráða- og fjárhaldsmenn þess segja, þar til það nær þeim aldri sem faðir þess tiltók.

Guð keypti okkur frelsi

3Við vorum í svipaðri aðstöðu áður en Kristur kom, undir lögum og reglum Gyðinga, því við töldum það einu leiðina til hjálpræðis. 4En þegar rétti tíminn kom, sem Guð hafði ákveðið, þá sendi hann son sinn. Hann fæddist af konu sem Gyðingur og varð að lúta öllum lögum Gyðinga, 5til að kaupa okkur frelsi, okkur sem voru þrælar laganna, svo að hann gæti ættleitt okkur – gert okkur að börnum sínum. 6Og fyrst við erum börn hans, þá sendi hann anda sonar síns í hjörtu okkar og því getum við nú með sanni sagt að Guð sé faðir okkar. 7Nú erum við ekki framar þrælar, heldur börn Guðs! Fyrst við erum börn hans, þá erum við um leið erfingjar að öllum eigum hans, og það var einmitt áform Guðs.

8Áður en þið kynntust Guði, voruð þið heiðingjar. Þið voruð þrælar svokallaðra guða sem voru ekki einu sinni til. 9En fyrst svo var, hvers vegna viljið þið, sem funduð Guð (eða ætti ég heldur að segja að Guð hafi fundið ykkur?), þá snúa við og verða aftur þrælar máttvana og einskis nýtra trúarbragða og komast til himins fyrir hlýðni við lög Guðs? 10Þið eruð að reyna að ná hylli Guðs með verkum ykkar eða því sem þið látið ógert tiltekna daga eða mánuði. 11Ég óttast um ykkur. Ég óttast að allt erfiðið sem ég lagði á mig ykkar vegna, hafi verið til einskis.

Vonbrigði Páls

12Kæru vinir, lítið á málið frá minni hlið. Ég er jafn laus við þessa lagaáþján og þið voruð. Ekki sýnduð þið mér fyrirlitningu þegar ég flutti ykkur gleðiboðskapinn um Krist í fyrsta sinn, 13og það þrátt fyrir að ég væri sjúkur. 14Veikindi mín hefðu getað vakið viðbjóð ykkar, en samt sneruð þið ekki við mér bakinu né senduð mig burt. Nei! Þið tókuð við mér og önnuðust mig eins og engil frá Guði eða þá sjálfan Jesú Krist. 15Hvað varð um þann góða anda sem þá ríkti milli okkar? Ég er viss um að þið hefðuð þá verið fúsir að taka úr ykkur augun og gefa mér, í stað minna, ef einhver hjálp hefði verið í því.

16Er ég nú orðinn óvinur ykkar vegna þess eins að ég segi ykkur sannleikann?

17Þessir falskennendur sem leggja ofurkapp á að fá ykkur á sitt band, eru ekki að því ykkur til góðs, heldur til að komast upp á milli ykkar og mín, svo að þið takið frekar mark á þeim. 18Það er gott og blessað að fólk sýni ykkur vinsemd, ef það er gert af góðum hug og einlægu hjarta og ekki bara til að sýnast fyrir mér. 19Þið hafið sært mig, börnin mín! Ykkar vegna er ég enn að taka út þjáningar móðurinnar sem bíður þess að barn hennar fæðist – og mikið þrái ég þá stund er þið að lokum verðið lík Kristi. 20Ó, hve ég vildi geta verið hjá ykkur núna, einmitt núna, og þurfa ekki að vera að rökræða svona við ykkur. Nú er langt á milli okkar og ég veit alls ekki hvað ég á til bragðs að taka.

21Hlustið nú vinir mínir, þið sem álítið að þið þurfið að hlýða lögum Gyðinga til að frelsast. Hvers vegna reynið þið ekki að skilja tilgang laganna? 22Í Biblíunni segir að Abraham hafi átt tvo syni, annan með Hagar, en hún var ambátt, og hinn með Söru, frjálsborinni konu sinni. 23Það var ekkert óvenjulegt við fæðingu barnsins sem Hagar eignaðist, en barn frjálsu konunnar fæddist samkvæmt sérstöku loforði sem Guð hafði gefið. 24Þessi frásaga sýnir ljóslega þær tvær leiðir sem Guð fer til að hjálpa fólki. Önnur var sú að gefa því lög til að fara eftir. Það gerði hann á Sínaífjalli þegar hann gaf Móse boðorðin tíu. Sínaífjall er reyndar kallað Hagarfjall af Aröbum. Í myndinni sem ég er að draga upp, táknar Hagar, hin þrælborna kona Abrahams, Jerúsalem, höfuðborg Gyðinga, en hún er miðstöð þeirra kenninga sem segja að við getum þóknast Guði með því að hlýða boðorðunum. Og Gyðingarnir, sem aðhyllast þessa skoðun, eru börn hennar – fædd í þrældómi. 26Okkar höfuðborg er hins vegar hin himneska Jerúsalem og sú borg er ekki þrælkuð af lögum Gyðinga.

27Þessu spáði Jesaja er hann sagði: „Gleðstu nú, barnlausa kona! Hrópaðu af gleði, þú sem engar hefur hríðirnar haft, því að börn hinnar yfirgefnu eru fleiri en þeirrar sem manninn á.“

28Kæru vinir, það sama gildir um okkur og Ísak, við erum börnin sem Guð gaf loforð um að fæðast myndu. 29Ísak, barn fyrirheitisins, var ofsóttur af Ísmael, syni þrælbornu konunnar, og á sama hátt erum við, sem fædd erum af heilögum anda, ofsótt af þeim sem vilja að við höldum lög Gyðinga. 30Biblían segir enn fremur að Guð hafi fyrirskipað Abraham að senda ambáttina burt ásamt syni hennar, því að ekki gat sonur hennar erft eigur Abrahams ásamt syni frjálsu konunnar. 31Kæru vinir, við erum ekki þrælabörn og því ekki skyldug að hlýða lögum Gyðinga. Við erum börn frjálsu konunnar og vegna trúarinnar erum við velþóknanleg í augum Guðs.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Já não escravos, mas filhos

  • Este capítulo diz que Abraão teve dois filhos, um da escrava e outro da mulher livre, e que as duas mulheres representam duas alianças. Agar, a escrava, era egípcia, serva de Sara, dada a Abraão como segunda esposa; seu filho foi Ismael. Isaque, único filho de Abraão com Sara, é o filho da promessa ao qual o capítulo compara seus leitores.Fontes: o próprio texto bíblico · Hagar · Isaac
  • O capítulo identifica Agar com o monte Sinai, na Arábia, montanha também chamada Horebe. O Dicionário Bíblico de Easton (1897) descreve essa região montanhosa como o lugar a que os hebreus chegaram no terceiro mês depois do Êxodo, onde acamparam cerca de um ano, e situa a península do Sinai na Arábia Ocidental.Fontes: o próprio texto bíblico · Mount Sinai · Arabia
  • O capítulo contrapõe a Jerusalém do seu próprio tempo, que diz estar escravizada com os seus filhos, à Jerusalém do alto, que chama de livre. O Dicionário Bíblico de Easton (1897) a chama de cidade santa e de cidade de Deus, e diz que o nome, na forma dual, significa posse da paz ou fundação da paz, referindo-se provavelmente aos montes Sião e Moriá ou, como alguns supõem, à cidade alta e à cidade baixa.Fontes: o próprio texto bíblico · Jerusalem

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Arabia · Hoje: Arabia Petraea · 30.070, 35.350 · versículo 25
  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 25, 26

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.