Nations Bible

Efésios 4

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

1Ég, sem sit í fangelsi fyrir að þjóna Drottni – ég bið ykkur að lifa og starfa eins og sæmir þeim sem hlotið hafa svo dýrlega köllun. 2Verið auðmjúk og blíð. Verið þolinmóð og umberið hvert annað í kærleika. 3Látið heilagan anda leiða ykkur og lifið í sátt og samlyndi.

Við höfum hvert um sig sérstaka hæfileika

4Við erum öll hlutar af einum og sama líkama. Öll höfum við sama heilaga andann. Við erum öll kölluð til að eiga hina sömu dýrlegu framtíð. 5Við eigum aðeins einn Drottin, eina trú, eina skírn, 6og við höfum öll sama Guð og föður, sem er yfir okkur og með okkur og býr í okkur hverju og einu. 7En þótt við séum öll eitt, þá hefur Kristur samt gefið okkur, hverju um sig, mismunandi hæfileika.

8Í Davíðssálmum stendur að þegar hinn sigrandi Kristur hafi snúið aftur til himins, eftir að hafa risið upp og yfirbugað Satan, þá hafi hann gefið mönnunum dýrmætar gjafir. 9Takið eftir að sagt er, að hann hafi snúið aftur til himins. Þetta sýnir að hann steig niður frá upphæðum himnanna og alla leið niður til neðstu hluta jarðarinnar. 10Sá sem steig niður, er hinn sami og steig upp, og þetta gerði hann til að geta fyllt allt með sjálfum sér, hvar sem það er, allt frá því lægsta til hins hæsta.

11Sum okkar hafa hlotið að gjöf sérstaka hæfileika til að vera postular, öðrum er gefið að predika og flytja boðskap frá Guði, sumum að vinna fólk til trúar á Krist og leiðbeina því fyrstu skrefin. Enn aðrir eru prestar eða hirðar og þeir fræða og leiðbeina hinum trúuðu á göngunni með Guði.

12Þeir sem hafa hlotið þessa hæfileika, eiga að fullkomna þá sem trúa og þjóna þeim. Það er til þess að líkami Krists, söfnuðurinn, styrkist og þroskist, 13þar til við að lokum verðum öll einhuga í trúnni á frelsara okkar, Guðs son, og fullvaxta í Drottni – fyllumst lífi, blessun og kærleika Krists.

14Þá verðum við ekki lengur sem börn. Börn skipta sífellt um skoðun. Menn koma og segja þeim eitthvað nýtt eða blekkja þau vísvitandi og þá trúa þau því sem þeim er sagt. 15Nei, við þráum að fylgja sannleikanum og segja sannleikann, gera það sem rétt er og lifa heiðvirðu lífi, Með því líkjumst við Kristi meir og meir, honum sem er höfuð líkamans, en líkaminn er kirkjan. Þegar líkaminn – söfnuðurinn – er undir hans stjórn, þá er hann allur samtengdur á fullkominn hátt. Hver líkamshluti vinnur sitt sérstaka starf og hjálpar hinum hlutum líkamans, þannig að allur líkaminn vex og uppbyggist í kærleika.

Lifið nýju lífi

17Mig langar að segja ykkur nokkuð og það eru boð frá Drottni: Héðan í frá skuluð þið ekki lifa eins og guðleysingjar, því að þeir eru blindir og á villuvegi. Hjörtu þeirra eru lokuð og full af myrkri. Þeir eru fjarlægir lífinu í Guði, því að þeir hafa snúið við honum bakinu og geta því hvorki skilið vilja hans né verk. 19Þeir eru hættir að gera greinarmun á réttu og röngu og hafa ofurselt sig óhreinleika. Þeir eru andlega sljóir, knúðir áfram af girnd og illum hugsunum og svífast einskis.

20Kristur ætlaði ykkur ekki að lifa slíku lífi. 21Þið sem hafið lært að þekkja sannleikann um Krist, 22eigið að leggja af ykkar gömlu hegðun. Þá var líf ykkar rotið og spillt af tælandi girndum. 23Héðan í frá verða viðhorf ykkar og hugsanir að breytast til hins betra. 24Þið eigið að vera sem nýir menn. Menn sem lifa allt öðru lífi en þið lifðuð áður – heilagir og góðir menn. Klæðist þessu nýja lífi eins og nýrri flík.

25Hættið að ljúga en segið sannleikann. Við erum eitt, og ef við ljúgum hvert að öðru, þá spillum við fyrir okkur sjálfum. 26Ef þið reiðist, þá syndgið ekki með því að ala á reiðinni. Leggið reiðina af áður en sólin sest, 27því að reiður maður er gott skotmark hins vonda.

28Sá sem hefur vanið sig á að stela, hætti því og noti þess í stað hendur sínar við heiðarleg störf, svo að hann hafi eitthvað að gefa þeim sem þurfandi eru. 29Forðist allt óhreint tal. Segið það eitt sem gott er, og getur orðið til hjálpar og blessunar þeim sem á hlusta.

30Hryggið ekki heilagan anda með líferni ykkar. Hann hefur innsiglað okkur Guði, til þess að við varðveitumst allt til endurlausnardagsins, er við losnum við syndina fyrir fullt og allt.

31Sýnið hér eftir hvorki beiskju, ofsa né reiði. Rifrildi, grófyrði og baktal ætti ekki að vera til á meðal ykkar. 32Verið þess í stað vingjarnleg hvert við annað, góðhjörtuð og fús að fyrirgefa hvert öðru, rétt eins og Guð hefur fyrirgefið ykkur í Kristi.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Um só corpo e uma vida digna

  • O capítulo começa com o autor chamando a si mesmo de prisioneiro no Senhor e exortando os leitores a andar de modo digno da vocação que receberam, com humildade, mansidão, paciência e diligência para preservar a unidade do Espírito pelo vínculo da paz.Fontes: o próprio texto bíblico
  • Esse apelo se apoia em realidades compartilhadas nomeadas no capítulo: um só corpo, um só Espírito, uma só esperança, um só Senhor, uma só fé, um só batismo e um só Deus e Pai de todos, que está sobre todos, por meio de todos e em todos. O mesmo trecho diz que aquele que subiu deu uns para apóstolos, outros para profetas, outros para evangelistas e outros para pastores e mestres, a fim de capacitar os santos e edificar o corpo.Fontes: o próprio texto bíblico
  • O capítulo então descreve uma vida mudada como o ato de despir-se do modo de vida anterior, o velho eu, e de revestir-se do novo eu. Diz aos leitores que abandonem a mentira e falem a verdade, pois são membros uns dos outros; que fiquem irados sem pecar e não deixem o sol se pôr sobre a ira; e que não entristeçam o Espírito Santo de Deus, no qual foram selados para o dia da redenção.Fontes: o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.