Atos 8
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
1Páli líkaði vel líflát Stefáns og þennan sama dag hófst mikil ofsókn gegn kirkjunni í Jerúsalem. Allir hinir trúuðu, nema postularnir, flýðu þá út um byggðir Júdeu og Samaríu. 2Nokkrir guðræknir Gyðingar tóku lík Stefáns og grófu með miklum söknuði. 3Páll varð nú enn ákveðnari en áður í að útrýma hinum trúuðu. Hann æddi um og fór jafnvel inn á einkaheimili, dró þaðan bæði karla og konur og lét varpa þeim í fangelsi.
Filippus fer til Samaríu
4Trúaða fólkið, sem flúið hafði Jerúsalem, fór nú víða og boðaði fagnaðarerindið um Jesú. 5Filippus fór til dæmis til borgarinnar í Samaríu og sagði fólkinu þar frá Kristi. 6Menn hlustuðu með athygli á mál hans, 7einkum vegna kraftaverkanna sem hann vann. Margir illir andar voru reknir út – þeir yfirgáfu fórnarlömb sín með miklum óhljóðum. Fjöldi lamaðra og bæklaðra hlaut einnig lækningu, 8og sannkallaður fögnuður ríkti í borginni.
9Maður nokkur hét Símon. Hann hafði verið galdramaður árum saman og mjög áhrifamikill. Leit hann stórt á sig vegna galdranna sem hann vann. Sumt fólk í Samaríu talaði jafnvel um hann sem sinn Krist. 12Nú trúði fólkið hins vegar orðum Filippusar, að Jesús væri Kristur. Einnig trúði það orðum hans um guðsríkið og fjöldi karla og kvenna tók skírn. 13Símon tók líka trú, var skírður og fylgdi síðan Filippusi hvert sem hann fór, undrandi á kraftaverkunum sem hann vann.
14Þegar postularnir í Jerúsalem fréttu að íbúar Samaríu hefðu tekið við boðskap Guðs, sendu þeir þangað Pétur og Jóhannes. 15Við komuna fóru þeir að biðja fyrir hinum nýkristnu, að þeir mættu taka á móti heilögum anda, 16því að enn hafði hann ekki komið yfir neinn þeirra, þó þeir hefðu verið skírðir í nafni Drottins Jesú. 17Og Pétur og Jóhannes lögðu hendur yfir þá sem trúðu, og fengu þeir þá heilagan anda.
18Þegar Símon sá að fólkið hlaut heilagan anda við handayfirlagningu postulanna, kom hann með peninga og vildi kaupa þennan kraft. 19„Leyfið mér líka að eignast þennan kraft,“ bað hann, „svo að ég geti einnig lagt hendur yfir fólk og það fengið heilagan anda.“
20Pétur svaraði: „Fé þitt verði að engu, né þú sjálfur, fyrst þú heldur að hægt sé að kaupa gjöf Guðs fyrir peninga! 21Þú getur ekki tekið þátt í þessu, því að þú ert ekki einlægur gagnvart Guði. 22Snúðu þér frá illsku þinni og biddu Guð að fyrirgefa þér þessa vondu hugmynd þína. 23Ég finn að þú ert afbrýðisamur og það er synd.“
24„Æ, biddu til Drottins fyrir mér!“ hrópaði Símon, „að ekkert af því komi yfir mig, sem þú sagðir!“
25Þegar Pétur og Jóhannes höfðu vitnað og predikað í Samaríu, fóru þeir aftur til Jerúsalem. Á heimleiðinni komu þeir við í nokkrum samverskum bæjum og þar fluttu þeir einnig gleðiboðskapinn.
26En varðandi Filippus, þá sagði engill frá Drottni við hann: „Farðu veginn sem liggur frá Jerúsalem og niður til Gasa – hann liggur um eyðimörk – og vertu kominn þangað um hádegisbilið.“ 27Það gerði hann og þá var þar á ferð sjálfur fjármálaráðherra Eþíópíu. Sá var í miklu áliti hjá Kandake Eþíópíudrottningu. Hann hafði farið til Jerúsalem, til að biðjast fyrir í musterinu, 28en var nú á heimleið í vagni sínum og las upphátt úr spádómsbók Jesaja.
29Þá sagði heilagur andi við Filippus: „Flýttu þér til hans og gakktu við hliðina á vagninum.“
30Filippus hlýddi og þegar hann var kominn að vagninum, heyrði hann hvað maðurinn var að lesa. „Skilur þú þetta?“ spurði Filippus. 31„Nei, sannarlega ekki.“ svaraði maðurinn. „Hvernig ætti ég að geta það? Ég hef engan til að útskýra það fyrir mér.“ Síðan bauð hann Filippusi að koma upp í vagninn og setjast hjá sér.
32Kaflinn, sem hann var að lesa, var þannig: „Eins og lamb var hann leiddur til slátrunar og eins og kind þegir hjá þeim er klippir hana, þannig lauk hann ekki upp munni sínum. 33Hann var auðmýktur og réttur hans frá honum tekinn. Endir var bundinn á ævi hans – hver getur lýst illsku samtíðar hans?“
34Maðurinn spurði nú Filippus: „Átti Jesaja hér við sjálfan sig eða einhvern annan?“
35Filippus útskýrði þá ritningarstaðinn og benti honum á marga aðra til að fræða hann um Jesú.
36Þegar þeir höfðu ekið nokkurn spöl, komu þeir að litlu vatni. „Sjáðu!“ sagði maðurinn. „Þarna er vatn. Getur þú ekki skírt mig hér?“
37„Jú, það get ég, ef þú trúir af öllu hjarta,“ svaraði Filippus.
Þá sagði hinn: „Ég trúi að Jesús Kristur sé sonur Guðs.“
38Síðan stöðvaði hann vagninn, þeir stigu út í vatnið og Filippus skírði hann. 39Þegar þeir komu upp úr vatninu, hreif andi Drottins Filippus burt, og maðurinn sá hann ekki framar, en hélt leiðar sinnar fagnandi. 40Seinna kom Filippus fram í Asdód, og einnig þar flutti hann fagnaðarerindið, svo og í öllum bæjum á leið sinni til Sesareu.

Você sabia?
A mensagem se espalha além de Jerusalém
- Após a morte de Estêvão, irrompeu uma grande perseguição contra a igreja em Jerusalém, e todos, exceto os apóstolos, foram dispersos pela Judeia e por Samaria. Filipe, um dos sete e mais tarde chamado o evangelista, estava entre eles; foi primeiro a Samaria, onde as multidões deram atenção à sua mensagem sobre o Cristo.Fontes: o próprio texto bíblico · Phillip the Evangelist
- Antes da chegada de Filipe, Simão já havia muito tempo assombrado Samaria com feitiçaria, e o povo o chamava de o poder divino conhecido como o Grande Poder. Ele creu e foi batizado, e depois ofereceu dinheiro pelo poder de conceder o Espírito Santo pela imposição das mãos; a palavra simonia, que designa a compra de um cargo espiritual, deriva do seu nome.Fontes: o próprio texto bíblico · Simon the Sorcerer
- Duas estradas ligavam Jerusalém a Gaza; Filipe foi enviado pela que passava por Hebrom e por uma região pouco habitada, chamada deserto. Ali encontrou um eunuco etíope, tesoureiro de Candace, rainha dos etíopes, que voltava de adorar em Jerusalém e lia o profeta Isaías em sua carruagem. Candace era um título usado por rainhas sucessivas de Meroé, na Alta Núbia, rico centro de comércio entre a África e o sul da Ásia.Fontes: o próprio texto bíblico · Phillip the Evangelist · Candace
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 1, 14, 25, 26, 27
- Judea · Hoje: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículo 1
- Samaria · Hoje: Samaria 2 · 32.276, 35.195 · versículos 1, 5, 9, 14, 25
- Gaza · Hoje: Tell Harube · 31.504, 34.464 · versículo 26
- Ethiopia · 16.935, 33.751 · versículo 27
- Ashdod · Hoje: Tel Ashdod · 31.757, 34.658 · versículo 40
- Caesarea · Hoje: Caesarea Maritima · 32.500, 34.892 · versículo 40
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org