Atos 24
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
1Fimm dögum síðar kom Ananías æðsti prestur ásamt nokkrum leiðtogum Gyðinga og lögfræðingnum Tertúllusi til að sækja málið gegn Páli. 2Tertúllus var kallaður fyrir landstjórann og bar þar fram ákærur gegn Páli. Hann sagði:
3„Göfugi Felix, fyrir þitt tilstilli höfum við Gyðingar fengið að lifa í friði og þú hefur stórlega rétt hlut okkar. 4En til að tefja þig sem minnst, bið ég þig vinsamlegast að hlusta á mig andartak meðan ég skýri þér stuttlega frá ákærum okkar gegn þessum manni. 5Við höfum komist að því að hann veldur vandræðum um allan heim og æsir Gyðinga til óeirða gegn rómverskum yfirvöldum. Hann er forsprakki sértrúarflokks sem þekktur er undir nafninu nasarearnir. 6Auk alls þessa reyndi hann að saurga musterið, en þá gripum við hann.
Við ætluðum að veita honum verðskuldaða ráðningu, 7en þá kom Lýsías hersveitarforingi og tók hann af okkur með ofbeldi. 8Hann krafðist þess að farið yrði með mál hans eftir rómverskum lögum. Þú getur sjálfur gengið úr skugga um réttmæti ásakana okkar með því að yfirheyra manninn.“
9Þessu samsinntu hinir Gyðingarnir og lýstu yfir því að framburður Tertúllusar væri réttur.
10Nú var röðin komin að Páli. Landstjórinn gaf honum bendingu um að rísa á fætur og tala máli sínu.
Páll tók til máls og sagði: „Mér er kunnugt um, herra, að þú hefur verið dómari í málum Gyðinga um árabil og finnst mér gott að vita það, nú þegar ég flyt varnarræðu mína. 11Þú munt fljótt komast að því að ekki eru liðnir nema tólf dagar síðan ég kom til Jerúsalem, til að biðjast fyrir í musterinu. 12Einnig að ég hef ekki komið af stað óeirðum í nokkru samkomuhúsi Gyðinga né á götum nokkurrar borgar. 13Þessir menn geta áreiðanlega ekki sannað neina af þeim ásökunum, sem þeir hafa borið á mig.
14En eitt vil ég játa og það er að ég trúi þeirri hjálpræðisleið sem þeir kalla sértrú. Ég þjóna Guði á sama hátt og forfeður okkar, og ég vil taka það fram, að ég trúi öllu sem skrifað er í lögum Gyðinga og ritum spámannanna. 15Þessir menn trúa því að bæði vondir og góðir muni rísa upp og sama segi ég. 16Af þessum ástæðum reyni ég ávallt að hafa góða samvisku, bæði gagnvart Guði og mönnum.
17Eftir nokkurra ára fjarveru kom ég aftur til Jerúsalem og hafði þá með mér peninga til aðstoðar Gyðingum. Einnig kom ég til að færa Guði fórn. 18Ákærendur mínir sáu mig í musterinu, þegar ég var að bera fram þakkarfórn mína. Ég hafði rakað höfuð mitt eins og lög Gyðinga gera ráð fyrir og umhverfis mig var hvorki æstur múgur né uppþot. Þar voru hins vegar nokkrir Gyðingar frá Litlu-Asíu 19– þeir ættu reyndar að vera hér, hafi þeir eitthvað að ásaka mig fyrir. 20En gerðu nú eitt. Spurðu þessa menn, hér og nú, hvaða sök Gyðingaráðið hafi fundið hjá mér, 21aðra en þá að ég kallaði upp: „Ég er hér fyrir rétti í dag til að verja þá trú mína að dauðir muni rísa upp!“ “
22Felix, sem vissi vel að kristnir menn voru ekki vanir að valda óeirðum, bað nú Gyðinga að bíða komu Lýsíasar hersveitarforingja og þá mundi hann dæma í málinu.
23Síðan bauð hann að Páli skyldi haldið í fangelsi. Jafnframt gaf hann vörðunum fyrirmæli um að fara vel með hann og leyfa vinum hans að heimsækja hann.
24Nokkrum dögum síðar kom Felix, ásamt Drúsillu eiginkonu sinni, sem var Gyðingur. Lét hann sækja Pál og hlustuðu þau á hann segja frá trú sinni á Jesú Krist. 25Þegar Páll fór að tala um réttlæti, líf í hreinleika og komandi dóm, varð Felix mjög hræddur og sagði: „Þetta er nóg í bili. Ég mun kalla á þig aftur þegar betur stendur á.“
26Hann gerði sér vonir um að Páll myndi bjóða sér mútur og lét því senda eftir honum öðru hverju til þess að ræða við hann. 27Þannig liðu tvö ár. Eftir það tók Porkíus Festus við af Felix og vegna þess að Felix vildi koma sér í mjúkinn hjá Gyðingunum skildi hann Pál eftir í fangelsinu.

Você sabia?
Paulo perante Félix
- O sumo sacerdote Ananias desceu com alguns anciãos e um advogado chamado Tértulo, que o Dicionário Bíblico de Easton descreve como um advogado romano empregado pelos judeus para apresentar a causa contra Paulo diante de Félix. Tértulo elogiou o governador e depois chamou Paulo de peste, que provocava dissensão entre os judeus por todo o mundo, de chefe da seita dos nazarenos e de homem que tinha tentado profanar o templo. O dicionário liga esse elogio inicial à limpeza que Félix fez do país, expulsando bandidos e impostores.Fontes: o próprio texto bíblico · Tertullus · Felix
- Félix, que estava bem informado a respeito do Caminho, adiou a audiência e manteve Paulo sob guarda, permitindo-lhe alguma liberdade e deixando que amigos atendessem às suas necessidades. O relato diz que ele esperava que Paulo lhe oferecesse um suborno e por isso o mandava chamar com frequência; o Dicionário Bíblico de Easton também afirma que ele parece ter esperado um suborno e, por isso, teve várias conversas com ele. Depois de dois anos, Pórcio Festo o sucedeu — o Dicionário Bíblico de Easton (1897) data essa nomeação em 60 d.C. — e, querendo fazer um favor aos judeus, Félix deixou Paulo na prisão.Fontes: o próprio texto bíblico · Felix · Portius Festus
- Alguns dias depois, Félix voltou com sua mulher Drusila, que era judia, e ouviu Paulo falar da fé em Cristo Jesus e da justiça, do domínio próprio e do juízo vindouro; Félix ficou amedrontado e o mandou embora. O Dicionário Bíblico de Easton (1897) identifica Drusila como a terceira e mais nova filha de Herodes Agripa I e diz que Félix a induziu a deixar o marido, Azizus, rei de Emesa. O mesmo verbete diz que ela e o filho morreram na erupção do monte Vesúvio em 79 d.C.Fontes: o próprio texto bíblico · Drusilla
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
- Caesarea · Hoje: Caesarea Maritima · 32.500, 34.892 · versículo 1
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 11, 17
- Asia · 38.400, 28.300 · versículo 18
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org