Atos 19
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
Lærisveinar í Efesus taka á móti heilögum anda
1Meðan Apollós var í Korintu, var Páll á ferðalagi um Litlu-Asíu. Hann kom til Efesus, hitti þar nokkra lærisveina 2og spurði: „Fenguð þið heilagan anda þegar þið tókuð trú?“
„Nei,“ svöruðu þeir, „Hvað áttu við? Hvað er heilagur andi?“
3„Hvaða skírn eruð þið skírðir?“ spurði hann. „Skírn Jóhannesar,“ svöruðu þeir.
4Benti Páll þeim á að skírn Jóhannesar hefði verið iðrunarskírn fyrir þá sem vildu snúa sér frá syndinni og til Guðs, en að henni lokinni yrðu menn að taka trú á Jesú, þann sem Jóhannes hafði sagt að kæmi á eftir sér.
5Þegar þeir heyrðu þetta, létu þeir skírast í nafni Drottins Jesú. 6Og síðan, er Páll lagði hendur á höfuð þeirra, kom heilagur andi yfir þá og þeir töluðu tungum og spáðu – fluttu boðskap frá Guði. 7Menn þessir voru um tólf talsins.
8Eftir þetta fór Páll til samkomuhúss Gyðinganna og þar predikaði hann djarflega á hverjum helgidegi í þrjá mánuði. Hann gerði grein fyrir hverju hann trúði og hvers vegna.
Margir sannfærðust og tóku trú á Jesú. 9Sumir mótmæltu þó boðskap hans og höfnuðu Kristi opinberlega. Hann greindi á milli þessara tveggja hópa og tók með sér hina trúuðu, hóf nýjar samkomur í skóla Týrannusar og predikaði þar daglega. 10Þannig hélt hann áfram í tvö ár og árangurinn var sá að allir íbúar héraðsins Asíu – bæði Gyðingar og Grikkir – fengu að heyra boðskap Drottins. 11Guð gaf Páli kraft til að gera óvenjuleg kraftaverk. 12Það gerðist jafnvel er klútar eða flíkur af honum voru lögð á sjúka að þeir læknuðust og illir andar fóru út af þeim.
13Flokkur særingamanna, allt Gyðingar, hafði það að starfi að ferðast um og reka út illa anda. Nú ákváðu þeir að gera tilraun með að nota nafn Drottins Jesú. Orðin sem nota átti til að særa út illu andana voru þessi: „Ég særi þig við Jesú, sem Páll predikar – út með þig!“ 14Þeir voru allir synir Skeva, æðsta prests, sjö talsins. 15En þegar þeir gerðu tilraun með þetta á manni, sem hafði illan anda, svaraði illi andinn: „Jesú þekki ég og líka Pál, en hverjir eruð þið?“ 16Það skipti engum togum, hann réðist á tvo þeirra og barði þá svo að þeir flýðu naktir og illa meiddir út úr húsinu.
17Fréttin af þessu barst fljótt um alla Efesus, jafnt til Gyðinga sem Grikkja. Urðu borgarbúar óttaslegnir og nafn Jesú óx mjög í augum fólksins. 18Margir hinna trúuðu, sem farið höfðu með kukl og galdra, játuðu gjörðir sínar og söfnuðu saman öllum galdrabókunum og verndargripum og brenndu opinberlega. Álitið var að verðmæti bókanna næmi fimmtíu þúsund silfurpeningum! 20Þetta sýnir glöggt hve boðskapur Guðs hafði sterk áhrif á þessu svæði.
Uppþotið í Efesus
21Eftir þetta fannst Páli heilagur andi ætlast til að hann færi yfir til Grikklands, áður en hann sneri aftur til Jerúsalem. „Og þegar ég hef verið þar,“ sagði hann, „ber mér að fara til Rómar.“ 22Síðan sendi hann tvo aðstoðarmenn sína, Tímóteus og Erastus, á undan sér til Grikklands, en dvaldist sjálfur enn um stund í Litlu-Asíu.
23Um þessar mundir kom upp mikil ólga í Efesus vegna hinna kristnu. 24Upphafið átti Demetríus, silfursmiður, en hann hafði marga menn í vinnu við að smíða silfurskrín, tileinkuð grísku veiðigyðjunni Artemis. 25Hann kallaði menn sína, og aðra sem unnu við skyldan iðnað, á ráðstefnu og sagði:
„Herrar mínir, við höfum allar okkar tekjur af þessum viðskiptum. 26Ykkur er ljóst að þessi Páll hefur talið fjölmörgum trú um að guðir, sem búnir eru til af mannahöndum, séu alls engir guðir. Afleiðingin er sú að salan hjá okkur hefur stórlega dregist saman. Þetta hefur ekki aðeins gerst hér í Efesus, heldur í öllu héraðinu. 27Vitanlega hugsa ég ekki aðeins um viðskiptalegu hliðina á þessu máli – okkar fjárhagslega tap – heldur einnig þann möguleika að áhrif hinnar miklu gyðju, Artemisar fari minnkandi og að hún, sem ekki aðeins er tilbeðin í þessum hluta Litlu-Asíu heldur um allan heim – muni gleymast!“
28Þegar fundarmenn heyrðu þetta urðu þeir ævareiðir og hrópuðu í sífellu: „Mikil er Artemis Efesusmanna!“
29Af þessum sökum safnaðist mikill mannfjöldi saman og öll borgin komst í uppnám. Múgurinn ruddist á leikvanginn, dró með sér þá Gajus og Aristarkus, fylgdarmenn Páls, til að yfirheyra þá. 30Páll vildi reyna að komast inn í mannþröngina, en lærisveinarnir hindruðu það. 31Sumir hinna rómversku embættismanna héraðsins voru vinir Páls. Þeir sendu honum boð og báðu hann að hætta ekki lífi sínu með því að fara þangað inn.
32Á leikvanginum hrópaði hver í kapp við annan og þar var algjör upplausn. Engir tveir voru sammála og fæstir vissu reyndar hvers vegna þeir voru þar.
33Þá kom einhver af Gyðingunum auga á Alexander og var hann þegar dreginn fram. Hann gaf merki um þögn og síðan reyndi hann að taka til máls. 34Þegar fólkinu varð ljóst að hann var Gyðingur, æpti það og hrópaði í nærfellt tvær stundir: „Mikil er Artemis Efesusmanna! Mikil er Artemis Efesusmanna!“
35Loks tókst borgarstjóranum að þagga svo niður í mannfjöldanum að hann gat tekið til máls. „Efesusmenn,“ sagði hann. „Öllum er ljóst að Efesus er miðstöð tilbeiðslu hinnar miklu Artemisar og það var líkneski hennar sem féll til okkar af himni. 36Þetta er óhrekjandi staðreynd og því ættuð þið ekki að láta þetta raska ró ykkar né gera neitt í fljótfærni. 37Samt hafið þið nú dregið þessa menn hingað, þótt þeir hafi hvorki stolið neinu úr musteri Artemisar né lastmælt henni. 38Ef Demetríus og smiðirnir hafa einhverja ákæru á hendur þeim, þá er rétturinn reiðubúinn að taka málið fyrir undir eins, því að hann er að störfum núna. Mál þetta verður að reka á lögmætan hátt. 39Ef um önnur deilumál er að ræða, gerið þá út um þau á hinum reglubundnu fundum borgarráðsins, 40en svona megum við ekki fara að. Við eigum áreiðanlega á hættu að verða að svara til saka, hjá rómversku yfirvöldunum, fyrir þetta uppþot hér í dag, því að það var algjörlega tilefnislaust. Heimti Rómverjarnir skýringu, veit ég hreint ekki hvað segja skal.“
41Síðan bað hann fólkið að fara og mannfjöldinn dreifðist.

Você sabia?
Paulo, o Caminho e Ártemis em Éfeso
- Éfeso era a capital da Ásia proconsular, a província romana que abrangia a parte ocidental da Ásia Menor, e nos tempos romanos ostentava o título de primeira e maior metrópole da Ásia. A cidade distinguia-se pelo templo de Ártemis, a quem os romanos chamavam Diana, construído fora das muralhas e contado entre as sete maravilhas do mundo antigo. No centro ficava uma imagem antiga da deusa, da qual se dizia que tinha caído do céu.Fontes: Ephesus · Diana · Asia
- Demétrio, um ourives de Éfeso, fazia santuários de prata de Ártemis, modelos do templo ou da estátua da deusa, que se vendiam com facilidade aos visitantes vindos de toda a Ásia Menor. Atos diz que esse comércio era a fonte de prosperidade dos artesãos e que Demétrio os alertou sobre o perigo para o negócio e para a honra do templo de Ártemis, a deusa que, segundo ele, era adorada em toda a província da Ásia e no mundo inteiro.Fontes: Demetrius · o próprio texto bíblico
- A multidão correu para o teatro de Éfeso, que o Dicionário Bíblico de Easton (1897) descreve como o maior do mundo, a céu aberto e capaz de abrigar 50.000 espectadores. Amigos de Paulo entre os chefes da Ásia, cidadãos ricos eleitos a cada ano para presidir os jogos e as festas religiosas de suas cidades, pediram que ele não entrasse. O escrivão da cidade lembrou então à assembleia que Éfeso era guardiã do templo da grande Ártemis e da imagem que, segundo se dizia, caíra do céu.Fontes: Ephesus · Asia · o próprio texto bíblico
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
- Corinth · 37.906, 22.879 · versículo 1
- Ephesus · 37.939, 27.341 · versículos 1, 17, 23, 26, 35
- Asia · 38.400, 28.300 · versículos 10, 22, 26, 27, 31
- Achaia · 38.720, 22.540 · versículo 21
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 21
- Macedonia · 41.600, 22.540 · versículos 21, 22, 29
- Rome · 41.892, 12.485 · versículos 21, 40
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org