Nations Bible

Atos 17

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Erfiðleikarnir elta Pál

1Eftir þetta lá leið þeirra um borgirnar Amfípólis og Appolóníu og síðan Þessaloníku, en þar var samkomuhús Gyðinga. 2Eins og Páll var vanur fór hann í samkomuhúsið til að predika. Þrjá helgidaga í röð las hann og skýrði Biblíuna fyrir fólkinu. 3Hann benti því á spádómana um þjáningar og upprisu Krists og sannaði að Jesús væri Kristur. 4Sumir þeirra sem hlustuðu létu sannfærast og snerust til trúar, þar á meðal mikill fjöldi guðrækinna Grikkja og margar mikilsvirtar konur úr borginni.

5En leiðtogar Gyðinganna urðu afbrýðisamir og æstu götuskrílinn gegn þeim. Múgurinn réðst að húsi Jasons og ætlaði að draga Pál og Sílas fyrir borgarráðið til að láta refsa þeim.

6Þeir fundu þá ekki þar, en drógu í staðinn Jason og nokkra aðra trúaða menn fyrir borgarráðið og hrópuðu: „Páll og Sílas hafa vakið óeirðir um allan heim og nú eru þeir komnir hingað til að hleypa öllu upp! 7Jason hefur leyft þeim að gista hjá sér. Hann og allir þessir eru sekir um landráð, því að þeir segja að Jesús sé konungur og hafna keisaranum.“ 8Dómararnir litu málið mjög alvarlegum augum, eins og borgarbúar, en létu þá þó lausa gegn tryggingu.

10Hinir kristnu flýttu sér að koma Páli og Sílasi undan um nóttina og fóru með þá til Beroju. Þegar þangað kom, gengu þeir eins og venjulega inn í samkomuhúsið til að predika. 11Íbúar Beroju voru vingjarnlegri en fólkið í Þessaloníku og hlustuðu áhugasamir á boðskapinn. Þeir rannsökuðu Gamla testamentið daglega, til að fullvissa sig um að Páll og Sílas hefðu rétt fyrir sér. 12Árangurinn varð sá að margt fólk tók trú, þar á meðal nokkrar tignar grískar konur, auk margra karlmanna.

13Þegar Gyðingarnir í Þessaloníku fréttu að Páll væri að predika í Beroju, komu þeir þangað og hleyptu öllu í uppnám. 14Kristnir menn brugðu skjótt við og sendu Pál niður til strandar, en Sílas og Tímóteus urðu eftir. 15Fylgdarmenn Páls fóru með honum til Aþenu, en sneru svo aftur til Beroju með skilaboð til Sílasar og Tímóteusar um að koma strax og hitta hann.

16Meðan Páll beið þeirra í Aþenu, varð hann fyrir miklum vonbrigðum – borgin var full af skurðgoðum! 17Hann fór í samkomuhúsið til Gyðinganna og ræddi við þá og aðra trúrækna menn. Auk þess talaði hann daglega á torginu til allra, sem þar fóru um.

Páll og heimspekingarnir í Aþenu

18Þá tóku nokkrir Epíkúringar og Stóuspekingar að þrátta við hann. Þegar hann sagði þeim frá Jesú og upprisu hans, sögðu sumir: „Hvaða rugl er nú þetta!“ og aðrir: „Þú ert að boða einhverja ókunna guði.“

19Þeir buðu honum með sér upp á Aresarhæð, þar sem menn voru vanir að skiptast á skoðunum, og sögðu: „Segðu okkur eitthvað meira um þessa nýju trú. 20Hún virðist vera mjög óvenjuleg og okkur langar að heyra meira.“ 21Aþenubúar, og þeir sem flutt höfðu til borgarinnar, virtust eyða öllum sínum tíma í viðræður um nýjustu viðhorf og kenningar. 22Páll stóð nú frammi fyrir þessum mönnum á Aresarhæð og sagði: „Aþenumenn, ég hef tekið eftir því að þið eruð mjög trúhneigðir. 23Á göngu minni um borgina sá ég fjölmörg ölturu og á eitt þeirra var ritað: Til óþekkta guðsins. – Þið hafið sem sagt tilbeðið Guð án þess að þekkja hann, en nú skal ég segja ykkur frá honum.

24Hann skapaði heiminn og allt sem í honum er. En af því að hann er Drottinn himins og jarðar, býr hann ekki í musterum, sem menn hafa reist. 25Því síður annast mannlegar hendur þarfir hans, því að hann þarfnast einskis! Hann er sá sem gefur öllu líf og anda og uppfyllir allar þarfir. 26Hann skapaði hinn fyrsta mann, og frá honum mennina, sem byggja allt yfirborð jarðarinnar. Hann ákvað fyrir fram hvenær þjóðirnar skyldu komast til valda og hvenær þær skyldu líða undir lok, og hann ákvað einnig landamæri þeirra.

27Ætlun hans var að mennirnir leituðu Guðs, svo að þeir gætu nálgast hann og fundið. Hann er þó ekki fjarri neinum okkar, 28því í honum lifum, hrærumst og erum við, eins og eitt af skáldum ykkar hefur sagt: „Við erum synir Guðs.“ 29Fyrst svo er, ættum við ekki að hugsa okkur Guð sem líkneski gert af mönnum úr gulli, silfri eða höggvið í stein. 30Öldum saman hefur Guð umborið slíka fáfræði hjá fólki, en nú hvetur hann alla til að hafna skurðgoðunum og tilbiðja sig einan. 31Hann hefur ákveðið að dag einn muni hann dæma heiminn og til þess verks hefur hann valið mann og staðfest val hans með því að vekja hann upp frá dauðum.“

32Þegar fólkið heyrði Pál tala um upprisu frá dauðum, hlógu sumir, en aðrir sögðu: „Við skulum hlusta á þetta seinna.“ 33Þannig lauk viðræðum þeirra, 34en nokkrir héldu sig þó að Páli og tóku trú. Þeirra á meðal var Díónýsíus, fulltrúi í borgarráðinu, kona, Damaris að nafni, og nokkrir aðrir.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Da sinagoga ao Areópago

  • Tessalônica era uma cidade grande e populosa à beira do golfo Termaico, capital de um dos quatro distritos romanos da Macedônia, governada por um pretor. Jasom hospedou Paulo e Silas ali; uma multidão invadiu sua casa e, como os dois não foram encontrados, Jasom e alguns outros irmãos foram arrastados perante as autoridades da cidade. Foram acusados de acolher homens que desrespeitavam os decretos de César e falavam de outro rei, Jesus, e as autoridades só os soltaram depois de receber fiança.Fontes: Thessalonica · Jason · o próprio texto bíblico
  • Atenas, capital da Ática, era celebrada como sede da literatura e da arte gregas, e seus habitantes gostavam de novidades e se destacavam pelo zelo no culto aos deuses. Um satírico romano dizia que era mais fácil encontrar um deus em Atenas do que um homem. O Areópago, colina rochosa a noroeste da Acrópole, era o lugar onde funcionavam o tribunal supremo ateniense e o tribunal dos costumes, e Paulo proferiu o discurso deste capítulo de algum ponto dessa colina.Fontes: Athens · Areopagus · o próprio texto bíblico
  • Paulo e Silas chegaram a Tessalônica só depois de passar por Anfípolis, cidade macedônia e grande estação militar romana, a trinta e três milhas romanas de Filipos, e por Apolônia, a cerca de trinta e seis milhas de Tessalônica. Quando a agitação os seguiu até Bereia, outra cidade da Macedônia, os irmãos enviaram Paulo ao litoral, e os que o escoltaram o levaram até Atenas. Silas e Timóteo ficaram em Bereia, com a instrução de se juntar a Paulo assim que pudessem.Fontes: Amphipolis · Apollonia · Berea · o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Amphipolis · 40.820, 23.847 · versículo 1
  • Apollonia · 40.624, 23.470 · versículo 1
  • Thessalonica · Hoje: Thessaloniki · 40.638, 22.946 · versículos 1, 11, 13
  • Berea · Hoje: Veria · 40.518, 22.200 · versículos 10, 11, 13, 14, 15
  • Athens · 37.972, 23.727 · versículos 15, 16, 21, 22
  • Areopagus · 37.972, 23.724 · versículos 19, 22, 33

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.