Atos 14
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
1Páll og Barnabas fóru nú til samkomuhúss Gyðinga í Íkóníum og predikuðu með slíkum krafti að margir, bæði Gyðingar og heiðingjar, tóku trú. 2En þeir Gyðingar, sem höfnuðu og fyrirlitu boðskapinn frá Guði, töluðu illa um Pál og Barnabas og æstu heiðingjana gegn þeim. 3Þarna dvöldust þeir þó í langan tíma og predikuðu djarflega og Drottinn sjálfur sýndi að hann var í verki með þeim – hann lét þá gera mikil kraftaverk. 4Bæjarbúar skiptust í tvo hópa, sumir fylgdu leiðtogum Gyðinganna, en aðrir studdu postulana.
5Þegar Páll og Barnabas komust á snoðir um að heiðingjar og Gyðingar, ásamt leiðtogum þeirra, ætluðu að æsa til uppþots gegn þeim og láta grýta þá, flýðu þeir til bæjanna Lýstru og Derbe í Lýkaóníu 7og predikuðu gleðiboðskapinn þar og í grenndinni.
8Í Lýstru var maður sem var bæklaður frá fæðingu og hafði aldrei getað gengið. 9Maður þessi hlustaði á Pál predika og sá Páll að hann hafði trú til að geta orðið heilbrigður. 10Páll kallaði til hans: „Stattu upp!“ Þá spratt maðurinn á fætur og gekk um.
11Þegar fólkið sá þetta hrópaði það á eigin mállýsku: „Guðirnir eru komnir niður til okkar í mannslíki!“ 12Töldu þeir Barnabas vera gríska guðinn Seif en Pál vera Hermes, því hann hafði orð fyrir þeim. 13Presturinn í hofi Seifs, sem var fyrir utan bæinn, kom nú að hliðum bæjarins með naut, blóm og kransa. Hann ætlaði ásamt fólkinu að fórna þessu til Páls og Barnabasar.
14En þegar þeir sáu hvað verða vildi, urðu þeir undrandi og reiðir, hlupu inn í mannþröngina og hrópuðu: 15„Hvað eruð þið að gera? Við erum bara venjulegir menn eins og þið! Við komum hingað til að flytja ykkur þann gleðiboðskap að nú getið þið hætt að tilbiðja þessa heimskulegu hluti, en þess í stað tilbeðið hinn lifandi Guð, sem skapaði himin, jörð og haf og allt sem í þeim er. 16Öldum saman hefur hann leyft þjóðunum að fara sínar eigin leiðir, 17en samt skildi hann eftir vitnisburð um sjálfan sig – vitnisburð sem alltaf hefur sést. Hér á ég við allt hið góða sem hann hefur gert, til dæmis það að senda ykkur regn og góða uppskeru, ykkur til gleði og næringar.“
18Það var rétt með naumindum að Páli og Barnabasi tækist með þessum orðum að koma í veg fyrir að fólkið færði þeim fórnir.
19Örfáum dögum síðar komu nokkrir Gyðingar frá Antíokkíu og Íkóníum. Þeir æstu múginn svo upp að Páll var grýttur og dreginn út fyrir borgina, látinn að því er virtist. 20Þá söfnuðust hinir trúuðu saman umhverfis hann og reis hann þá á fætur og gekk inn í bæinn.
Daginn eftir fór hann þaðan til Derbe ásamt Barnabasi. 21Eftir að hafa boðað fagnaðarerindið þar og gert marga að lærisveinum, sneru þeir aftur til Lýstru, Íkóníum og Antíokkíu. 22Þar styrktu þeir hina trúuðu og hvöttu þá til að vera stöðuga í trúnni, þrátt fyrir ofsóknir. Minntu þá á, að áður en þeir kæmust til himna, yrðu þeir að ganga í gegnum margar þrengingar. 23Páll og Barnabas létu nú hvern söfnuð um sig kjósa sér forstöðumenn, sem þeir kölluðu öldunga. Síðan föstuðu þeir, báðu fyrir þeim og fólu þá umsjá þess Drottins, sem þeir höfðu sett traust sitt á.
24Á heimleiðinni fóru þeir um Pisidíu og Pamfýlíu 25og predikuðu aftur í Perge, en héldu síðan áfram til Attalíu.
26Loks fóru þeir með skipi áleiðis til Antíokkíu, en þaðan höfðu þeir lagt upp í ferðina, og þar höfðu þeir verið faldir Guði til þess verks, sem þeir nú höfðu lokið.
27Við heimkomuna kölluðu þeir söfnuðinn saman, gerðu grein fyrir ferðinni og sögðu frá því að Guð hefði einnig opnað heiðingjunum dyr trúarinnar. 28Eftir það dvöldust þeir lengi meðal lærisveinanna í Antíokkíu.

Você sabia?
Paulo e Barnabé na Licaônia
- Icônio era a capital da Licaônia, província romana no interior da Ásia Menor, cujas principais cidades eram Icônio, Listra e Derbe. O Dicionário Bíblico de Easton (1897) situa Icônio, a atual Konieh, no sopé do monte Tauro, a cerca de 120 milhas terra adentro; Listra ficava numa região agreste, e Derbe era uma pequena cidade a cerca de vinte milhas de Listra, na parte oriental do planalto.Fontes: Iconium · Lycaonia · Lystra · Derbe
- Quando um homem coxo desde o nascimento começou a andar, a multidão em Listra gritou na língua licaônia que os deuses tinham descido em forma humana, chamando Barnabé de Zeus e Paulo de Hermes, porque Paulo era o principal orador. O Dicionário Bíblico de Easton (1897) usa os nomes romanos Júpiter e Mercúrio e diz que Barnabé provavelmente foi tomado por Júpiter por causa de uma aparência solene e venerável; sobre a fala local, afirma que a língua era provavelmente o antigo assírio, embora outros a tenham considerado um grego corrompido misturado com palavras siríacas.Fontes: o próprio texto bíblico · Lystra · Lycaonia
- Essa passagem pela Licaônia pertence à primeira viagem missionária de Paulo, que uma cronologia data de 45 d.C. e de cerca de um ano. O Dicionário Bíblico de Easton (1897) observa que Paulo não sofreu perseguição em Derbe; de lá, ele e Barnabé voltaram a Listra, Icônio e Antioquia da Pisídia para fortalecer os discípulos e designar anciãos, e depois seguiram pela Pisídia.Fontes: First Missionary Journey · Derbe · Antioch (Pisidia) · o próprio texto bíblico
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
- Iconium · Hoje: Konya · 37.872, 32.492 · versículos 1, 19, 21
- Lycaonia · 38.000, 33.000 · versículos 6, 11
- Lystra · Hoje: Tel Lystra · 37.602, 32.338 · versículos 6, 8, 21
- Antioch · Hoje: Antioch in Pisidia · 38.306, 31.189 · versículos 19, 21
- Pamphylia · 37.000, 31.000 · versículo 24
- Pisidia · 38.306, 31.189 · versículo 24
- Attalia · Hoje: Antalya · 36.881, 30.704 · versículos 25, 26
- Perga · 36.960, 30.854 · versículo 25
- Antioch · Hoje: Antioch on the Orontes · 36.227, 36.172 · versículos 26, 27
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org