Nations Bible

Atos 10

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Engillinn birtist Kornelíusi

1Í Sesareu bjó rómverskur maður, Kornelíus, og var hann foringi yfir ítalskri hersveit. 2Hann var guðrækinn og ráðvandur og sömu sögu var að segja um allt hans heimafólk. Hann var örlátur við fátæka og þurfandi, og mikill bænamaður. 3Um þrjúleytið, dag einn, sá hann sýn. Hann var glaðvakandi þegar þetta gerðist. Hann sá engil Drottins koma til sín og segja:

„Kornelíus!“

4Kornelíus varð hræddur, starði á engilinn og spurði:

„Hvað viltu, herra?“

Engillinn svaraði: „Guð hefur ekki gleymt bænum þínum og kærleiksverkum. 5Sendu nú menn til Joppe til að hafa uppi á manni, sem heitir Símon Pétur og dvelst hjá Símoni sútara, en hann á heima niðri við sjóinn. Biddu hann að koma og heimsækja þig.“

7Þegar engillinn var farinn, kallaði Kornelíus á tvo þjóna og guðrækinn hermann – náinn vin sinn. 8Hann sagði þeim hvað gerst hafði og sendi þá áleiðis til Joppe.

9Um hádegisbilið daginn eftir nálguðust mennirnir Joppe og um líkt leyti fór Pétur upp á þak hússins til að biðjast fyrir. Á þakinu fann Pétur til hungurs. Meðan hann beið þar eftir matnum sá hann sýn. 11Hann sá himininn opnast og stóran ferhyrndan dúk, sem hékk uppi á hornunum, síga til jarðar. 12Á dúknum voru alls konar ferfætt dýr, snákar og fuglar (sem Gyðingum er óheimilt að nota til matar).

13Þá heyrði hann rödd sem sagði: „Slátraðu því sem þú vilt og borðaðu.“

14„Nei, Drottinn! Það geri ég ekki,“ sagði Pétur, „ég hef aldrei á ævi minni borðað slíkar skepnur, enda er það bannað samkvæmt lögum okkar Gyðinga.“

15Þá kom röddin aftur og sagði: „Dirfist þú að rengja Guð? Ef hann segir eitthvað leyfilegt, þá er það leyfilegt!“

16Þetta endurtók sig þrisvar sinnum, en síðan var dúkurinn dreginn aftur upp til himins. 17Pétur var alveg ringlaður. Hvað gat þessi sýn eiginlega þýtt, hugsaði hann, og hvað var honum ætlað að gera?

Rétt í því hafði mönnum Kornelíusar tekist að finna húsið. Þeir stóðu fyrir utan hliðið 18og spurðu hvort Símon Pétur væri þar.

19Pétur var enn að velta fyrir sér sýninni, þegar heilagur andi sagði við hann: „Hingað eru komnir þrír menn, sem vilja finna þig. 20Farðu niður, taktu á móti þeim og farðu síðan með þeim. Hafðu engar áhyggjur, þeir eru á mínum vegum.“

21Þá fór Pétur niður og sagði: „Ég er maðurinn, sem þið eruð að leita að. Hvað viljið þið mér?“

22Þeir sögðu honum þá frá Kornelíusi, rómverska liðsforingjanum, sem væri góður og guðrækinn maður, vel þokkaður af Gyðingum og að engill hefði sagt honum hvað hann ætti að gera.

Pétur heimsækir Kornelíus

23Pétur bauð þeim inn og þar gistu þeir um nóttina. Daginn eftir lagði hann af stað með þeim til Joppe, ásamt nokkrum öðrum trúuðum mönnum, 24og þar næsta dag komu þeir til Sesareu.

Kornelíus átti von á Pétri og hafði því kallað saman ættingja sína og vini, svo þeir fengju líka að hitta hann. 25Þegar Pétur gekk inn féll Kornelíus til fóta honum og sýndi honum lotningu.

26„Stattu upp, maður!“ sagði Pétur, „ég er ekki Guð!“

27Síðan ræddust þeir við stutta stund, en fóru því næst inn til hinna.

28Pétur ávarpaði viðstadda með þessum orðum: „Þið vitið, að það er andstætt lögum okkar Gyðinga að ég komi inn á heimili heiðingja eins og ég hef nú gert. En Guð opinberaði mér í sýn að ég mætti aldrei fyrirlíta nokkurn mann. 29Ég kom því jafnskjótt og ég var beðinn. Segið mér nú hvað þið viljið mér.“

30Kornelíus svaraði og sagði: „Fyrir réttum fjórum dögum var ég á bæn, eins og ég er vanur á þessum tíma dags. Þá stóð skyndilega maður fyrir framan mig og það lýsti af honum! 31Hann sagði við mig: „Kornelíus, Guð hefur ekki gleymt bænum þínum né kærleiksverkum. 32Nú skaltu senda menn til Joppe og boða til fundar við þig Símon Pétur, sem er staddur á heimili Símonar sútara niðri við sjóinn.“ 33Ég sendi því strax eftir þér og þú gerðir vel að koma svona fljótt. Nú erum við hér frammi fyrir Drottni og bíðum þess, fullir eftirvæntingar, að heyra það sem hann vill að þú segir okkur.“

34„Mér er orðið ljóst,“ svaraði Pétur, „að Guð tekur ekki Gyðinga fram yfir aðra menn. 35Hann tekur vel á móti hverjum þeim sem tilbiður hann og lætur trú sína birtast í grandvarleik og góðum verkum. 36Ég er viss um að þið hafið heyrt gleðiboðskapinn sem barst Ísraelsþjóðinni – að við getum sæst við Guð fyrir trú á Jesú Krist, hann sem er Drottinn allra. Þessi boðskapur barst frá Galíleu og um alla Júdeu á dögum Jóhannesar skírara. 38Eflaust vitið þið líka, að Guð smurði Jesú frá Nasaret með heilögum anda og krafti. Hann fór víða, vann kærleiksverk og græddi alla, sem undirokaðir voru af djöflinum, því að Guð var með honum.

39Við postularnir erum vottar alls þess sem hann gerði í Ísrael og Jerúsalem, þar sem hann var síðar deyddur á krossi. 40Að þrem dögum liðnum reisti Guð hann upp frá dauðum og lét hann birtast – ekki almenningi – heldur okkur, vottunum, sem hann hafði útvalið áður. Við átum og drukkum með honum eftir upprisu hans. 42Síðan sendi hann okkur til að boða gleðiboðskapinn og bera því vitni, að hann sé settur af Guði til að vera dómari allra, bæði lifandi og dauðra. 43Spámennirnir hafa líka skrifað um hann, allir sem einn, og sagt að hver sem á hann trúi, muni hans vegna, fá fyrirgefningu syndanna.“

44Meðan Pétur var að tala, kom heilagur andi allt í einu yfir þá sem hlustuðu. 45Gyðingarnir, sem komu með Pétri, urðu forviða! Þeir áttu ekki von á að gjöf heilags anda hlotnaðist einnig heiðingjunum. 46En hér var ekki um að villast, því þeir heyrðu þá tala tungum og lofa Guð!

Þá spurði Pétur: „Hafið þið nokkuð á móti því að við skírum þá, fyrst þeir hafa tekið á móti heilögum anda á sama hátt og við?“ 48Síðan voru þeir allir skírðir í nafni Jesú Krists og að því loknu bað Kornelíus hann að dvelja hjá sér nokkra daga.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Pedro e os gentios em Cesareia

  • Cesareia, onde Cornélio morava, ficava no litoral do Mediterrâneo, na estrada de Tiro para o Egito, cerca de setenta milhas a noroeste de Jerusalém. O Easton's Bible Dictionary (1897) afirma que Herodes, o Grande, a construiu em 10 a.C., no lugar da Torre de Estratão, e lhe deu o nome de César Augusto. A mesma obra a chama de capital da província romana da Judeia, sede dos governadores e a grande cidade gentia da Palestina.Fontes: Caesarea · o próprio texto bíblico
  • Cornélio era centurião do que se chamava o Regimento Italiano. Ele e toda a sua casa eram devotos e tementes a Deus; dava com generosidade ao povo e orava a Deus regularmente. O Easton's Bible Dictionary (1897) diz que morar em Cesareia provavelmente o pôs em contato com judeus e com as expectativas deles a respeito do Messias, e que ele e sua família foram batizados.Fontes: Cornelius · o próprio texto bíblico
  • Pedro estava hospedado em Jope com Simão, o curtidor, um cristão cuja casa ficava à beira-mar. Jope, o principal porto da Judeia, situava-se num promontório arenoso entre Cesareia e Gaza, cerca de trinta milhas a noroeste de Jerusalém. Uma cronologia desses acontecimentos data o encontro de Pedro com Cornélio no ano 38 d.C.Fontes: Simon the Tanner · Joppa · o próprio texto bíblico · Peter meets Cornelius

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Caesarea · Hoje: Caesarea Maritima · 32.500, 34.892 · versículos 1, 24
  • Joppa · Hoje: Jaffa · 32.054, 34.753 · versículos 5, 8, 23, 32
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 37
  • Judea · Hoje: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículos 37, 39
  • Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 38
  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 39

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.