Nations Bible

2 Coríntios 7

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

1Kæru vinir, fyrst við eigum slík loforð sem þessi, snúum þá baki við öllu sem rangt er, hvort sem það er líkamlegt eða andlegt. Hreinsum okkur, lifum í sannri trú og gefum okkur Guði einum á vald.

2Því segi ég ykkur: Opnið hjörtu ykkar á ný fyrir okkur, því að ekkert ykkar hefur orðið að þola neitt rangt af okkar hendi. Ekkert ykkar leiddum við afvega. Ekki höfum við svikið neitt ykkar eða rænt ykkur neinu. 3Þetta segi ég ekki í ávítunartón eða til að ásaka ykkur, því – eins og ég hef áður sagt – þá elska ég ykkur í lífi og dauða. 4Ég ber mikið traust til ykkar og er mjög hreykinn af ykkur. Þið hafið orðið mér til mikillar uppörvunar og glatt mig stórlega í öllum þrengingum mínum.

Sársauki getur einnig orðið til góðs

5Þegar við komum til Makedóníu, höfðum við enga eirð. Erfiðleikar mættu okkur hvert sem litið var. Bæði ytra og innra var ótti og barátta. 6En sá Guð, sem huggar niðurbeygða, styrkti okkur einmitt þá með því að senda Títus til okkar. 7En heimsókn Títusar var ekki eina uppörvunin, heldur einnig fréttirnar, sem hann flutti okkur, um þá yndislegu dvöl sem hann átti hjá ykkur. Mikið gladdist ég þegar hann sagði mér hversu mjög þið hlökkuðuð til að sjá mig og hve leitt ykkur þótti það sem fyrir kom. Já, það gladdi mig að heyra um tryggð ykkar og hlýhug til mín. 8Nú er ég ekki lengur hryggur út af þessu bréfi sem ég sendi ykkur. Ég var mjög hryggur um tíma, því að ég vissi að bréfið mundi valda ykkur miklum sársauka, þó aðeins um skamma hríð. 9Nú finnst mér gott að ég skyldi hafa sent það, ekki vegna þess að það særði ykkur, heldur vegna þess að sársaukinn leiddi ykkur til Guðs. Hryggðin sem náði tökum á ykkur, varð til góðs. Það er sú hryggð sem Guð vill finna meðal barna sinna og því þarf ég ekki að vera strangur við ykkur þegar ég kem. 10Stundum notar Guð hryggð okkar til að leiða okkur frá syndinni og til eilífs lífs og þá verður hún okkur til blessunar. Hryggð hinna er hins vegar ekki sú sem fylgir sannri iðrun og forðar því ekki frá eilífum dauða.

11Sjáið nú til: Þessi hryggð frá Guði varð ykkur til góðs. Kæruleysið hvarf, en í staðinn urðuð þið grandvör og einlæg og vilduð umfram allt losna við syndina, sem ég benti ykkur á í bréfi mínu. Þið urðuð hrædd vegna þess sem gerst hafði og þráðuð að ég kæmi og hjálpaði ykkur. Þið sneruð ykkur strax að því að leysa vandann og upplýsa málið. Þið hafið gert allt, sem í ykkar valdi stóð, til að koma þessu í lag.

12Ég skrifaði ykkur til þess að umhyggja ykkar fyrir okkur yrði Guði augljós. Sá var tilgangur minn með bréfinu, miklu fremur en sá að hjálpa manninum sem syndgaði eða þeim sem var órétti beittur.

13Auk þeirrar uppörvunar, sem þið veittuð okkur með kærleika ykkar, þá glöddumst við enn meir vegna Títusar, vegna þess hve hann varð glaður og hve vel þið tókuð á móti honum. 14Ég sagði honum hvernig allt ætti að vera. Ég sagði honum líka hve hreykinn ég væri af ykkur, áður en hann lagði af stað – og ég varð ekki fyrir vonbrigðum með ykkur. Ég hef alltaf sagt ykkur sannleikann og hrós það, sem ég veitti ykkur í áheyrn Títusar, hefur einnig reynst rétt. 15Kærleikur hans til ykkar er meiri nú en nokkru sinni fyrr, einmitt vegna þess að hann minnist þess hve fús þið voruð að hlusta á orð hans og hve áhugi ykkar og einlægni ristu djúpt. 16Nú er ég glaður! Nú veit ég að allt er komið í lag okkar á milli. Enn einu sinni get ég sagt: Ég ber fullkomið traust til ykkar.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Consolo depois de uma carta dolorosa

  • A Macedônia, onde Paulo diz que chegou sem descanso no corpo — conflitos por fora e temores por dentro —, era uma província romana ao norte da Grécia. Ali, ele escreve, o Deus que consola os abatidos o consolou com a chegada de Tito.Fontes: Macedonia · o próprio texto bíblico
  • Paulo fala de uma carta que os entristeceu, mas só por pouco tempo. Agora ele se alegra não porque ficaram tristes, mas porque essa tristeza os levou ao arrependimento; diz que sentiram a tristeza que Deus havia disposto, não foram prejudicados por ele e mostraram empenho, zelo e inocência naquele assunto.Fontes: o próprio texto bíblico
  • Um breve relato descreve Tito como companheiro de Paulo, aparentemente um gentio que se dedicava sobretudo a ministrar aos gentios. Neste capítulo, Paulo diz que a chegada de Tito o consolou, que Tito contou a saudade, o pranto e o zelo deles, e que receberam Tito com temor e tremor.Fontes: Titus · o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Macedonia · 41.600, 22.540 · versículo 5

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.