2 Coríntios 10
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
Páll gerir grein fyrir valdi sínu
1Nú bið ég ykkur – já, ég Páll – og það af einlægni og mildi eins og Kristur mundi gera. Sum ykkar segja reyndar að ég sé harðorður í bréfum mínum en þori svo ekki að opna munninn þegar á hólminn er komið!
2Ég vona að ég þurfi ekki að sýna ykkur myndugleika og hörku þegar ég kem. Ég hef ekki áhuga á að láta til skarar skríða gegn þeim ykkar sem virðast halda að orð mín og verk séu rétt eins og gerist hjá fólki almennt. 3Satt er það, ég er ósköp venjulegur, veikburða maður, en ég nota þó ekki mannleg áform og mannlegar aðferðir til að vinna mína sigra. 4Ég nota ekki mannleg vopn, heldur hin öflugu vopn Guðs og með þeim brýt ég niður vígi Satans. 5Þessi vopn kveða niður öll hrokafull stóryrði sem beint er gegn Guði og ryðja öllum þeim hindrunum úr vegi, sem settar eru upp til að útiloka menn frá Guði. Með vopnum þessum get ég yfirbugað uppreisnarseggi, leitt þá fram fyrir Guð og breytt þeim í menn sem þrá það eitt að hlýðnast Kristi. 6Ég mun nota þessi vopn gegn ykkur til að þið gefist upp fyrir Kristi og ekki hætta fyrr en síðasti andófsmaðurinn fellur.
7Gallinn við ykkur er sá að þegar þið horfið á mig, þá sjáið þið aðeins hið veika og vanmáttuga. Af hverju gægist þið ekki inn fyrir skinnið? Ef nokkur telur sig hafa mátt Krists og myndugleika, þá er það ég! 8Sumum finnst ég kannski hrósa mér meira en góðu hófi gegnir, af valdi því sem ég hef yfir ykkur – og nota ykkur til hjálpar en ekki til tjóns – en ég skal standa við hvert orð. 9Þetta segi ég svo þið haldið ekki að ég sé að hræða ykkur með áminningum í bréfum mínum.
10„Kærið ykkur kollótt um þessi bréf hans,“ segja sumir. „Hann er að vísu stórorður en það er ekkert að marka. Þegar hann kemur, þá getið þið séð að þar er ekki stórmenni á ferð og lélegri predikara þekkjum við ekki!“ 11Ég skal segja ykkur eitt: Næst þegar ég kem verð ég strangur, jafn strangur og ég hef verið í bréfum mínum.
12En verið ekki áhyggjufull! Ég mun ekki dirfast að bera mig saman við fjálglegar lýsingar þeirra á sjálfum sér. Þeir eru því miður alltaf að bera sig saman hver við annan. Þeir vega sjálfa sig og meta á sinn eigin smáa mælikvarða. Ja, hvílík heimska!
13En við? – við hrósum okkur ekki meira en efni standa til. Okkur er efst í huga að ná markinu sem Guð setti okkur, og starf okkar á meðal ykkar er unnið með það í huga. 14Við tökum ekki of djúpt í árinni þótt við segjumst hafa vald yfir ykkur, því að við vorum þeir fyrstu sem fluttu ykkur gleðifréttirnar um Krist. 15Við hrósum okkur ekki fyrir eitthvað sem aðrir hafa gert á meðal ykkar. Nei, en við vonum að trú ykkar vaxi og sömuleiðis starf okkar, ykkar á meðal, þó innan þeirra marka sem Drottinn hefur sett okkur.
16Eftir það getum við farið og predikað gleðiboðskapinn annars staðar, í borgum sem standa enn fjær, þar sem enginn hefur enn hafið starf. Þar verður engin hætta á að við fiskum á annarra miðum. 17Í Biblíunni stendur: „Vilji einhver hrósa sér, þá hrósi hann því, sem Drottinn hefur gert, en ekki hann sjálfur.“ 18Hrósi einhver sjálfum sér og verki sínu, þá er af litlu að státa, en mæli Drottinn með honum, horfir öðruvísi við.

Você sabia?
Cartas, presença e uma guerra que não é deste mundo
- Algumas pessoas avaliavam Paulo pela aparência e pela fala. Admitiam que as cartas dele eram pesadas e enérgicas, mas diziam que a presença física não impressionava e que o falar não tinha valor. Ele responde que o que é nas cartas, quando ausente, será também nas ações, quando estiver presente.Fontes: o próprio texto bíblico
- Ele descreve o conflito em termos militares, mas não como uma luta comum. Viver na carne, diz ele, não significa guerrear segundo a carne. As armas de que fala não são as do mundo; têm poder divino para derrubar fortalezas, desfazer argumentos e toda pretensão levantada contra o conhecimento de Deus, e levar todo pensamento à obediência a Cristo.Fontes: o próprio texto bíblico
- Paulo não quer gloriar-se além do campo de influência que Deus lhe designou, um campo que já inclui os leitores, pois foi o primeiro a chegar até eles com o evangelho de Cristo. Quem se gloria, diz ele, deve gloriar-se no Senhor; a aprovação não é de quem recomenda a si mesmo, mas daquele a quem o Senhor recomenda.Fontes: o próprio texto bíblico
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
- Corinth · 37.906, 22.879 · versículo 14
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org