Nations Bible

1 Pedro 2

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Einkalýður Guðs

1Burt með allt hatur úr hugum ykkar! Látið ykkur ekki nægja að aðrir haldi að þið séuð kærleiksrík! Látið óheiðarleika og öfundsýki lönd og leið og hættið að baktala náungann. 2Ef þið hafið fengið að kynnast góðvild og kærleika Drottins, biðjið þá um meira af slíku – rétt eins og ungbarnið sem sækist eftir meiri mjólk – svo að þið vaxið og styrkist í Drottni. 4Komið til Krists, hins lifandi kletts, sem Guð byggir á. Þótt menn hafi hafnað honum er hann óumræðilega dýrmætur í augum Guðs og Guð hefur tekið hann fram yfir alla aðra.

5Nú eruð þið orðin að lifandi hleðslusteinum, sem Guð notar í byggingu sína og meira en það, þið eruð helguð honum til prestsþjónustu. Gangið því fram fyrir Guð – þið eruð velkomin vegna þess sem Jesús hefur gert – og fórnið honum því sem honum fellur vel. 6Um þetta segir Biblían: „Sjá ég sendi Krist sem hinn dýrmæta og útvalda hornstein í kirkju mína. Þennan stein hef ég valið af mikilli kostgæfni og þeir, sem honum treysta, munu aldrei verða fyrir vonbrigðum.“

7Ykkur, sem trúið, er hann mjög dýrmætur, en þeim, sem hafna honum, er hann einskis virði. Þessu lýsir Biblían svo: „Steinninn, sem byggingameistararnir höfnuðu, er orðinn að hornsteini, mikilvægasta steini byggingar minnar, þeim er mestrar virðingar nýtur.“ 8Biblían segir enn fremur: „Um þennan stein munu sumir hrasa. Hann er kletturinn, sem þeim verður að falli.“ Þeir munu hrasa vegna þess að þeir vilja hvorki hlusta á orð Guðs né hlýða því og þess vegna hlýtur að fylgja sú hegning að þeir falli.

9En þið eruð ekki þannig, því að sjálfur Guð hefur valið ykkur. Þið eruð prestar hins æðsta konungs. Þið eruð heilög og hrein. Þið eruð þjóð Guðs, hans eigið fólk. Þið eigið að segja öðrum hvernig Guð kallaði ykkur út úr myrkrinu og inn í undursamlegt ljós sitt. 10Áður voruð þið einskis nýt, en nú eruð þið fólk Guðs. Áður voru þið fáfróð um gæsku Guðs, en nú hefur hún breytt lífi ykkar.

11Kæru vinir, þið eruð aðeins gestir á þessari jörð, því að hið raunverulega heimili ykkar er á himnum. Þess vegna bið ég ykkur að forðast allar illar nautnir þessa heims, því að þær spilla hjörtum ykkar.

12Gætið þess hvernig þið hegðið ykkur meðal nágranna ykkar, sem ekki eru frelsaðir, svo að þeir lofi Guð fyrir góðverk ykkar á þeirri stund er Guð vitjar þeirra, enda þótt þeir tortryggi ykkur nú og tali illa um ykkur. 13Hlýðið Drottins vegna lögunum sem yfirvöldin setja, bæði þeim sem konungurinn setur sem æðsti maður ríkisins 14og einnig þeim sem embættismenn konungsins setja, því að þeim ber, sem fulltrúum hans, að refsa öllum sem lögin brjóta, en jafnframt að heiðra þá sem rétt gera.

15Guð vill að líferni ykkar og breytni verði til þess að þagga niður í þeim, sem í fáfræði sinni fordæma fagnaðarerindið. Þessir menn vita ekki að hvaða gagni það gæti komið þeim, því að þeir hafa aldrei reynt kraft þess. 16Þið eruð frjálst fólk, en það táknar ekki að þið eigið að nota frelsi ykkar til að gera það sem rangt er, notið það einungis til þess sem er vilji Guðs.

17Sýnið öllum virðingu og elskið alla kristna menn. Óttist Guð og hlýðið yfirvöldunum.

18Þjónar, þið verðið að sýna húsbændum ykkar virðingu og gera það sem þeir segja ykkur – ekki aðeins þeim sem eru tillitssamir og góðir, heldur einnig hinum freku og ruddalegu. 19Lofið Drottin, ef ykkur er refsað fyrir að gera það sem rétt er! 20„Hvers vegna?“ spyrjið þið. Hver haldið þið að hrósi ykkur fyrir að sýna þolinmæði á stundu refsingar, ef þið eigið refsinguna skilið? Hafið þið hins vegar gert rétt, en þó verið barðir og tekið höggunum með þolinmæði, eruð þið Guði að skapi.

21Þjáningar sem þessar, eru hluti þess sem Guð ætlaði ykkur að þola. Kristur þjáðist fyrir ykkur og hann er fyrirmynd ykkar; fetið í hans fótspor! 22Hann syndgaði ekki og aldrei sagði hann ósatt. 23Væri honum hallmælt, svaraði hann aldrei í sömu mynt og ekki hótaði hann kvölurum sínum hefnd heldur lagði mál sitt í hendur Guðs, sem allt dæmir af réttvísi. 24Hann bar syndir okkar á sínum eigin líkama og dó fyrir þær á krossinum, svo að við gætum frelsast frá þeim og lifað guðrækilega upp frá því. Sárin hans læknuðu sárin okkar. 25Þið voruð eins og lömb sem höfðu villst burt frá Guði, en nú hafið þið snúið aftur til þess hirðis, sem leiðir sálir ykkar og verndar ykkur gegn öllum hættum.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Pedras vivas e um povo escolhido

  • Este capítulo cita a Escritura sobre uma pedra angular escolhida e preciosa colocada em Sião: quem nela crê jamais será envergonhado. Sião era a colina do sudeste de Jerusalém, uma das elevações sobre as quais a cidade foi construída, cercada por vales profundos de todos os lados, exceto o norte.Fontes: o próprio texto bíblico · Zion
  • Davi tomou Sião dos jebuseus, construiu ali uma cidadela e um palácio, e a colina passou a ser conhecida como a cidade de Davi. A carta usa esse nome de lugar ao citar a Escritura sobre uma pedra angular colocada em Sião e descreve os leitores como pedras vivas, edificadas como casa espiritual e sacerdócio santo.Fontes: Zion · o próprio texto bíblico
  • O capítulo exorta à submissão, por causa do Senhor, a toda instituição humana: ao rei, como autoridade suprema, e aos governadores enviados para punir os que fazem o mal e louvar os que fazem o bem. Diz aos servos que respeitem até os senhores que agem sem razão, e apresenta o sofrimento de Cristo — sem pecado, sem engano, sem ameaças e sem retaliação — como modelo para suportar a dor injusta.Fontes: o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Zion · Hoje: Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 6

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.