Nations Bible

1 Coríntios 9

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Páll útskýrir postulahlutverk sitt

1Ég er postuli, sendiboði Guðs, og ábyrgur gagnvart honum einum. Ég hef séð Drottin Jesú, konung okkar, með eigin augum og trú ykkar á hann er árangur erfiðis míns fyrir hann. 2Finnist öðrum ég ekki vera postuli, þá er ég það samt í ykkar augum, því þið hafið gefist Kristi vegna starfs míns. 3Þetta er svar mitt til þeirra sem efast um rétt minn.

4Hef ég kannski engan rétt? Get ég ekki krafist sömu réttinda og hinir postularnir til að njóta gestrisni ykkar? 5Ef ég ætti kristna eiginkonu, gæti ég þá ekki tekið hana með mér í ferðir mínar alveg eins og postularnir, bræður Drottins, og Pétur? 6Verðum við Barnabas einir að vinna fyrir okkur, á meðan þið haldið hinum uppi? 7Hvaða hermaður verður að greiða kostnaðinn við herþjónustuna úr eigin vasa? Hafið þið nokkru sinni heyrt um bónda sem hirðir tún sín en er síðan meinað að nýta heyið til eigin þarfa? Og hvaða sjómaður er ráðinn á bát án þess að fá hlut? 8Hér er ég ekki aðeins að vitna í skoðanir manna um hvað sé rétt, heldur í lög Guðs, því þau segja þetta sama. 9Í lögunum, sem Guð birti Móse, segir hann að ekki megi múlbinda uxa sem þreskir korn og meina honum þannig að eta af korninu. Haldið þið að Guð hafi eingöngu verið að hugsa um uxana er hann sagði þetta? 10Var hann ekki líka með okkur í huga er hann gaf þessi fyrirmæli? Vitaskuld! Hann sagði þetta til þess að sýna að þeir sem vinna, skuli fá borgað fyrir störf sín. Þeir sem plægja og þreskja, ættu að fá hluta uppskerunnar.

11Við höfum sáð andlegu sæði í sálir ykkar. Er þá of mikið að fara fram á fæði og klæði að launum? 12Þetta veitið þið öðrum sem predika yfir ykkur, enda ber ykkur að gera slíkt, en ættum við ekki að hafa jafnvel meiri rétt en þeir? Samt höfum við aldrei krafist þess, heldur sjáum við fyrir þörfum okkar án hjálpar ykkar. Við höfum aldrei krafist launa, af ótta við að ef við gerðum það þá hefðuð þið minni áhuga á boðskap okkar um Krist.

13Vitið þið ekki að Guð lagði svo fyrir að þeir sem vinna við musterið, skuli njóta hluta þeirra gjafa sem berast til musterisins? Og þeir sem starfa við fórnaraltarið fá hluta þess matar sem fórnað er Guði? 14Á sama hátt hefur Drottinn gefið fyrirmæli um að þeir sem flytja gleðiboðskapinn, skuli hljóta lífsviðurværi sitt frá þeim sem við honum taka. 15Samt hef ég aldrei beðið ykkur um eina einustu krónu, hvað þá meira. Þetta skrifa ég ekki til að gefa í skyn að ég hafi slíkt í hyggju. Satt að segja vildi ég frekar deyja úr hungri en að verða af þeirri ánægju, sem ég fæ við að flytja ykkur gleðiboðskapinn án endurgjalds. 16Það eitt að flytja gleðiboðskapinn er mér ekkert hrósunarefni. Ég gæti ekki hætt þótt ég vildi. Þá yrði ég ófær til alls. Ég væri búinn að vera ef ég hætti að boða Guðs orð.

17Ef ég væri í sjálfboðavinnu af eigin frumkvæði og vilja þá mundi Guð launa mér ríkulega, en þannig er því ekki farið. Því að Guð hefur kallað mig til þessa verks, falið mér þetta trúnaðarstarf, og ég á hreint ekkert val. 18Fyrst svo er, hvað hlýt ég þá að launum? Jú, þá gleði og fögnuð sem fylgir því að flytja boðskapinn öðrum að kostnaðarlausu og án þess að krefjast þess sem mér ber.

19Það hefur einnig þann mikla kost að ég er engum háður vegna launanna, þó hef ég af fúsum og frjálsum vilja gerst allra þjónn, svo ég geti unnið þá fyrir Krist. 20Þegar ég er með Gyðingum er ég sem einn þeirra, svo þeir vilji hlusta á boðskapinn og ég geti leitt þá til Krists. Þegar ég er meðal þeirra sem ekki eru Gyðingar, en fylgja þó siðum þeirra og venju, þá deili ég ekki við þá, jafnvel þótt ég sé þeim ekki sammála, því ég vil geta hjálpað þeim. 21Þegar ég er meðal heiðingja er ég þeim sammála að svo miklu leyti sem ég get, þó auðvitað verð ég sem kristinn maður að gera alltaf það sem rétt er. Þannig vinn ég traust þeirra og þá get ég líka hjálpað þeim.

22Þegar ég er með þeim sem viðkvæmir eru og óstyrkir, þá læt ég ógert að finna að við þá, til þess að ég geti orðið þeim til góðs. Hvernig sem maðurinn er þá reyni ég alltaf að vera honum sammála að einhverju leyti, til að ég geti nálgast hann, sagt honum frá Kristi og Kristur frelsi hann. 23Þetta geri ég til þess að ég geti komið gleðiboðskapnum að og einnig vegna þeirra blessunar er ég sjálfur hlýt við að sjá fólk koma til Krists.

Leggið hart að ykkur – og vinnið sigur!

24Í kapphlaupi hlaupa allir en aðeins einn fær gullið. Hlaupið þannig að þið getið sigrað! 25Til að vinna keppni verður þú að neita þér um ýmislegt, sem hindrað gæti árangur þinn. Íþróttamaður leggur hart að sér, til þess eins að vinna fánýtan verðlaunagrip, en við til að vinna himnesk laun, sem vara að eilífu. 26Ég stefni því beint á markið og hvert skref færir mig nær sigrinum – ég keppi til sigurs! Ég er ekki að þessu til að leika mér eða eyða tímanum. 27Ég leik sjálfan mig hart eins og íþróttamaður. Ég aga mig og þjálfa til þess að ég, sem hef lagt öðrum lífsreglurnar, verði ekki sjálfur dæmdur úr leik!

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Um apóstolo que recusa o sustento

  • A tradição da Igreja atribui este capítulo a Paulo, que defende o seu apostolado diante de quem o examina, chama os seus leitores de selo do seu apostolado no Senhor e reivindica o direito à comida e à bebida e a uma esposa crente, como fazem os outros apóstolos, os irmãos do Senhor e Cefas. Ele diz que não usou esse direito, preferindo oferecer o evangelho de graça a criar obstáculo a ele.Fontes: o próprio texto bíblico
  • Ele pergunta se ele e Barnabé são os únicos que precisam trabalhar para se sustentar, em vez de serem sustentados pelo evangelho. Barnabé, "filho da consolação", era o sobrenome de Joses, um levita natural de Chipre, que vendeu uma terra que possuía ali; o dicionário bíblico de Easton (1897) também diz que Barnabé apresentou Paulo aos apóstolos quando Paulo voltou a Jerusalém após a sua conversão.Fontes: o próprio texto bíblico · Barnabas
  • Para defender a parte do trabalhador na colheita, ele cita a Lei de Moisés: "Não amordaces o boi enquanto ele debulha o cereal", e diz que o lavrador e o que debulha devem esperar participar da colheita. Acrescenta que os que trabalham no templo comem do alimento do templo e os que servem ao altar participam das ofertas, e que o Senhor determinou o mesmo tipo de sustento para os que anunciam o evangelho.Fontes: o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.