1 Coríntios 14
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
1Keppið eftir kærleikanum og sækist eftir gjöfum og hæfileikum heilags anda, sér í lagi spádómsgjöfinni, en hún gerir okkur kleift að flytja öðrum boðskap og skilaboð frá Guði.
Tungutal
2Hafir þú hlotið þá náðargjöf að tala tungum – tala orð sem heilagur andi leggur þér í munn – þá talar þú við Guð en ekki menn, því þeir munu ekkert skilja. Þú talar í krafti andans, en það er öðrum óskiljanlegt og leyndardómsfullt. 3En sá sem spáir – það er flytur boðskap frá Drottni – hjálpar öðrum að vaxa í trúnni á Guð, hann uppörvar þá og huggar. 4Sá sem talar tungum, hjálpar sjálfum sér til andlegs þroska, en sá sem flytur orð Guðs, spáir, hjálpar öllum söfnuðinum til að vaxa að helgun og gleði trúarinnar.
5Ég vildi óska að þið gætuð öll talað tungum, þó vildi ég enn frekar að þið gætuð spáð, því að það er meiri og gagnlegri hæfileiki en að tala tungum – nema ef þið getið túlkað það fyrir öðrum, til að söfnuðurinn hafi gagn og fræðslu af.
6Kæru vinir, ef ég kæmi til ykkar og talaði tungumál sem þið skilduð ekki – hvaða gagn væri ykkur að því? Það sem kemur ykkur að raunverulegu gagni er að ég greini ykkur skilmerkilega frá því sem Guð hefur opinberað mér. Segi ykkur frá því sem ég þekki og líka því sem á eftir að gerast, hlutum sem verða ykkur til leiðbeiningar í trúnni. 7Ég ætla að taka dæmi: Ef dauðir hlutir eins og flauta eða harpa gefa frá sér óskýran eða falskan tón, hver þekkir þá lagið sem leikið er? 8Sama er að segja um herlúðurinn. Sé blásið rangt í hann, þá vita hermennirnir ekki hvort verið sé að kalla þá til orustu. 9Eins er ef þú talar við mann á máli sem hann skilur ekki, hann veit ekki hvað þú ert að segja. Þú gætir þá alveg eins talað út í bláinn!
10Öll tungumál sem menn tala í heiminum eru gagnleg þeim sem þau skilja, 11en þeim sem ekki skilur, eru þau algjörlega marklaus. Sá sem talaði við mig á slíku máli, væri jafn ókunnugur eftir sem áður. 12Fyrst þið sækist eftir gjöfum heilags anda, biðjið hann þá um þá mikilvægustu – þá sem getur orðið kirkjunni í heild að sem mestu gagni.
13Sá sem hefur hæfileika til að tala tungum, ætti líka að biðja um hæfileika til að túlka það sem hann hefur sagt, til þess að hann geti útskýrt það fyrir fólki, vel og greinilega. 14Ef ég bið í tungum, þá biður andi minn, en sjálfur skil ég ekki hvað ég segi. 15Hvað á ég þá að gera? Hvort tveggja. Ég vil biðja í tungum og líka á venjulegu máli, sem allir skilja. Ég vil syngja í tungum, en líka á venjulegu máli, svo ég geti skilið lofgjörð þá sem ég flyt. 16Því ef þú aðeins lofar og þakkar Guði í andanum og talar tungum, hvernig geta þá þeir, sem ekki skilja þig, tekið þátt í lofgjörðinni? Hvernig geta þeir tekið undir þakkargjörð þína ef þeir vita ekki hvað þú ert að segja? 17Þú myndir vissulega þakka afar fallega, en þeir sem heyra njóta þess ekki.
18Ég er þakklátur Guði fyrir að í einrúmi tala ég tungum meira en þið öll. 19Í guðsþjónustu vil ég þó frekar segja fimm orð sem allir skilja og verða til gagns, en tíu þúsund á óskiljanlegu máli.
20Kæru vinir, verið ekki barnaleg í skilningi ykkar á þessum hlutum. Verið sem saklaus börn þegar ráðið er illráðum, en fullþroska að dómgreind í þessum málum. 21Í Biblíunni er sagt að Guð muni senda þjóð sinni útlenda menn, sem tala óskiljanleg mál, en samt muni þjóð hans ekki hlusta. 22Af þessu sjáið þið að tungutalið er tákn þeim sem ekki trúa – þeir skilja ekki það sem Guðs er. Spádómsgáfan er hins vegar það sem kristnir menn þurfa sérstaklega á að halda. Hún er þeirra tákn. Hún opinberar þeim vilja Guðs. 23Segjum að einhver, sem ekki trúir eða þekkir þessa hæfileika sem Guðs andi gefur, kæmi til guðsþjónustu og heyrði ykkur öll tala tungum, þá myndi hann líklega halda að þið væruð gengin af vitinu! 24En ef allir flyttu opinberun frá Guði – spádómsorð og einhver sem ekki trúir eða fáfróður kæmi þangað inn, þá mundi boðskapurinn sannfæra hann um synd hans og vekja samvisku hans. 25Hann mundi finna augu Guðs rannsaka hjarta sitt, falla á kné og vegsama Guð og segja, að Guð væri sannarlega á meðal ykkar.
Reglur um guðsþjónustuhald
26Jæja, vinir mínir, við skulum þá draga saman þetta sem ég hef verið að segja. Þegar þið komið saman þá mun einhver syngja, annar kenna, einhver segja frá hlutum sem Guð hefur opinberað honum, annar mun tala tungum og einn annar túlka tungutalið. Munið að allt sem þið gerið verður að vera til uppbyggingar í trúnni. 27Ekki ættu fleiri en tveir eða þrír að tala tungum, og þá aðeins einn í einu, og einhver verður að vera þar til að túlka. 28Sé enginn viðstaddur sem getur túlkað tungutalið, mega þeir sem tala tungum ekki gera það upphátt, heldur skulu þeir þá aðeins tala lágt við sjálfa sig og Guð.
29Tveir eða þrír mega spá á samkomunni, og þá einn í einu en allir aðrir hlusti. Sé einn að spá og einhver annar fær boðskap á meðan, eða sérstaka innsýn í eitthvað frá Guði, þá má hann ekki grípa fram í, heldur skal hann leyfa þeim sem er að tala að ljúka máli sínu. 31Þannig geta allir, sem hafa fengið spádóm, talað og þá hver á eftir öðrum og allir munu læra af og hljóta uppörvun og hjálp. 32Munið að sá sem fær boðskap frá Guði, hefur líka mátt til að halda aftur af sér uns röðin er komin að honum. 33Guð vill ekki skipulagsleysi í söfnuði ykkar, heldur að þar ríki friður og regla. Þannig er það líka í öllum kristnum söfnuðum.
34Konur skulu ekki tala í guðsþjónustunum. Það er regla alls staðar. Þær skulu vera mönnum sínum undirgefnar eins og Biblían kennir. 35En þurfi þær að spyrja um eitthvað sem fram fer í guðsþjónustunni, þá spyrji þær eiginmenn sína heima, því það er ekki viðeigandi að konur tali í guðsþjónustu.
36Eruð þið ósammála? Haldið þið kannski að orð Guðs komi frá ykkur, Korintumenn, eða sé ykkur einum ætlað? 37Þið sem teljið ykkur geta spáð eða hafa aðra sérstaka hæfileika frá heilögum anda, ættuð manna fyrstir að gera ykkur grein fyrir því að það sem ég segi, eru fyrirmæli frá Drottni sjálfum. 38Ef einhver er enn ósammála, þá hann um það.
39Vinir mínir, sækist því eftir spádómsgáfunni til þess að þið getið boðað orð Guðs hreint og ómengað, og ekkert fari milli mála. Komið ekki í veg fyrir að talað sé í tungum og 40gætið þess að allt fari skipulega og sómasamlega fram.

Você sabia?
Profecia, línguas e ordem no culto
- Este capítulo descreve o falar em língua como uma fala dirigida a Deus, e não às outras pessoas: ninguém entende quem fala, que profere mistérios no Espírito e edifica apenas a si mesmo. A profecia, ao contrário, fala às pessoas para edificação, encorajamento e consolo, e assim edifica a igreja.Fontes: o próprio texto bíblico
- A fala incompreensível é comparada a instrumentos sem vida, como a flauta ou a harpa cujas notas não são distintas, e a uma trombeta que dá um toque abafado, de modo que ninguém se prepara para a batalha. O capítulo também diz que há muitas línguas diferentes no mundo e que, se alguém não conhece o sentido da língua de outra pessoa, cada um é estrangeiro para o outro.Fontes: o próprio texto bíblico
- Quando a igreja se reúne, cada contribuição — um salmo, um ensino, uma revelação, uma língua ou uma interpretação — deve servir para edificar a igreja. Se alguém fala em língua, dois ou no máximo três devem falar, um de cada vez, e alguém precisa interpretar; se não houver intérprete, quem fala deve ficar em silêncio na igreja e falar apenas consigo mesmo e com Deus. Dois ou três profetas devem falar, enquanto os outros avaliam com cuidado o que é dito, e o primeiro deve parar se vier uma revelação a alguém que está sentado, pois os espíritos dos profetas estão sujeitos aos profetas, e Deus não é Deus de desordem, mas de paz.Fontes: o próprio texto bíblico
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org