Marcos 3
316-biblían · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
1Jesús kom þá í samkomuhúsið. Þar var maður með visnaða hönd, 2og þeir fylgdust vandlega með honum til að sjá hvort hann myndi lækna á hvíldardeginum, svo það væri hægt að kæra hann fyrir það. 3„Stígðu hingað fram,“ sagði Jesús við manninn með visnuðu höndina. 4„Hvort er löglegra,“ sagði Jesús við þá, „að gera eitthvað gott á hvíldardeginum eða eitthvað illt? Að bjarga mannslífi, eða drepa mann?“ Þeir svöruðu því engu. 5Hann horfði á þá með vanþóknunarsvip, dapur yfir harðneskjunni sem þeir sýndu af sér. „Réttu út höndina,“ sagði hann við manninn. Maðurinn rétti út höndina, og hún varð jafn heilbrigð og hin höndin. 6Eftir þetta byrjuðu farísearnir að ræða það við Heródesarsinnana hvernig þeir gætu þaggað niður í Jesú.
7Þegar Jesús fór síðan með lærisveinum sínum að vatninu elti mikill mannfjöldi hann – fólk frá Galíleu, Júdeu, 8Jerúsalem, Ídúmeu, löndunum handan árinnar Jórdan, Týrus og Sídon – vegna þess að það hafði heyrt um allt það ótrúlega sem hann hafði gert. 9Jesús varð að segja lærisveinunum að vera tilbúnir með lítinn bát, ef mannfjöldinn skyldi þrengja sér að honum - 10hann hafði nefnilega læknað svo marga að veikt fólk reyndi oft að komast að honum til að snerta hann. 11Í hvert skipti sem óhreinir andar sáu hann féllu þeir fram fyrir hann og hrópuðu: „Þetta er sonur Guðs!“ 12Hann skipaði þeim að ljóstra því ekki upp fyrir neinum hver hann væri.
13Jesús gekk upp á fjall og kallaði þar formlega til sín þá sem hann hafði valið til að ganga með sér. 14Hann valdi tólf lærisveina til að fylgja sér - þessa tólf sendi hann út til þess að flytja boðskap sinn 15og gerði þeim kleift að lækna fólk af veikindum og reka út djöfla. 16Þessir tólf lærisveinar voru Símon (sem Jesús gaf nafnið Pétur), 17Jakob og Jóhannes Sebedeussynir (sem hann kallaði „boargenes“, sem þýðir „þrumusynirnir“), 18Andrés, Filippus, Bartólómeus, Matteus, Tómas, Jakob Alfeusson, Taddeus, Símon kananíti 19og Júdas Ískaríot, sem átti eftir að svíkja hann.
20Eftir að þeir voru komnir heim flykktist svo mikill fjöldi fólks að Jesú að þeir höfðu ekki einu sinni næði til þess að borða. 21Ættingjar hans sem fréttu af þessu reyndu að tala um fyrir honum. 22Jerúsalemsku lögmálskennararnir sögðu að hann væri andsetinn, og að þegar hann henti djöflum út úr fólki hlyti hann að vera að nota mátt djöflanna sjálfra. 23Jesús kallaði þá til sín og útskýrði þetta fyrir þeim með dæmisögu. „Hvernig ætti Satan að geta kastað sjálfum sér út?“ spurði hann þá. 24„Lið sem rís upp á móti sjálfu sér fellur fljótlega 25og hús sem rís upp á móti sjálfu sér hrynur fljótlega. 26Ef Satan risi upp á móti sjálfum sér yrði hann fljótlega búinn að vera. 27Það er ekki hægt að brjótast inn hjá sterkum manni og ræna hann án þess að binda fyrst þennan sterka eiganda hússins. 28Muniði þetta: Fólk getur fengið fyrirgefningu fyrir allar syndir sínar og guðlast 29en guðlast gegn Heilögum anda verður aldrei fyrirgefið. Sá sem gerir það verður dæmdur í samræmi við það.“ 30Þetta sagði hann vegna þess að þeir sögðu að hann væri haldinn óhreinum anda.
31Bræður Jesú og móðir hans komu og báðu um að Jesús yrði sóttur til að koma út og tala við þau. 32Þegar Jesú var sagt að móðir hans og bræður væru fyrir utan og vildu tala við hann 33svaraði hann: „Hver er móðir mín og hverjir eru bræður mínir?“ 34Hann leit á fólkið sem umkringdi hann. „Jú,“ sagði hann, „þetta hérna eru móðir mín og bræður mínir, 35vegna þess að það er sá sem gerir vilja Guðs sem er bróðir minn, systir mín eða móðir mín.“

¿Sabías que…?
Multitudes, los Doce y la acusación de Satanás
- Varios de los hombres que Jesús designó como los doce habían sido pescadores en Galilea. Simón, a quien llamó Pedro, y su hermano Andrés eran de Betsaida; Santiago y Juan, hijos de Zebedeo, pescaban en sociedad con Pedro. Jesús llamó a esos hermanos Boanerges, “Hijos del Trueno”; el Diccionario Bíblico de Easton (1897) dice que probablemente recibieron ese nombre por su audacia y su energía.Fuentes: Simon Peter · Andrew · James (Son of Zebedee) · el propio texto bíblico
- La gente se agolpaba desde Galilea, Judea, Jerusalén, Idumea, el otro lado del Jordán y la región de Tiro y Sidón, porque había oído lo que Jesús hacía. Tiro y Sidón eran antiguas ciudades fenicias del Mediterráneo; Sidón estaba a unas veinticinco millas al norte de Tiro. Bajo los romanos, Judea era la más meridional de las tres divisiones de Palestina, distinta de Galilea.Fuentes: el propio texto bíblico · Tyre · Sidon · Judea
- Unos escribas que habían bajado de Jerusalén decían que Jesús estaba poseído por Beelzebul y que expulsaba demonios por el príncipe de los demonios. Él respondió preguntando cómo Satanás puede expulsar a Satanás. Satanás significa “adversario” o “acusador”; en el Nuevo Testamento el nombre se usa de manera intercambiable con el diablo, y el Diccionario Bíblico de Easton (1897) también lo llama Beelzebub.Fuentes: el propio texto bíblico · Satan
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 7
- Judea · Hoy: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículo 7
- Idumea · 31.525, 35.102 · versículo 8
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 8, 22
- Jordan · Hoy: Jordan River · 31.761, 35.558 · versículo 8
- Sidon · Hoy: Sandikli archaeological site in Sidon · 33.561, 35.372 · versículo 8
- Tyre · 33.271, 35.196 · versículo 8
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
316-biblían Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation copyright © 2026 Every Nation Iceland Language: Íslenska (Icelandic) https://316.is/316-biblian/ https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is Þér er frjálst að: Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi. Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi. Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins. Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum: TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína. DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með. Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar. Athugasemdir: Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum. Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið. This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2026-09-25
Fuente: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org