Marcos 16
316-biblían · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
1Þegar hvíldardagurinn var liðinn keyptu María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmolíur til að smyrja líkið. 2Eldsnemma um morguninn, fyrsta dag vikunnar, komu þær að gröfinni þegar sólin var að koma upp. 3„Hvern getum við fengið til að færa steininn frá opinu?“ veltu þær fyrir sér. 4En þá sáu þær að steininn hafði verið færður frá – og þetta var ofboðslega stór steinn. 5Þær litu inn í gröfina og sáu að ungur maður sat hægra megin í henni, klæddur í síða, hvíta skikkju, og þær urðu mjög hræddar. 6„Verið ekki hræddar!“ sagði maðurinn. „Þið eruð að leita að Jesú frá Nasaret, sem var krossfestur. Hann er ekki hér því hann er risinn upp. Sjáiði, þarna lá hann. 7Farið nú og segið lærisveinunum og Pétri að Jesús sé farinn á undan þeim til Galíleu. Þar sjáið þið hann aftur, alveg eins og hann sagði ykkur.“ 8Þær flýttu sér út og burt frá gröfinni, skjálfandi af ótta, og voru of hræddar til að segja neinum frá því sem þær höfðu séð.
9Þegar Jesús reis upp snemma fyrsta dag vikunnar birtist hann fyrst Maríu Magdalenu, sem hann hafði kastað sjö djöflum út úr. 10Hún fór síðan til hinna, þar sem þeir sátu og syrgðu, og sagði þeim að hún hefði séð hann. 11Þeir trúðu henni ekki þegar hún sagðist hafa séð hann á lífi. 12Eftir það birtist hann aftur, tveimur þeirra í þetta skiptið, þegar þeir voru á göngu úti í sveitinni. 13Þeir sögðu hópnum frá þessu en þeim var heldur ekki trúað. 14Síðan birtist hann lærisveinunum ellefu þegar þeir sátu og borðuðu, og skammaði þá fyrir að vera svona þrjóskir, að trúa ekki þeim sem höfðu séð hann eftir upprisuna. 15„Farið út um allan heim,“ sagði hann við þá, „og segið öllum frá fagnaðarerindinu. 16Allir sem trúa og láta skíra sig munu bjargast, en allir sem trúa ekki munu glatast. 17Þið getið þekkt þá sem trúa á ákveðnum merkjum: Þeir munu kasta út djöflum í mínu nafni og tala á nýjum tungumálum. 18Þeir munu geta tekið upp snáka og drukkið eitur án þess að það skaði þá, og þeir munu snerta þá sem eru veikir og þeir munu verða heilbrigðir.“
19Eftir að Drottinn hafði sagt þetta við þá fór hann upp til himna, þar sem hann situr við hægri hönd Guðs. 20Þeir fóru síðan út og sögðu frá fagnaðarerindinu alls staðar. Drottinn var með þeim og staðfesti orð þeirra með merkjunum.

¿Sabías que…?
El sepulcro vacío y Jesús resucitado
- Pasado el sábado, María Magdalena, María la madre de Jacobo y Salomé compraron especias para ungir el cuerpo de Jesús y fueron al sepulcro justo después del amanecer. Salomé era la esposa de Zebedeo y la madre de Jacobo y Juan; había presenciado la crucifixión y estaba presente con las otras mujeres junto al sepulcro.Fuentes: el propio texto bíblico · Salome
- El nombre María Magdalena proviene de Magdala, su lugar de nacimiento, y se usaba para distinguirla de las otras Marías de los Evangelios. El Easton's Bible Dictionary (1897) señala que una noción equivocada la ha identificado con la mujer llamada pecadora en Lucas 7. Este capítulo dice que Jesús había expulsado de ella siete demonios y que, después de resucitar, se apareció primero a ella.Fuentes: Mary Magdalene · el propio texto bíblico
- Un joven en el sepulcro llama a Jesús “el Nazareno” y dice a las mujeres que él va delante de los discípulos a Galilea, donde lo verán. Nazaret, hogar de José y María, no se menciona en el Antiguo Testamento; por lo general se supone que el nombre es la forma griega del hebreo netser, “retoño” o “brote”, aunque algunos lo relacionan con el monte detrás de la ciudad y con el hebreo notserah, “el que guarda o vigila”. Galilea significa “circuito” y, como permaneció mucho tiempo ocupada por sus habitantes originales, llegó a llamarse “Galilea de los gentiles”.Fuentes: el propio texto bíblico · Nazareth · Galilee
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 6
- Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 7
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 12
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
316-biblían Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation copyright © 2026 Every Nation Iceland Language: Íslenska (Icelandic) https://316.is/316-biblian/ https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is Þér er frjálst að: Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi. Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi. Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins. Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum: TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína. DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með. Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar. Athugasemdir: Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum. Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið. This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2026-09-25
Fuente: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org