Nations Bible

Marcos 14

316-biblían · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

1Tveimur dögum fyrir hátíð páskanna og gerlausu brauðanna ræddu æðstuprestarnir og lögmálskennararnir hvernig þeir gætu náð Jesú og látið taka hann af lífi. 2„Við getum ekki gert það á hátíðinni sjálfri,“ sögðu þeir, „því þá gæti fólkið mótmælt.“ 3Á meðan var Jesús í Betaníu, hjá Símoni holdsveika. Einu sinni þegar þeir voru að borða kom kona til Jesú með flösku með dýrum ilmefnum. Hún braut flöskuna og hellti ilmefnunum yfir hann. 4Sumir gestanna hneyksluðust á þessu. „Þetta er ofboðsleg sóun,“ sögðu þeir. 5„Það hefði verið hægt að selja þessi ilmefni fyrir mikla peninga, sem við hefðum síðan getað gefið fátækum.“ 6Jesús sá hvernig þeir skömmuðu konuna. „Látið hana vera,“ sagði hann. „Þetta var mjög fallegt af henni. 7Þið hafið alltaf fátækt fólk í kringum ykkur og getið hjálpað því hvenær sem ykkur sýnist en ég verð ekki alltaf hjá ykkur. 8Hún hefur gert það sem hún gat og smurt mig áður en ég verð grafinn. 9Ég segi ykkur það að hvar í heiminum sem fagnaðarerindið verður boðað verður hennar minnst fyrir það sem hún hefur gert.“

10Júdas Ískaríot, einn af lærisveinunum tólf, fór til æðstuprestanna til að bjóðast til að svíkja Jesú. 11Þetta voru góðar fréttir fyrir æðstuprestana, sem lofuðu að borga honum fyrir það. Júdas fór þá að leita að tækifæri til að svíkja Jesú.

12Á fyrsta degi hátíðar gerlausu brauðanna, þegar páskalambinu var slátrað, spurðu lærisveinarnir Jesú hvar hann vildi að þeir undirbyggju páskahátíðina fyrir hann. 13„Farið inn í borgina,“ sagði Jesús við tvo lærisveina. „Þar sjáið þið mann sem heldur á vatnskönnu – eltið hann. 14Þegar hann fer inn í hús skuluð þið fara og segja við eiganda hússins: „Kennarinn spyr hvar gestastofan ykkar sé, þar sem hann geti haldið páskahátíðina með lærisveinum sínum?“. 15Þá sýnir hann ykkur stóra stofu á efri hæðinni þar sem búið er að undirbúa veislu. Þar verðum við!“ 16Lærisveinarnir lögðu af stað inn í borgina. Allt gerðist nákvæmlega eins og Jesús hafði lýst því og þeir undirbjuggu páskahátíðina.

17Um kvöldið kom Jesús síðan þangað með lærisveinunum tólf. 18Meðan þeir sátu og borðuðu sagði Jesús: „Einn ykkar sem sitjið hérna og borðar með mér á eftir að svíkja mig.“ 19Þetta þótti þeim hræðilegt að heyra. „Er það nokkuð ég?“ spurðu þeir hann allir. 20„Það er lærisveinninn sem dýfði brauðinu í skálina með mér,“ svaraði Jesús. 21„Eins og stendur í ritningunni þarf Mannssonurinn vissulega að fara burt. En það fer illa fyrir þeim sem svíkur hann! Það væri betra fyrir þann mann að hafa aldrei fæðst.“

22Meðan þeir borðuðu tók Jesús brauðið, blessaði það og reif það niður. „Borðið þetta,“ sagði hann um leið og hann gaf þeim brauðið. „Þetta er líkami minn.“ 23Síðan tók hann bollann, þakkaði Guði fyrir, lét bollann ganga milli lærisveinanna og þeir drukku úr honum. 24„Þetta er blóð nýja sáttmálans,“ sagði Jesús, „sem er hellt út fyrir alla. 25Næst þegar ég drekk vín verður það nýja vínið sem ég drekk í konungsríki Guðs.“ 26Að lokum sungu þeir sálm og fóru síðan út að Ólífufjallinu.

27„Í nótt munuð þið allir yfirgefa mig,“ sagði Jesús við þá. „Það stendur í ritningunni: „Ég slæ fjárhirðinn og kindurnar tvístrast“.

28En eftir að ég rís upp fer ég á undan ykkur til Galíleu.“ 29„Ég yfirgef þig ekki, sama hvað gerist!“ sagði Pétur. 30„Veistu það, Pétur,“ svaraði Jesús, „að strax núna í nótt, áður en haninn hefur galað tvisvar, átt þú eftir að afneita mér þrisvar.“ 31„Ég mun aldrei afneita þér,“ sagði Pétur æstur, „jafnvel þó ég þurfi að deyja með þér!“ Þetta sögðu allir lærisveinarnir.

32Þeir komu að lokum á stað sem hét Getsemane. „Bíðiði hérna,“ sagði Jesús, „meðan ég fer og bið.“ 33Hann tók Pétur, Jakob og Jóhannes með sér. Fljótlega sáu þeir hvað hann var í miklu uppnámi og ofboðslega niðurdreginn. 34„Ég gæti sprungið af sorg,“ sagði hann við þá. „Veriði hérna hjá mér.“ 35Hann fór nokkur skref frá þeim, féll á jörðina og bað Guð um að hlífa sér við þessu ef það væri nokkur möguleiki á því. 36„Pabbi – faðir,“ kallaði hann, „þú getur allt. Taktu þetta frá mér! En samt... verði ekki minn vilji, heldur þinn vilji.“ 37Þegar hann sneri sér aftur að lærisveinunum sá hann að þeir voru sofnaðir. „Símon,“ sagði hann við Pétur, „ertu sofandi? Gastu ekki einu sinni vakað í eina klukkustund? 38Haldið ykkur vakandi og ekki falla fyrir freistingunni. Andinn vill þetta kannski, en holdið er veikt.“ 39Síðan hélt hann áfram að biðja sömu bænar. 40Þegar hann kom aftur sá hann að þeir voru aftur sofnaðir, vegna þess að þeir voru svo þreyttir. Þeir vissu ekkert hvað þeir áttu að segja við hann. 41Í þriðja skiptið sagði hann við þá: „Sofiði bara áfram. Það er komið að þessu – nú verður Mannssonurinn svikinn í hendur syndaranna. 42Förum af stað, því nú kemur sá sem ætlar að svíkja mig.“

43Áður en hann var búinn að segja þessi orð birtist Júdas, einn af lærisveinunum tólf. Með honum var stór hópur manna með sverð og kylfur, sem æðstuprestarnir og lögmálskennararnir og öldungarnir höfðu sent. 44Þeir Júdas höfðu ákveðið að hann myndi gefa þeim merki til að segja þeim hvern þeir ættu að handtaka. „Það verður sá sem ég kyssi,“ hafði hann sagt. „Takið hann og leiðið hann burt.“ 45Um leið og hann sá þá fór hann því til Jesú. „Meistari,“ sagði hann og kyssti hann. 46Þá gripu mennirnir Jesú og héldu honum föstum. 47Einn af lærisveinunum dró sverðið sitt og skar eyrað af þjóni æðstaprestsins. 48„Komið þið hérna eins og til að handsama þjóf,“ sagði Jesús, „með sverð og kylfur til að handtaka mig? 49Ég kenndi í musterinu hjá ykkur á hverjum degi – ekki handtókuð þið mig þá. En ritningin þarf að rætast.“ 50Lærisveinarnir flúðu allir og yfirgáfu hann 51en einn ungur maður, með klút bundinn um mittið á sér en annars nakinn, hljóp á eftir honum. Mennirnir gripu í hann 52en náðu bara taki á klútnum og hann flúði nakinn frá þeim.

53Síðan var Jesús leiddur af stað til æðstuprestanna, öldunganna og lögmálskennaranna. 54Pétur fylgdi honum úr fjarlægð alla leið til hallar æðstaprestsins. Þar settist hann með þjónunum og hlýjaði sér við eldinn. 55Æðstuprestarnir og æðstaráðið leituðu að einhverju sem þeir gætu ásakað Jesú um svo þeir gætu látið taka hann af lífi en fundu ekkert. 56Margir báru vissulega vitni gegn honum, en allt sem þeir sögðu voru samhengislausar lygar. 57Fólk bar ljúgvitni gegn honum. 58„Við heyrðum hann segja að hann ætlaði að eyða musterinu,“ sagði það, „að það væri byggt af mönnum en að innan þriggja daga ætlaði hann að reisa annað musteri sem væri ekki byggt af mönnum.“ 59En sögur vitnanna stönguðust á. 60Loks stóð æðstipresturinn upp. „Ætlarðu ekkert að svara því?“ spurði hann Jesú. „Þessu fólki sem ber vitni gegn þér?“ 61En Jesús þagði og sagði ekkert. „Ert þú Kristur,“ spurði æðstipresturinn hann þá aftur, „sonur Guðs?“ 62„Ég er það,“ svaraði Jesús, „og dag einn munuð þið sjá Mannssoninn sitja við hægri hönd þess sem hefur völdin og koma í skýjunum.“ 63Æðstipresturinn varð bálreiður þegar hann heyrði þetta. „Það þarf þá ekki fleiri vitni!“ sagði hann. 64„Þið heyrðuð þetta guðlast. Hvað finnst ykkur?“ Og þeir dæmdu hann allir til dauða. 65Sumir fóru að hrækja á hann, hylja andlit hans og berja hann. „Spáðu nú!“ sögðu þeir, og þjónarnir slógu hann.

66Ein af þjónustustúlkum æðstaprestsins sá Pétur þar sem hann sat í hallargarðinum og hlýjaði sér. 67Hún horfði vandlega á hann. „Varst þú ekki með Jesú frá Nasaret?“ spurði hún. 68„Alls ekki,“ svaraði Pétur. „Ég veit ekkert hvað þú ert að tala um.“ Hann fór fram í forgarðinn um leið og haninn galaði. 69Þjónustustúlkan hélt áfram að horfa á hann. „Hann er víst einn af þeim,“ sagði hún við fólkið í kringum þau. 70Pétur neitaði því aftur. Fólkið hélt áfram að stara á hann. „Jú, þú hlýtur að vera einn af þeim,“ sagði einhver að lokum. „Þú ert Galíleumaður, þú ert með hreim.“ 71Pétur bölvaði. „Ég þekki þennan mann ekki neitt!“ sagði hann. 72Þá galaði haninn aftur. Pétur mundi það sem Jesús hafði sagt við hann: „Áður en haninn hefur galað tvisvar átt þú eftir að afneita mér þrisvar“. Og hann grét.

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

Unción, traición y prendimiento

  • La unción tuvo lugar en Betania, una aldea en la ladera sudoriental del monte de los Olivos, a unas dos millas al este de Jerusalén, en el camino a Jericó. Allí Jesús estaba reclinado a la mesa en la casa de Simón el leproso, cuando una mujer rompió un frasco de alabastro con nardo puro y lo derramó sobre su cabeza.Fuentes: Bethany · Simon · el propio texto bíblico
  • Después de la comida, Jesús y los Doce entonaron un himno y salieron hacia el monte de los Olivos, una sierra al este de Jerusalén, separada de la ciudad por el valle de Cedrón y llamada así por los olivos que cubrían sus laderas. A sus pies estaba Getsemaní, un olivar cuyo nombre significa "prensa de aceite", adonde Jesús solía retirarse con sus discípulos.Fuentes: Mount of Olives · Gethsemane · el propio texto bíblico
  • Judas, de sobrenombre Iscariote, es decir, un hombre de Queriot, aparece siempre al final entre los apóstoles en las listas de los tres primeros Evangelios. Después de la unción, fue a los principales sacerdotes para entregar a Jesús; ellos se alegraron y prometieron darle dinero, y más tarde identificó a Jesús ante la multitud armada con un beso.Fuentes: Judas Iscariot · el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 13
  • Mount of Olives · 31.778, 35.246 · versículo 26
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 28
  • Gethsemane · 31.779, 35.239 · versículo 32
  • Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 67

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
316-biblían
Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation
copyright © 2026 Every Nation Iceland
Language: Íslenska (Icelandic)
https://316.is/316-biblian/
https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is
Þér er frjálst að:
Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins.
Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:
TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína.
DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með.
Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar.
Athugasemdir:
Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum.
Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið.
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2026-09-25

Fuente: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.