Marcos 1
316-biblían · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

Acerca de este libro
Acerca de Marcos
- El Diccionario Bíblico de Easton (1897) identifica al evangelista como Juan, de sobrenombre Marcos. Marcos, o Marcus, era su nombre romano y poco a poco reemplazó el nombre judío Juan. Era hijo de María, mujer de ciertos recursos e influencia, probablemente nació en Jerusalén, donde ella vivía, y era primo de Bernabé; del padre, dice el artículo, no se sabe nada.Fuentes: Easton: Mark
- El Diccionario Bíblico de Easton (1897) no da una fecha para el Evangelio. Sitúa a Marcos con Pablo y Bernabé en su primer viaje, hacia el 47 d.C., como ayudante, a quien llama ministro; Marcos se volvió en Perge de Panfilia, y unos tres años después Pablo se negó a llevarlo, lo que provocó una fuerte discusión con Bernabé. El artículo dice que luego se reconcilió, estuvo con Pablo durante su primera prisión en Roma, después con Pedro en Babilonia —entonces, y durante algunos siglos después, una de las principales sedes del saber judío— y con Timoteo en Éfeso.Fuentes: Easton: Mark
- Bajo los romanos, en tiempos de Cristo, Judea era la más meridional de las tres divisiones de Palestina y parte de la provincia de Siria, aunque el nombre a veces se usaba para Palestina entera. Poncio Pilato, el sexto procurador de Judea (26–36 d.C.), tenía su sede en Cesarea, pero subía a menudo a Jerusalén; su gobierno abarcó los ministerios de Juan el Bautista y de Jesús.Fuentes: Judea · Pontius Pilate
- Los judíos llamaban a la región Galil; como los habitantes originales permanecieron allí mucho tiempo, también se la llamó Galilea de los gentiles, y la Galilea Superior se distinguía de la Galilea Inferior, al sur. Simón Pedro, de Betsaida, en la costa occidental del mar de Galilea, se formó como pescador, y Jacobo y Juan, hijos de Zebedeo, también trabajaban como pescadores en ese lago.Fuentes: Galilee · Simon Peter · James (Son of Zebedee) · John the Apostle
- Easton considera probable que Marcos fuera convertido por Pedro en la casa de su madre, en Jerusalén, donde Pedro, recién liberado de la cárcel, halló a muchos reunidos en oración, y señala que Pedro lo llama su hijo. El mismo artículo también juzga probable que el joven mencionado en Marcos 14:51–52 fuera el propio Marcos.Fuentes: Easton: Mark
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
1Svona hefst fagnaðarerindið um Jesú Krist, son Guðs. 2Í bók spámannsins Jesaja stendur: „Ég læt sendiboða minn fara á undan þér til að undirbúa veginn fyrir þig.“ 3Í óbyggðunum hrópar rödd: „Undirbúið komu Drottins, greiðið honum leið.“
4Maður sem hét Jóhannes kom fram í óbyggðunum. Þar skírði hann fólk, því með skírn í iðrun fengi það fyrirgefningu á syndum sínum. 5Fjöldi fólks kom til hans af Júdeusvæðinu og frá Jerúsalem, játaði syndir sínar og tók skírn í ánni Jórdan. 6Jóhannes klæddist fötum úr úlfaldahári og leðurbelti og át engisprettur og villihunang. 7„Á eftir mér kemur sá sem er máttugri en ég,“ prédikaði hann. „Ég er ekki þess verður að svo mikið sem leysa skóreimarnar hans. 8Ég skíri ykkur kannski með vatni, en hann á eftir að skíra ykkur með Heilögum anda.“
9Síðan kom Jesús frá Nasaret í Galíleu og Jóhannes skírði hann í ánni Jórdan. 10Um leið og hann steig upp úr vatninu sá hann að himnarnir opnuðust og Andinn kom niður til hans eins og dúfa. 11Frá himnunum hljómaði rödd sem sagði: „Þú ert heittelskaður sonur minn sem ég gleðst yfir.“ 12Andinn sendi hann út í óbyggðirnar, 13þar sem hann var í fjörutíu daga og gekk í gegnum prófraunir Satans. Hann bjó á meðal villidýranna og englarnir þjónuðu honum.
14Eftir handtöku Jóhannesar kom Jesús til Galíleu og flutti fólki fagnaðarerindið um konungsríki Guðs. 15„Tíminn er kominn,“ sagði hann, „og konungsríki Guðs nálgast. Iðrist synda ykkar og trúið fagnaðarerindinu!“
16Þegar Jesús var á gangi við Galíleuvatn sá hann Símon og Andrés bróður hans kasta neti í vatnið, þar sem þeir voru fiskimenn. 17Hann sagði við þá: „Komið og fylgið mér, því með mér munuð þið ekki veiða fiska heldur menn.“ 18Þeir hentu strax frá sér netunum og fylgdu honum. 19Skömmu síðar sá hann þá bræður Jakob og Jóhannes Sebedeussyni þar sem þeir sátu í bát að gera við net. 20Hann kallaði þá til sín – þeir skildu Sebedeus föður sinn eftir í bátnum með vinnumönnunum og fylgdu honum.
21Þeir lögðu leið sína til Kapernaúm. Á hvíldardeginum fór Jesús í samkomuhúsið og kenndi þar. 22Fólkið var agndofa yfir kennslu hans, vegna þess að hann kenndi þeim ekki bara eins og lögmálskennararnir, heldur eins og sá sem hafði raunverulegt vald. 23Í samkomuhúsinu var maður með óhreinan anda sem hrópaði: 24„Hvað vilt þú okkur, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma okkur? Ég veit hver þú ert, heilagur sonur Guðs!“ 25Jesús hvessti augun á hann og sagði: „Þegi þú og snáfaðu út úr honum!“ 26Óhreini andinn engdist um í manninum, öskraði hástöfum og fór út úr honum. 27Fólkið trúði ekki sínum eigin augum. „Hvað er þetta!“ hvíslaði það sín á milli. „Hann kennir með einhverjum nýjum mætti - hann skipar jafnvel óhreinum öndum fyrir og þeir hlýða honum.“ 28Og sögurnar af honum byrjuðu að dreifast um allt Galíleusvæðið.
29Þegar hann kom út úr samkomuhúsinu fór hann heim til Símonar og Andrésar með Jakobi og Jóhannesi, 30þar sem þeir höfðu sagt honum að tengdamóðir Símonar væri veik. 31Hann fór til hennar, tók í höndina á henni og hjálpaði henni á fætur – um leið læknaðist hún af hitanum, og byrjaði að þjóna þeim. 32Sama kvöld, við sólsetur, fór fólk að koma til Jesú með alla þá sem voru veikir eða andsetnir. 33Allir íbúar borgarinnar voru komnir saman við dyrnar. 34Hann læknaði marga sem voru veikir og kastaði út mörgum illum öndum, en leyfði illu öndunum ekki að tala, vegna þess að þeir vissu hver hann var.
35Eldsnemma næsta morgun fór hann á fætur og fór út í óbyggðirnar til að biðja. 36Símon og fylgjendur hans fóru á eftir honum og fundu hann. 37„Allir eru að leita að þér,“ sögðu þeir. 38„Höldum áfram í næstu bæi,“ svaraði hann þeim, „svo ég geti prédikað þar líka – það er það sem ég kom til þess að gera.“ 39Og Jesús prédikaði í samkomuhúsum um alla Galíleu og rak út illa anda.
40Holdsveikur maður féll örvæntingarfullur á kné fyrir framan Jesú. „Ég veit að þú getur hreinsað mig ef þú vilt það!“ sagði hann. 41Fullur samúðar rétti Jesús út höndina og snerti hann. „Ég vil!“ sagði hann. „Vertu hreinn.“ 42Við þessi orð hans læknaðist maðurinn af holdsveikinni og varð hreinn. 43Jesús sendi hann strax burt og brýndi fyrir honum: 44„Ekki segja neinum frá þessu – farðu og sýndu prestinum að þú ert orðinn hreinn og færðu hreinsunarfórnina í samræmi við lög Móse til að staðfesta lækninguna.“ 45En maðurinn fór og sagði söguna oft og víða. Þar af leiðandi gat Jesús ekki lengur gengið opinberlega inn í borgir heldur varð að dvelja í óbyggðunum, þangað sem fólk flykktist til hans alls staðar frá.

¿Sabías que…?
El evangelio comienza en el Jordán y en Galilea
- Juan, que aparece en el desierto predicando un bautismo de arrepentimiento, era de linaje sacerdotal. Su padre, Zacarías, era sacerdote del turno de Abías, y su madre, Elisabet, era de las hijas de Aarón; se dice que su nacimiento ocurrió seis meses antes que el de Jesús. Su misión se describe como tema de profecía en Isaías y Malaquías.Fuentes: John the Baptist · el propio texto bíblico
- Simón y su hermano Andrés eran pescadores de Betsaida, en la costa occidental del mar de Galilea. Andrés había sido discípulo de Juan el Bautista y ya había llevado a Simón a Jesús; los hermanos siguieron trabajando como pescadores hasta después del encarcelamiento de Juan. Santiago y Juan eran hijos de Zebedeo, un pescador galileo de cierta posición en Capernaúm, que tenía jornaleros propios; ellos lo dejaron en la barca con esos hombres.Fuentes: Simon Peter · Andrew · Zebedee · el propio texto bíblico
- El mar de Galilea, también llamado mar de Tiberíades, mide unas doce millas y media de largo y de cuatro a siete millas y media de ancho, y su superficie está a 682 pies bajo el Mediterráneo. Jesús vino desde Nazaret, en Galilea, para ser bautizado; esa ciudad no se menciona en el Antiguo Testamento y era el hogar de José y María. Bajo los romanos, Judea era la más meridional de las tres divisiones de Palestina, y la gente salía al encuentro de Juan desde Jerusalén y la campiña de Judea.Fuentes: Sea of Galilee · Nazareth · Judea · el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 5
- Jordan · Hoy: Jordan River · 31.761, 35.558 · versículos 5, 9
- Judea · Hoy: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículo 5
- Galilee · 32.760, 35.527 · versículos 9, 14, 28, 39
- Nazareth · 32.702, 35.298 · versículos 9, 24
- Sea of Galilee · 32.819, 35.590 · versículo 16
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
316-biblían Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation copyright © 2026 Every Nation Iceland Language: Íslenska (Icelandic) https://316.is/316-biblian/ https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is Þér er frjálst að: Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi. Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi. Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins. Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum: TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína. DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með. Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar. Athugasemdir: Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum. Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið. This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2026-09-25
Fuente: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org