Romanos 6
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Dáin í syndinni, lifandi í Guði
1Hvað er um þetta að segja? Eigum við að halda áfram að syndga svo að Guð geti sýnt okkur kærleika sinn og fyrirgefningu enn betur?
2Nei, alls ekki! Hvaða vit er í því að syndga ef hægt er að komast hjá því? Valdið sem syndin hafði yfir okkur, var brotið á bak aftur þegar við urðum kristin og vorum skírð til að verða samgróin Kristi. Dauði Krists braut á bak aftur það afl sem syndin hafði í lífi okkar. 4Okkar gamla eðli, sem elskaði syndina, var grafið með honum í skírninni þegar hann dó. Og þegar Guð faðir reisti hann aftur til lífsins með dýrlegum krafti, þá eignuðumst við hlutdeild í lífi hans.
5Við erum orðin samgróin honum og þegar hann dó, þá dóum við með honum. Nú eigum við sameiginlega hlutdeild í nýja lífinu hans og munum rísa upp á sama hátt og hann.
6Þegar Kristur var krossfestur, voru gömlu og illu hvatirnar okkar krossfestar með honum. Þessar hvatir sem þrá syndina, voru særðar til ólífis. Líkami okkar er því ekki lengur á valdi syndarinnar og þarf ekki að vera þræll hennar. 7Þegar við dóum syndinni, vorum við leyst undan öllu því táli og valdi sem hún beitti okkur. 8Fyrst löngunin til að elska syndina „dó“ með Kristi, þá vitum við að við eigum hlutdeild í nýja lífinu sem birtist í upprisu hans.
9Kristur reis upp frá dauðum og hann mun aldrei aftur deyja. Dauðinn hefur ekki framar neitt vald yfir honum. 10Hann dó í eitt skipti fyrir öll, til að brjóta á bak aftur vald syndarinnar og lifir nú í eilífu og órjúfanlegu samfélagi við Guð. 11Lítið því á ykkar gamla synduga eðli sem dautt og ónæmt fyrir syndinni og kröfum hennar, en lifið þess í stað fyrir Guð í samfélaginu við Drottin Jesú Krist.
12Leyfið syndinni ekki framar að stjórna dauðlegum líkömum ykkar og látið ekki undan girnd þeirra. 13Látið engan hluta líkamans verða verkfæri í höndum hins illa, til að drýgja synd, en gefið ykkur algjörlega Guði á vald – hvern einasta líkamshluta – því þið hafið snúið baki við dauðanum. Nú þráið þið að verða verkfæri í höndum Guðs, svo að hann geti notað ykkur til að framkvæma góðar fyrirætlanir sínar. 14Syndin þarf ekki lengur að vera húsbóndi ykkar, því að nú eruð þið laus við lögin sem syndin þrælkaði ykkur með. Nú eruð þið frjáls vegna kærleika og miskunnar Guðs.
Þrælar syndar verða þjónar Guðs
15Þýðir þetta að við getum haldið áfram að syndga og kært okkur kollótt um afleiðingarnar? Vegna þess að hjálpræði okkar byggist ekki á því að hlýða lögunum heldur á því að taka á móti náð Guðs!
Nei, auðvitað ekki!
16Skiljið þið ekki að það er á ykkar valdi að velja ykkur húsbónda? Annars vegar getið þið valið syndina, og þar með dauðann, eða þá hlýðni og hlotið sýknun. Sá sem þið gefið ykkur á vald, hann mun taka við ykkur og verða húsbóndi ykkar og þið þrælar hans. 17Þakkið Guði, því að þótt þið væruð einu sinni þrælar syndarinnar, þá hafið þið nú hlýðnast þeim boðskap sem Guð flutti ykkur. 18Nú eruð þið laus úr ánauð gamla húsbóndans, syndarinnar, og eruð þess í stað orðin þjónar nýs húsbónda: Réttlætisins!
19Ég tala á þennan hátt og nota líkingar af þrælum og húsbændum til þess að þið skiljið þetta betur. Eins og þið eitt sinn voruð þrælar margs konar synda, þá verðið þið nú að gerast þjónar hins góða og heilaga.
20Þegar þið voruð þrælar syndarinnar þá skeyttuð þið lítið um hið góða. 21Hver var afleiðingin? Hún hefur áreiðanlega ekki verið af betra taginu, fyrst þið skammist ykkar jafnvel fyrir að hugsa um það sem þið voruð áður vön að gera, en allt leiddi það til eilífs dóms. 22Nú eruð þið hins vegar laus undan valdi syndarinnar og hafið gerst þjónar Guðs. Hlunnindin, sem Guð veitir ykkur, eru meðal annars helgun og eilíft líf. 23Laun syndarinnar eru dauði, en óverðskulduð gjöf Guðs til okkar er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.
¿Sabías que…?
Muertos al pecado, vivos para Dios
- Romanos 6 comienza preguntando si la gente debería seguir en el pecado para que la gracia aumente, y responde: “¡De ninguna manera!” Quienes han muerto al pecado, argumenta el capítulo, no pueden seguir viviendo en él.Fuentes: el propio texto bíblico
- El bautismo se presenta como bautismo en Cristo Jesús y en su muerte, y como sepultura con él, para que, así como Cristo fue resucitado de entre los muertos por la gloria del Padre, quienes están unidos a él anden en novedad de vida.Fuentes: el propio texto bíblico
- A causa de la debilidad de la carne, el capítulo dice que habla en términos humanos y compara la vida con la esclavitud: la persona se vuelve esclava de aquello a lo que obedece, ya sea el pecado, que lleva a la muerte, o la obediencia, que lleva a la justicia. El texto cierra contrastando la paga del pecado, que es la muerte, con el don de Dios, que es la vida eterna en Cristo Jesús, nuestro Señor.Fuentes: el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org