Romanos 4
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Abraham réttlættist fyrir trú
1Abraham var forfaðir Gyðingaþjóðarinnar. Hvernig kemur nú þetta að frelsast fyrir trú, heim og saman við það sem við vitum um hann? 2Leit Guð á hann sem saklausan og réttlátan mann vegna góðverka hans? Ef svo hefði verið þá hefði Abraham haft ástæðu til að hrósa sér. En frammi fyrir Guði hafði hann alls ekkert til að hrósa sér af, 3en hins vegar segir í Gamla testamentinu: „Abraham trúði Guði,“ og það er ástæða þess að Guð strikaði yfir syndir hans og úrskurðaði hann réttlátan.
4En ávann Abraham sér ekki rétt til að komast til himna með öllum sínum góðu verkum? Nei, því að hjálpræðið er alltaf óverðskulduð gjöf. Ef einhver gæti unnið sér inn fyrir því með góðverkum, þá væri það ekki lengur ókeypis! Það er gefið þeim sem ekki hafa unnið fyrir því. Guð segir beinlínis: „Syndarinn er sýknaður í mínum augum, ef hann treystir því að Kristur frelsi hann frá dómi mínum yfir syndinni.“
Davíð þekkti sömu sannindi
6Davíð konungur ræddi um þetta og lýsti gæfu hins óverðuga syndara sem Guð hefur úrskurðað saklausan. 7Hann sagði: „Sæll er sá sem fær syndir sínar fyrirgefnar og afmáðar. 8Mikil er gæfa þess manns sem Guð sýknar.“
Abraham réttlættist áður en hann lét umskerast
9Nú spyr ég: Er þessi blessun einungis handa þeim sem trúa á Krist og halda samtímis lög Gyðinga, eða er hún einnig ætluð þeim sem ekki halda lög Gyðinga, en treysta einungis á Krist? Hvernig var það með Abraham? Við tölum um að hann hafi hlotið þessa blessun vegna trúar sinnar, en var það vegna hennar einnar? Var það kannski líka vegna þess að hann fór eftir gyðinglegum siðum?
10Til þess að fá svar við þessari spurningu verðum við fyrst að svara annarri: Hvenær veitti Guð Abraham blessunina? Það var áður en hann varð Gyðingur, það er að segja áður en hann tók hina gyðinglegu vígslu sem kallast umskurn.
11Það var ekki fyrr en eftir að Guð hafði lofað að blessa hann, vegna trúar hans, að hann var umskorinn. Umskurnin var tákn þess að Abraham átti þá þegar trú og að Guð hafði tekið hann að sér og lýst því yfir að í sínum augum væri hann góður og réttlátur. Samkvæmt þessu er Abraham hinn andlegi faðir þeirra sem trúa og frelsast án þess að halda sig við lögin. Af þessu sjáum við að Guð réttlætir þá sem trúa, enda þótt þeir haldi ekki þessar reglur. 12Abraham er einnig andlegur faðir hinna umskornu – Gyðinganna – og með því að athuga líf hans geta þeir séð að það er ekki þessi siðvenja – umskurnin – sem frelsar þá, heldur trúin. Eingöngu hennar vegna hlaut Abraham miskunn Guðs áður en hann var umskorinn.
Fyrirheitið gefið fyrir trú
13Ljóst er því að loforð Guðs um að hann ætlaði að gefa Abraham og afkomendum hans alla jörðina, var ekki gefið vegna þess að Abraham hlýddi lögum Guðs, heldur hins, að hann treysti Guði og því að hann stæði við heit sín. 14Ef þið haldið því ennþá fram að blessun Guðs sé ætluð þeim einum sem halda lögin, þá segið þið þar með að loforð Guðs til þeirra sem trúa séu marklaus og að trúin sé heimska. 15Sannleikurinn er hins vegar sá að ef við ætlum að ná blessun Guðs og hjálpræði með því að halda lög hans, þá köllum við að lokum reiði hans yfir okkur, því að okkur mun aldrei takast að halda þau. Eina leiðin til að komast hjá því að brjóta lög er sú að hafa engin lög!
16Blessun Guðs veitist okkur ókeypis fyrir trúna, sem gjöf. Við erum þess fullviss að okkur veitist hún, ef við trúum eins og Abraham, hvort sem við erum Gyðingar eða ekki, því að Abraham er faðir okkar allra að því er trúna varðar. 17Þetta á Gamla testamentið við þegar það segir að Guð hafi gert Abraham að föður margra þjóða. Guð vill taka á móti öllum sem treysta honum eins og Abraham gerði, hverrar þjóðar sem þeir eru. Loforðið sem hann fékk var frá sjálfum Guði, honum sem reisir hina dauðu og segir fyrir um atburði framtíðarinnar af nákvæmni eins og um liðinn tíma sé að ræða.
18Þegar Guð sagði Abraham að hann mundi gefa honum son sem eignast mundi marga afkomendur og verða faðir mikillar þjóðar, þá trúði Abraham Guði, jafnvel þótt slíkt loforð virtist algjör fásinna. 19Abraham var ekki áhyggjufullur þótt bæði hann, sem var á hundraðasta aldursári og Sara sem var níræð, væru komin úr barneign, því að hann treysti orðum Guðs óhikað.
20Abraham efaðist aldrei. Hann trúði Guði. Trú hans styrktist og hann þakkaði Guði fyrir þetta loforð löngu áður en það rættist. 21Hann var sannfærður um að Guði reyndist auðvelt að efna allt sem hann hefði lofað. 22Vegna trúar Abrahams fyrirgaf Guð honum syndir hans og sýknaði hann.
23Þessi mikilvæga yfirlýsing – að hann væri tekinn gildur vegna trúar sinnar og þar með viðurkenndur réttlátur – var ekki aðeins Abraham til góðs, 24heldur okkur líka. Þetta er okkur trygging þess að Guð vilji taka okkur að sér á sama hátt og Abraham, það er að segja þegar við trúum loforðum Guðs, hans sem reisti Jesú upp frá dauðum. 25Jesús dó fyrir syndir okkar og reis síðan upp til að sætta okkur við Guð og gefa okkur réttlæti hans.
¿Sabías que…?
La fe de Abraham acreditada como justicia
- El Diccionario Bíblico de Easton (1897) explica el nombre Abraham como "padre de una multitud". Este capítulo cita la promesa "Te he hecho padre de muchas naciones" y lo llama padre de todos los que creen, estén circuncidados o no.Fuentes: Abraham · el propio texto bíblico
- Este capítulo subraya que la fe de Abraham le fue acreditada como justicia antes de ser circuncidado, y no después. La circuncisión se describe como señal y sello de esa justicia, así que él es padre tanto de los creyentes incircuncisos como de los circuncidados que siguen la misma fe.Fuentes: el propio texto bíblico
- El Diccionario Bíblico de Easton (1897) explica el nombre Sara como "princesa" y dice que se lo dieron cuando se anunció que ella sería la madre del hijo prometido. Este capítulo recuerda a Abraham, de unos cien años, creyendo la promesa de Dios aunque el vientre de Sara estaba sin vida.Fuentes: Sarah · el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org