Nations Bible

Romanos 2

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

Réttlátur dómur Guðs

1„Ja, hérna,“ segir þú ef til vill, „hvers konar úrþvætti ertu eiginlega að tala um?“ En sjáðu til! Þú ert ekkert betri! Þegar þið lýsið vanþóknun ykkar á þessu fólki og segið að það eigi skilið hegningu, þá eruð þið að tala um ykkur sjálf, því að þið gerið sjálf það sama. 2Við vitum að Guð mun dæma sérhvern þann sem slíkt gerir, því að hann er réttlátur. 3Haldið þið að Guð dæmi suma sem þannig lifa og refsi þeim, en geri síðan enga athugasemd við ykkur þegar þið gerið það sama? 4Sjáið þið ekki hve mikla þolinmæði hann hefur sýnt ykkur? Eða er ykkur ef til vill alveg sama? Skiljið þið ekki að ástæða þess að hann hefur ekki refsað ykkur, er sú að hann gefur ykkur tækifæri til að snúa baki við syndinni? Góðsemi hans ætti að leiða ykkur til iðrunar.

5Þrátt fyrir það viljið þið ekki hlusta og þar með kallið þið yfir ykkur hræðilega hegningu, því þið eruð þrjósk og viljið ekki snúa ykkur frá syndinni. Dagur reiðinnar mun renna upp og þá mun Guð dæma allan heiminn af réttvísi. 6Hann mun gjalda sérhverjum eins og hann á skilið samkvæmt verkum sínum: 7Þeim sem af þrautseigju gera Guðs vilja, mun hann gefa eilíft líf, það er að segja þeim sem leita ósýnilegrar dýrðar, heiðurs og ódauðleika. 8Þeim hins vegar, sem berjast gegn sannleika Guðs og ganga á vegi illskunnar, mun hann refsa hræðilega – hann mun úthella reiði sinni yfir þá. 9Menn munu uppskera sorg og þjáningar haldi þeir áfram í syndinni, 10en hlýði þeir Guði, mun þeim hlotnast dýrð, heiður og friður Guðs. Þetta á bæði við um Gyðinga og heiðingja, 11því Guð fer ekki í manngreinarálit.

12Guð mun refsa fyrir synd, hvar sem hún finnst. Hann mun refsa heiðingjunum þegar þeir syndga, jafnvel þótt þeir hafi aldrei þekkt hin skráðu lög Guðs, því að innra með sér þekkja þeir muninn á réttu og röngu. Lög Guðs eru skráð í vitund þeirra. Stundum dæmir samviskan þá og stundum afsakar hún þá. En Guð mun einnig refsa Gyðingum. Hann mun refsa þeim fyrir syndir þeirra, því að þeir eiga lög hans skráð í bók en hlýða þeim þó ekki. Þeir vita hvað er rangt, en breyta gegn betri vitund. Þegar öllu er á botninn hvolft er hjálpræðið ekki þeirra sem þekkja mun á réttu og röngu, heldur hinna sem gera það sem rétt er. 16Sá dagur mun vissulega koma, er Jesús Kristur mun að boði Guðs dæma líferni sérhvers manns og líka dýpstu hugsanir hans og viðhorf. Allt er þetta hluti hinnar miklu fyrirætlunar Guðs, sem ég boða.

Gyðingar jafn sekir og heiðingjar

17Gyðingar, þið haldið að allt sé á hreinu milli ykkar og Guðs vegna þess að þið eruð Gyðingar og vegna þess að hann gaf ykkur lög sín. Þið gortið af því að vera í sérstöku uppáhaldi hjá Guði! 18Ekki neita ég því að þið þekkið vilja hans; þið þekkið mun á réttu og röngu og hafið vit á að velja hið rétta, því að ykkur hafa verið kennd lög Guðs frá blautu barnsbeini. 19Þið eruð svo vissir um leiðina til Guðs að þið gætuð jafnvel bent blindum manni á hana. Þið álítið ykkur vera leiðarljós sem leiðbeina þeim til Guðs, sem villst hafa í myrkrinu. 20Þið teljið ykkur geta leiðbeint hinum lítilmótlegu og frætt börnin um verk Guðs, því að þið þekkið lög hans, vísdóm og sannleika.

21Þið fræðið aðra um lög hans, en hvers vegna farið þið ekki sjálfir eftir þeim? Þið segið fólki að rangt sé að stela – en stelið þið ekki sjálfir? 22Þið segið að rangt sé að drýgja hór, en hvað með ykkur? Þið segið: „Tilbiðjið ekki skurðgoðin,“ en svo gerið þið peningana að guði ykkar.

23Þið eruð ákaflega stoltir af því að þekkja lög Guðs en síðan lítilsvirðið þið Guð með því að brjóta þau. 24Ekki undrar mig þótt Gamla testamentið segi að heimurinn tali illa um Guð ykkar vegna.

25Það er kostur fyrir ykkur að vera Gyðingar ef þið hlýðið lögum Guðs, en ef ekki, þá eruð þið engu betur settir en heiðingjarnir. 26Mun Guð ekki veita heiðingjunum alla þá blessun sem hann ætlaði Gyðingunum, ef þeir hlýða lögum hans? 27Staðreyndin er sú að betur mun fara fyrir heiðingjunum en ykkur, Gyðingum, sem þekkið Guð og eigið loforð hans, því að þið hlýðið þeim ekki.

Umskurnin gagnslaus

28Þið eruð ekki sannir Gyðingar fyrir það eitt að foreldrar ykkar voru Gyðingar eða vegna þess að þið hlutuð hina gyðinglegu vígslu, umskurnina.

29Nei, sá einn er sannur Gyðingur sem hefur rétta afstöðu til Guðs. Guð sækist ekki eftir þeim sem skera í líkama sinn samkvæmt gyðinglegri venju, heldur þeim sem hafa breytt hugarfari sínu og endurnýjað samband sitt við Guð. Hver sem þannig tekur upp nýja lífsstefnu, hlýtur blessun Guðs, jafnvel þótt hann láti sér fátt um finnast.

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

Juicio sin favoritismo

  • Romanos 2 advierte que quien juzga a otros mientras hace las mismas cosas se condena a sí mismo, porque el juicio de Dios se basa en la verdad. El capítulo dice que Dios no muestra favoritismo: habrá tribulación y angustia para todo ser humano que hace el mal, y gloria, honor y paz para todo el que hace el bien, primero para el judío y luego para el griego.Fuentes: el propio texto bíblico
  • El capítulo distingue a quienes pecan sin la ley de quienes pecan bajo la ley: los primeros también perecerán sin la ley, y los segundos serán juzgados por la ley. Dice que no son los oidores de la ley los justos ante Dios, sino los que la practican. Los gentiles que no tienen la ley, pero por naturaleza hacen lo que ella exige, son una ley para sí mismos y muestran que la obra de la ley está escrita en sus corazones, mientras su conciencia da testimonio y sus pensamientos los acusan o los defienden.Fuentes: el propio texto bíblico
  • Hablando a quien se llama judío, confía en la ley y está convencido de que es guía y maestro, el capítulo pregunta si se enseña a sí mismo: si roba, comete adulterio o saquea templos mientras condena esos actos. La circuncisión tiene valor si se observa la ley, pero si se quebranta la ley, la circuncisión se ha vuelto incircuncisión. El hombre es judío interiormente, y la circuncisión es asunto del corazón, por el Espíritu, no por el código escrito; su alabanza no viene de los hombres, sino de Dios.Fuentes: el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.