Nations Bible

Apocalipsis 18

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

Borgin volduga fellur

1Eftir þetta sá ég annan engil koma niður af himni. Hann hafði mikið vald og dýrð hans varpaði ljóma á jörðina.

2Hann kallaði hárri röddu: „Babýlon hin mikla er fallin, hún er fallin! Hún er orðin bæli illra anda, samastaður djöfla og alls þess sem illt er. 3Ástæðan er sú að hún gaf öllum þjóðum að drekka sitt hræðilega saurlifnaðarvín. Konungar jarðarinnar nutu blíðu hennar og kaupsýslumenn um allan heim græddu á eyðslusemi hennar.“

4Nú heyrði ég aðra rödd kalla frá himni: „Gangið út úr henni, fólk mitt, og takið ekki þátt í syndum hennar, annars mun ykkur verða refsað ásamt henni. 5Syndir hennar hafa hlaðist upp allt til himins og Guð er reiðubúinn að dæma hana fyrir glæpi hennar. 6Gjaldið henni í sömu mynt og hún galt ykkur, jafnvel enn ríkulegar – gjaldið henni tvöfalt fyrir öll ódæðisverk hennar. Hún leiddi bölvun yfir marga, gefið henni því tvöfaldan skammt. 7Hún var hrokafull og lifði í munaði, mælið henni nú sem því nemur af kvölum og sorg. Hún sagði í hroka sínum: „Ég er drottningin. Ég sit í hásætinu. Ég er ekki vesæl ekkja – nei, ógæfan forðast mig!“ 8Vegna þessara orða munu sorg og dauði koma yfir hana á sama degi og hún mun eyðast í eldi. Vald Drottins er mikið og hann er dómari hennar.“

9Leiðtogar heimsins, sem þátt tóku í siðleysi hennar og nutu blíðu hennar, munu fyllast angist þegar þeir sjá hana brenna og reykinn stíga upp af ösku hennar. 10Þeir munu standa langt frá, skjálfandi af ótta og hrópa: „Æ, þú Babýlon, borgin mikla! Dómur þinn kom eins og þruma úr heiðskíru lofti.“

11Kaupmenn jarðarinnar gráta og kveina yfir henni, því nú finnst enginn til að kaupa vörur þeirra framar. 12Hún var þeirra besti viðskiptavinur. Hún keypti af þeim gull, silfur, gimsteina, perlur, dýran vefnað, purpura, silki og skarlat og alls konar ilmvið, fílabein og dýrmætan útskorinn við, eir, járn og marmara. 13Þeir seldu henni einnig krydd, ilmefni og reykelsi, smyrsl, vín, olífuolíu, fínmalað korn, hveiti, nautgripi, sauðfé, hesta, vagna og þræla – jafnvel mannssálir.

14„Nú er allt þetta góss, sem þú sóttist eftir, orðið að engu!“ hrópa þeir. „Framvegis munt þú ekki augum líta allan þennan dýrindismunað og allt þetta skraut sem þú sóttist eftir, því að það er farið veg allrar veraldar.“

15Kaupmennirnir, sem auðguðust af viðskiptum sínum við hana, munu standa langt frá, skelfingu lostnir, því að þeir óttast afkomu sína í framtíðinni. Þeir munu gráta og kveina og segja: 16„Æ, æ, borgin mikla. Þú varst eins og fögur kona sem klæddist dýrum purpura og skarlatslitu líni, hlaðin skartgripum úr gulli, gimsteinum og dýrum perlum. 17Á einni svipstundu urðu öll þín miklu auðæfi að engu!“

Eigendur kaupskipa, skipstjórar þeirra og áhafnir, munu horfa úr fjarlægð á reykinn stíga til himins 18og segja með grátstafinn í kverkunum: „Engin borg í öllum heiminum jafnaðist á við þessa!“ 19Þeir munu kveina hátt, viti sínu fjær af sorg og segja: „Hvílík ógæfa kom yfir þessa miklu borg! Það voru auðæfi hennar sem gerðu okkur ríka, en nú er allt orðið að engu á einu augabragði.“

20En þú, himinn, þú skalt fagna örlögum hennar og sömuleiðis þið, börn Guðs, spámenn og postular. Guð hefur leitað réttar ykkar gegn henni.

21Þá tók voldugur engill upp stóran stein, líkan kvarnarsteini, fleygði honum í hafið og hrópaði: „Babýlon, borgin mikla, henni mun verða fleygt burt eins og ég fleygði þessum steini. Hún mun hverfa svo að hvorki sjáist tangur né tetur af henni upp frá því. 22Framvegis mun engin tónlist heyrast í henni, hvorki hörpusláttur né lúðurhljómur. Enginn iðnaður mun þrífast þar framar og ekkert korn verður malað.

23Nætur hennar verða dimmar, niðdimmar, og þar mun aldrei framar sjást ljós í glugga. Þar verða engar klingjandi brúðkaupsbjöllur né glaðværar raddir brúðar og brúðguma. Kaupmenn hennar voru heimskunnir og hún leiddi þjóðirnar afvega með kukli sínu og göldrum. 24Hún bar ábyrgð á dauða spámanna og margra helgra manna.“

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

La caída de la gran Babilonia

  • “Babilonia”, en este capítulo, es la forma griega del nombre Babel. Un diccionario bíblico presenta la forma semítica Babilu, que significa “la puerta de Dios”, y señala que las tablillas asirias la llaman “la ciudad de la dispersión de las tribus”. La misma entrada sitúa la ciudad a orillas del Éufrates, unas doscientas millas río arriba de la confluencia de ese río con el Tigris.Fuentes: Babylon · el propio texto bíblico
  • El capítulo muestra la riqueza de Babilonia a través de quienes se lucraban con ella. Los reyes que vivieron en el lujo con ella, y los capitanes de barco, los marineros y los demás que vivían del mar, se quedan a distancia y lloran al ver el humo del fuego que la consume. Los mercaderes se lamentan porque ya no queda quien compre su cargamento, que va del oro, la púrpura, la seda y las especias hasta el ganado, los caballos, los carros y esclavos y almas de hombres.Fuentes: el propio texto bíblico
  • La caída se presenta como súbita y definitiva. En su corazón, la ciudad dice que se sienta como reina, que no es viuda y que jamás verá pesar; el capítulo, en cambio, dice que la muerte, el pesar y el hambre llegan en un solo día y que ella es consumida por el fuego, mientras quienes observan de lejos claman que el desastre llegó en una sola hora. Un ángel poderoso arroja al mar una piedra del tamaño de una gran piedra de molino y declara que Babilonia será derribada con la misma violencia y que nunca más será vista; cesan la música, el trabajo de los artesanos, el sonido de la piedra de molino, la luz de las lámparas y las voces de la novia y del novio.Fuentes: el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Babylon · Hoy: Rome · 41.892, 12.485 · versículos 2, 10, 21

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.