Apocalipsis 14
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Nýr söngur
1Eftir þetta sá ég lamb sem stóð á Síonfjalli í Jerúsalem og með því voru 144 þúsundir, sem höfðu nafn þess og föður þess skrifuð á enni sér. 2Ég heyrði hljóð frá himnum, líkast miklum fossdrunum eða þrumum – þetta var kór sem söng við undirleik á hörpu.
3Þessi stórkostlegi kór – en hann var 144.000 raddir – söng nýjan og dásamlegan söng frammi fyrir hásæti Guðs og frammi fyrir öldungunum tuttugu og fjórum. Enginn gat sungið þennan söng nema þessar 144 þúsundir, sem keyptar höfðu verið burt af jörðinni. 4Fólk þetta er endurleyst úr hópi mannanna og það er án syndar, sem hreinar meyjar. Það fylgir lambinu hvert sem það fer. Það er sem fórn, helguð Guði og lambinu, 5og hjá því er enga lygi að finna, það er gallalaust.
6Þá sá ég engil sem flaug um himininn. Hann var með eilífan gleðiboðskap til þeirra sem búa á jörðinni. Boðskapur þessi var ætlaður öllum þjóðum og þjóðarbrotum, öllum mönnum, hvaða tungumál sem þeir töluðu.
7„Óttist Guð!“ kallaði engillinn, „tignið nafn hans! Nú er stund dómsins runnin upp og hann er dómarinn! Tilbiðjið hann, því að hann skapaði himin, jörð og haf og allt sem í því er.“
8Á eftir þessum engli kom annar engill, sem flaug um himininn og sagði: „Babýlon – borgin mikla – er fallin, hún sem tældi þjóðir heimsins til að drekka vín sem mengað var óhreinleika og synd.“
9Þá kom þriðji engillinn og hann kallaði: „Hver sá, sem tilbiður dýrið, sem reis upp úr hafinu, og líkneski þess og lætur setja merki þess á enni sitt eða hönd sína, 10verður látinn drekka reiðivín Guðs – þetta vín er í reiðibikar Guðs og það er óblandað. Þeir sem það drekka, munu kvaldir í eldi og logandi brennisteini í augsýn heilagra engla og lambsins. 11Reykurinn af kvölum þeirra mun stíga upp um alla eilífð. Þeir fá enga hvíld, hvorki dag né nótt, vegna þess að þeir tilbáðu dýrið og líkneski þess og eru merktir einkennisstöfum þess. 12Þetta ætti að hvetja börn Guðs til að gefast ekki upp, þótt þau mæti ofsóknum og erfiðleikum. Börn Guðs – hinir heilögu – eru þeir sem varðveita trúna á Jesú allt til enda og hlýða orðum hans.“
13Nú heyrði ég rödd uppi yfir mér á himnum sem sagði: „Skrifaðu niður þessar setningar: Nú geta píslarvottarnir loksins gengið inn og tekið við launum sínum. Já, segir andi Guðs, blessun Guðs er yfir þeim, því að nú fá þeir að hvílast frá öllum sínum raunum og striti. Góðverk þeirra fylgja þeim til himins!“ 14Þessi sýn hvarf, en nú sá ég hvítt ský og á því sat einhver sem líktist Jesú, mannssyninum. Á höfði bar hann kórónu úr skíra gulli og í hendinni hafði hann beitta sigð.
Uppskera jarðarinnar er fullþroskuð
15Þá kom engill út úr musterinu og kallaði til hans: „Nú skaltu bregða sigðinni, því að uppskerutíminn er kominn og uppskera jarðarinnar er fullþroskuð.“ 16Sá sem sat á skýinu brá þá sigðinni á jörðina og uppskerunni var safnað saman. 17Að þessu loknu kom annar engill út úr musterinu á himnum, hann hélt einnig á beittri sigð.
18Þá hrópaði engillinn, sem hefur vald til að eyða jörðinni í eldi, til engilsins með beittu sigðina og sagði: „Notaðu nú sigðina og skerðu vínþrúgurnar af vínviði jarðarinnar, því að þær eru fullþroska og hæfar til dóms.“ 19Engillinn brá þá sigðinni á jörðina og safnaði vínþrúgunum saman í hina miklu reiðivínpressu Guðs. 20Í vínpressu þessari, sem er fyrir utan borgina, voru vínþrúgurnar síðan kramdar. Blóðflaumurinn frá vínpressunni varð um 300 kílómetra langur og svo djúpur að hann náði upp undir beisli hestanna.

¿Sabías que…?
El Cordero en Sion, la caída de Babilonia y la cosecha
- En esta visión, el Cordero está de pie en el monte Sion con 144.000 que tienen su nombre y el nombre de su Padre escritos en la frente. El monte Sion era la colina suroriental de Jerusalén, una de las alturas sobre las que se construyó la ciudad; se elevaba 105 pies por encima del monte Moriah y estaba rodeado de valles profundos por todos lados excepto el norte. David se lo quitó a los jebuseos, construyó allí una ciudadela y un palacio, y el lugar llegó a conocerse como la ciudad de David.Fuentes: el propio texto bíblico · Mount Zion
- Un segundo ángel anuncia que ha caído la gran Babilonia, la que hizo beber a todas las naciones el vino de la pasión de su inmoralidad. Babilonia es la forma griega de Babel; el nombre semítico Babilu significa “La puerta de Dios”, y en las tablillas asirias significa “La ciudad de la dispersión de las tribus”. La ciudad estaba junto al Éufrates, unas 200 millas río arriba de la confluencia de ese río con el Tigris.Fuentes: el propio texto bíblico · Babylon
- El capítulo termina con dos cosechas. Uno semejante al Hijo del Hombre, con una corona de oro y sentado en una nube blanca, blande una hoz afilada, porque la cosecha de la tierra está madura. Otro ángel recoge las uvas maduras de la vid de la tierra y las echa en el gran lagar de la ira de Dios, pisado fuera de la ciudad.Fuentes: el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org