Nations Bible

Salmos 78

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

1Þjóð mín, hlustaðu á kenningu mína. Gefðu gaum að því sem ég hef að segja. 2Nú ætla ég að rifja upp fyrir þér liðna atburði, frásagnir sem varðveist hafa frá kynslóð til kynslóðar. 4Ég birti ykkur sannleikann, svo að þið getið sagt börnum ykkar frá dásemdarverkum Drottins, öllum þeim undrum sem hann vann. 5Lögmál sitt gaf hann Ísrael og bauð forfeðrunum að kenna það börnum sínum 6sem síðan skyldu kenna það sínum afkomendum. Þannig skyldi lögmál hans berast frá einni kynslóðinni til annarrar. 7Því hefur sérhver kynslóð getað haldið lög Guðs, treyst honum og heyrt um hans dásemdarverk. 8Ný kynslóð skyldi ekki þurfa að fara að fordæmi feðra sinna sem voru þrjóskir, óhlýðnir og ótrúir og forhertu sig gegn Guði.

9Þótt íbúar Efraím væru alvopnaðir, þá flúðu þeir þegar að orustunni kom. 10Þannig rufu þeir sáttmálann við Guð og fóru sína eigin leið. 11Þeir gleymdu máttarverkum Drottins, sem hann hafði fyrir þá gert og forfeður þeirra í Egyptalandi, 13þegar hann klauf hafið og leiddi þá yfir þurrum fótum. Vatnið stóð eins og veggur til beggja handa! 14Að degi til leiddi hann þá með skýi, en eldstólpa um nætur. 15Hann rauf gat á klettinn í eyðimörkinni. Vatnið streymdi fram og þeir svöluðu þorsta sínum.

16Já, það flæddi frá klettinum, líkast rennandi á! 17Samt héldu þeir fast við þrjósku sína og syndguðu gegn hinum hæsta Guði.

18Þeir kvörtuðu og kveinuðu og heimtuðu annað að borða en það sem Guð gaf þeim. 19Þeir ásökuðu jafnvel sjálfan Guð og sögðu: „Hann gaf okkur vatn, en hvers vegna fáum við ekki brauð eða kjöt?!“ 21Drottinn hlustaði og honum rann í skap, reiði hans upptendraðist gegn Ísrael. 22Enda treystu þeir honum ekki, né trúðu forsjá hans. 23Jafnvel þótt hann lyki upp himninum – eins og glugga! – 24og léti manna rigna niður. 25Já, þeir átu englabrauð! – og urðu mettir.

26Þá lét hann austanvind blása og stýrði vestanvindinum með krafti sínum. 27Og viti menn, fuglum rigndi af himni, – þeir voru eins og sandur á sjávarströnd! 28Af hans völdum féllu þeir til jarðar um allar tjaldbúðirnar. 29Og fólkið át nægju sína. Hann mettaði hungur þeirra. 30En varla höfðu þeir lokið matnum – fæðan var enn í munni þeirra, 31þá reiddist Drottinn þeim og lagði að velli æskumenn Ísraels. 32En þeir sáu sig ekki um hönd, en héldu áfram að syndga og vildu ekki trúa kraftaverkum Drottins. 33Þess vegna stytti hann ævi þeirra og sendi þeim miklar hörmungar. 34En þegar neyðin var stærst, tóku þeir að leita Guðs. Þeir iðruðust og snéru sér til hans. 35Þeir viðurkenndu að Guð er eini grundvöllur lífsins – að hinn hæsti Guð væri frelsari þeirra. 36En því miður fylgdu þeir honum aðeins í orði kveðnu, en ekki af heilum hug, 37hjarta þeirra var langt frá honum. Þeir stóðu ekki við orð sín.

38Samt var hann þeim miskunnsamur, fyrirgaf syndir þeirra og tortímdi þeim ekki. Margoft hélt hann aftur af reiði sinni. 39Hann minntist þess að þeir voru dauðlegir menn, eins og andblær sem kemur og fer. 40Já, oft risu þeir gegn Guði í eyðimörkinni og ollu honum vonbrigðum. 41Aftur og aftur sneru þeir við honum baki og freistuðu hans. 42Þeir gleymdu krafti hans og kærleika og hvernig hann hafði frelsað þá frá óvinum þeirra. 43Þeir gleymdu plágunum sem hann sendi Egyptum í Sóan 44þegar hann breytti fljótum þeirra í blóð, svo að enginn gat drukkið. 45Eða þegar hann fyllti landið af flugum og froskum! 46Lirfurnar spilltu uppskerunni og engispretturnar átu allt, hvort tveggja var frá honum komið. 47Hann eyddi vínviði þeirra með hagléli og mórberjatrjánum með frosti. 48Búpeningurinn hrundi niður í haganum, haglið rotaði hann og sauðirnir drápust í eldingum. 49Hann úthellti reiði sinni yfir þá, sendi þeim ógn og skelfingu. Hann leysti út sendiboða ógæfunnar – engla sem létu þá kenna á því! 50Hann gaf reiðinni lausan tauminn. Og ekki hlífði hann Egyptunum. Þeir fengu vænan skerf af plágum og sjúkdómum. 51Þá deyddi hann frumburði Egypta, efnilegan ungviðinn, sem vonirnar voru bundnar við. 52Sinn eigin lýð leiddi hann styrkri hendi gegnum eyðimörkina. 53Hann var skjól þeirra og vörn. Þeir þurftu ekkert að óttast, en hafið gleypti óvini þeirra. 54Hann greiddi för þeirra til fyrirheitna landsins, til hæðanna sem hann hafði skapað. 55Íbúum landsins stökkti hann á flótta en gaf þar ættkvíslum Ísraels erfðahlut og skjól. 56En þótt þeir nytu gæsku Guðs, risu þeir gegn hinum hæsta og fyrirlitu boðorð hans. 57Þeir sneru af leið og rufu trúnað rétt eins og feður þeirra. Eins og bogin ör misstu þeir marksins sem Guð hafði sett þeim. 58Þeir tóku aðra guði, reistu þeim ölturu og egndu Drottin á móti sér. 59Guð sá verk þeirra og reiddist – fékk viðbjóð á Ísrael. 60Hann yfirgaf helgidóm sinn í Síló, bústað sinn meðal manna. 61Örk sína lét hann falla í hendur óvinanna og vegsemd hans var óvirt af heiðingjum. 62Hann reiddist lýð sínum og lét hann falla fyrir sverði óvinanna. 63Æskumenn Ísraels fórust í eldi og ungu stúlkurnar upplifðu ekki sinn brúðkaupsdag. 64Prestunum var slátrað og ekkjur þeirra dóu áður en þær gátu harmað þá. 65Þá var sem Drottinn vaknaði af svefni, eins og hetja sem rís upp úr vímu, 66og hann gaf þeim vænt spark í bakhlutann og sendi þá burt með skömm, sömu leið og þeir komu. 67Hann hafnaði fjölskyldu Jósefs, ætt Efraíms, 68en kaus Júdaættkvísl og Síonfjall, sem hann elskar. 69Þar reisti hann musteri sitt – voldugt og traust rétt eins og himin og jörð. 70Hann kaus Davíð sem þjón sinn, tók hann frá sauðunum, 71úr smalamennskunni, til að verða leiðtogi og hirðir þjóðar sinnar. Og hann gætti hennar af öryggi og með hreinu hjarta.

¿Sabías que…?

La fidelidad de Dios y la historia de Israel

  • El encabezado atribuye este salmo a Asaf, un músico levita y vidente durante el reinado del rey David. La composición repasa siglos de la historia de Israel para instruir a las futuras generaciones a no repetir la infidelidad de sus antepasados.Fuentes: Asaph (Levite) · el propio texto bíblico
  • El salmo menciona dos veces los prodigios realizados en la región o campos de Zoán. Zoán era una antigua ciudad situada en el brazo tanítico del Nilo, en Egipto, conocida más tarde por los griegos como Tanis.Fuentes: Zoan · el propio texto bíblico
  • El poema describe una gran transición histórica desde los santuarios del norte hacia Jerusalén, señalando que Dios abandonó el tabernáculo en Silo, en Efraín, y eligió el monte Sion en Judá, llamando a David del pastoreo de ovejas para guiar a la nación.Fuentes: Shiloh · Mount Zion · David · el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Egypt · 30.129, 31.308 · versículos 12, 43, 51
  • Zoan · Hoy: Tanis · 30.977, 31.880 · versículos 12, 43
  • Ham · Hoy: Egypt · 30.129, 31.308 · versículo 51
  • Shiloh · Hoy: Khirbet Seilun · 32.056, 35.290 · versículo 60
  • Mount Zion · 31.772, 35.229 · versículo 68

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.