Nations Bible

Salmos 31

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

1Drottinn, þér einum treysti ég. Láttu ekki óvini mína yfirbuga mig. Bjargaðu mér, því að þú ert réttlátur í öllum hlutum. 3Svara mér í skyndi, nú þegar ég hrópa til þín. Beygðu þig niður að mér og hlustaðu á bæn mína. Vertu mér verndarbjarg, skjól fyrir óvinum. 4Já, þú ert klettur minn og vígi, sýndu mátt þinn og gerðu nafn þitt dýrlegt og bjargaðu mér. 5Forða fæti mínum frá snörunni sem óvinir mínir hafa lagt fyrir mig. Þú einn getur frelsað mig. 6Í þínar hendur fel ég anda minn. Þú, Guð, sem stendur við öll þín orð, þú hefur bjargað mér. Þig einan lofa ég. 7Ég hata alla þá sem dýrka fánýt falsgoð en Drottni treysti ég. 8Ég gleðst mjög, því að þú hefur miskunnað mér, þú gafst gaum að þrengingum mínum og sálarneyð. 9Þú framseldir mig ekki óvinum mínum, heldur rýmkaðir um mig á alla vegu.

10Ó, Drottinn, miskunna mér í neyð minni. Augu mín eru grátbólgin, heilsa mín brostin af sorg. 12Ár mín líða í harmi, hryggðin styttir ævi mína. Syndirnar draga úr mér allan þrótt. Hokinn stend ég – sneyptur af skömm. Óvinirnir spotta mig og nágrannarnir hæða mig. Óhug slær að vinum mínum. Þeir, jafnvel þeir, forðast að mæta mér og líta undan þegar ég geng hjá. 13Ég er gleymdur eins og líkið í gröf sinni – eins og brotið ker sem fleygt hefur verið á haug. 14Ég frétti hvað um mig var sagt – um baktal óvina minna. Ógn og skelfing var hvert sem ég leit, svik og prettir í öllum hornum!

15En Drottinn, þér treysti ég! Ég sagði: „Þú einn ert minn Guð,“ þú ákveður ævilengd mína. Frelsaðu mig Drottinn, undan þeim sem ofsækja mig. 17Láttu velþóknun þína aftur verða augljósa á þjóni þínum. Frelsa mig því að þú ert góður! 18Drottinn, láttu mig ekki verða til skammar þegar ég ákalla þig um hjálp. Láttu illmennin blygðast sín fyrir það sem þau treysta á. Já, sendu þá sneypta og þegjandi í gröfina 19lygarana sem ásaka réttláta með hroka og fyrirlitningu.

20Mikil er miskunn þín við þá sem treysta þér og vitna um trúfesti þína, þá sem elska þig og heiðra í augsýn annarra.

21Vertu ástvinum þínum skjól gegn svikráðum manna, verndaðu þá fyrir illum tungum. 22Lofaður sé Drottinn, því að hann hefur sýnt mér dásamlega náð og verndað mig gegn illu. 23Í fljótfærni sagði ég: „Drottinn hefur yfirgefið mig.“ En hann heyrði samt bæn mína og svaraði mér!

24Elskið Drottin, öll þið sem honum treystið, því að Drottinn verndar trúfasta, en refsar harðlega þeim sem hafna honum í hroka. 25Verið því glöð og hughraust, öll þið sem vonið á Drottin!

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

Refugio en Tiempos de Angustia

  • El salmista retrata un severo sufrimiento físico y aislamiento social, describiéndose como una vasija rota y olvidado como los muertos, mientras vecinos y conocidos huyen de él en las calles.Fuentes: el propio texto bíblico
  • Frente a imágenes de redes ocultas, conspiradores que traman quitarle la vida y una ciudad bajo asedio, el autor encomienda repetidamente su destino a Dios, declarando que su espíritu y sus tiempos están en Sus manos.Fuentes: el propio texto bíblico
  • La composición pasa del lamento individual y el temor de ser apartado al ánimo comunitario, concluyendo con una exhortación para que todos los fieles sean fuertes y valientes en el Señor.Fuentes: el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.