Salmos 107
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
1Þakkið Drottni, því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. 2Hafi Drottinn frelsað þig, þá segðu frá því! Segðu öðrum frá því að hann hafi frelsað þig frá óvinum þínum.
3Hann leiddi hina útlægu heim frá ystu endimörkum jarðarinnar. 4Þeir ráfuðu heimilislausir um eyðimörkina, 5hungraðir og þyrstir og að niðurlotum komnir. 6„Drottinn, hjálpaðu okkur!“ hrópuðu þeir, og hann svaraði bæn þeirra! 7Hann leiddi þá í öruggt skjól, til byggilegrar borgar. 8Ó, að þetta fólk vildi nú lofa Drottin fyrir miskunn hans og öll hans dásamlegu verk, 9því að hann svalar þyrstri sál og mettar hungraðan gæðum.
10Hverjir eru þessir sem sitja í myrkri og skugga dauðans, þjáðir af eymd og volæði? 11Þeir gerðu uppreisn gegn Drottni, fyrirlitu hann, hinn hæsta Guð. 12Þess vegna beygði hann þá með mæðu. Þeir hrösuðu og enginn gat hjálpað þeim á fætur. 13Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni og hann bjargaði þeim! 14Hann leiddi þá út úr myrkri og skugga dauðans og braut fjötra þeirra. 15Þeir skulu lofa Drottin fyrir elsku hans og öll hans miskunnarverk! 16Því að hann mölvaði hlið dýflissunnar og braut sundur rimlana.
17Sumir kölluðu yfir sig ógæfu með heimsku sinni. 18Loks bauð þeim við öllum mat. Þeir sáu ekkert framundan nema dauðann. 19Þá kölluðu þeir til Drottins í neyð sinni og hann bjargaði þeim úr angist þeirra, kom þeim á réttan veg. 20Hann sendi út orð sitt og læknaði þá, hreif þá frá dyrum dauðans. 21Ó, að menn þessir vildu lofa Drottin fyrir elsku hans og öll hans dásemdarverk! 22Þeir þakki honum heilshugar og kunngjöri verk hans með gleði.
23Og svo eru þeir sem sigla um höfin, kaupmenn sem flytja vörur milli landa. 24Einnig þeir fá að reyna máttarverk Drottins. 25Hann kallar á storminn og lætur öldurnar rísa. 26Skipin sveiflast til himins og hverfa í öldudali – öllum um borð fellst hugur í neyðinni. 27Þeir ramba og skjögra eins og drukknir menn og vita ekki sitt rjúkandi ráð. 28Þá hrópa þeir til Drottins í neyð sinni og hann frelsar þá. 29Hann kyrrir bæði sjó og vind. 30Hvílík blessun að ná höfn og njóta lognsins! 31Ó, að þessir menn vildu þakka Drottni miskunn hans og öll hans dásemdarverk. 32Þeir lofi hann upphátt í söfnuðinum og í áheyrn leiðtoga Ísraels.
33Hann þurrkar upp fljótin 34og gerir land óguðlegra að skorpinni saltsléttu. 35En hann kann líka að breyta auðninni í frjósama og vatnsríka vin. 36Þangað leiðir hann hungraða sem setjast þar að og byggja sér borgir, 37sá í akra, gróðursetja víngarða og afla afurða. 38Þannig blessar hann! Og þeir margfaldast stórum og fénaði þeirra fjölgar.
39Sumir missa allt í ofsókn, þjáningu og sorg, 40því að Guð sendir hrokafullum skömm og lætur tignarmenn ráfa um í rústum, 41en hann bjargar fátæklingum sem honum treysta, gefur þeim fjölda afkomenda og mikla hagsæld. 42Þetta sjá hinir guðhræddu og þeir gleðjast, meðan óguðlegir þegja í skömm.
43Þú sem ert vitur, hugleiddu þetta! Hugsaðu um miskunn og kærleika Drottins.

¿Sabías que…?
Acción de gracias por la liberación en la angustia
- El Salmo 107 retrata a cuatro grupos distintos en situaciones peligrosas: viajeros perdidos en desiertos sin agua, prisioneros encerrados en oscuras mazmorras, personas afligidas por enfermedades graves y comerciantes marineros atrapados en una violenta tempestad. En cada crisis, los necesitados claman por ayuda y son librados.Fuentes: el propio texto bíblico
- El salmo utiliza un estribillo poético estructurado que se repite en cada uno de los relatos. Cada liberación concluye con un llamado idéntico a dar gracias por la misericordia y las maravillas del Señor hacia la humanidad.Fuentes: el propio texto bíblico
- La parte final describe giros drásticos en la naturaleza y en la sociedad. Tierras fértiles se convierten en desiertos y tierras secas en manantiales de agua, al tiempo que los nobles opresores son humillados y los necesitados son restaurados.Fuentes: el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org