Marcos 15
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Dómur og líflát
1Snemma morguns kom hæstiréttur saman til að ákveða næsta skref í málinu. Í hæstarétti sátu æðstu prestarnir, öldungar og fræðimenn þjóðarinnar. Niðurstaðan varð sú að þeir ákváðu að senda Jesú í fylgd vopnaðra varðmanna til Pílatusar, rómverska landstjórans.
2„Ertu konungur Gyðinga?“ spurði Pílatus Jesú. „Já,“ svaraði Jesús, „það er rétt eins og þú orðar það.“
3Æðstu prestarnir báru nú margar sakir á Jesú. „Af hverju segirðu ekki neitt?“ spurði Pílatus Jesú. „Hvað um allar þessar ákærur?“ 5En Jesús þagði, Pílatusi til mikillar furðu. 6Það var venja að náða einn fanga á páskunum – einhvern sem fólkið kom sér saman um. 7Um þetta leyti var fangi, Barrabas að nafni, í haldi. Hann hafði ásamt öðrum verið dæmdur fyrir morð í uppreisnartilraun.
8Nú kom hópur manna til Pílatusar og bað hann að náða einn fanga á hátíðinni eins og venja var. 9„Hvernig væri að láta ykkur fá „konung Gyðinga“?“ spurði Pílatus. „Er það hann sem þið viljið fá lausan?“ 10(Þetta sagði hann því honum var orðið ljóst að réttarhöldin höfðu verið sviðsett af æðstu prestunum, þar eð þeir öfunduðu Jesú vegna vinsælda hans.)
11En þegar hér var komið sögu, höfðu æðstu prestarnir æst múginn til að krefjast Barrabasar í stað Jesú.
12„Ef ég sleppi Barrabasi,“ sagði Pílatus, „hvað á ég þá að gera við þennan mann, sem þið kallið konung ykkar?“
13„Krossfestu hann!“ hrópuðu þeir.
14„Hvers vegna?“ spurði Pílatus ákveðinn. „Hvað hefur hann gert rangt?“
Þá öskraði múgurinn enn hærra: „Krossfestu hann!“ 15Þá lét Pílatus Barrabas lausan af því að hann óttaðist uppþot og vildi geðjast fólkinu. Síðan gaf hann skipun um að Jesús skyldi húðstrýktur og sendur til krossfestingar.
16Rómversku hermennirnir fóru með Jesú inn í landsstjórahöllina og kölluðu saman alla varðsveitina. Þeir færðu hann í purpuralita skikkju og fléttuðu kórónu úr þyrnum og settu hana á höfuð honum. 18Síðan heilsuðu þeir honum á hermannavísu og æptu: „Lengi lifi konungur Gyðinga!“ 19Svo börðu þeir hann í höfuðið með priki, hræktu á hann og féllu á kné og þóttust veita honum lotningu.
20Þegar þeir voru orðnir leiðir á leik sínum, færðu þeir hann úr purpuraskikkjunni, klæddu hann aftur í eigin föt og fóru með hann til krossfestingar. 21Símon frá Kýrene varð á vegi þeirra, á leið ofan úr sveit. Hann var neyddur til að bera kross Jesú. (Símon var faðir Alexanders og Rúfusar.)
22Þeir fóru nú með Jesú á stað sem heitir Golgata. (Golgata þýðir hauskúpa.) 23Þar var Jesú boðið beiskt vín, en hann vildi það ekki. 24Eftir það krossfestu þeir hann og vörpuðu hlutkesti um föt hans.
25Krossfestingin átti sér stað um níuleytið að morgni.
26Á krossinn var fest áletrun þar sem afbrot Jesú var gefið til kynna: „Konungur Gyðinga“.
27Tveir ræningjar voru einnig krossfestir þennan sama morgun og stóðu krossar þeirra sinn hvorum megin við kross Jesú. 28Þar með rættust orð Gamla testamentisins sem þannig hljóða: „Hann var talinn með illræðismönnum“.
29Fólk sendi honum háðsglósur um leið og það gekk framhjá og hristi höfuðið af vandlætingu. „Hæ! Sjá þig núna!“ æpti það. „Já, þú getur áreiðanlega rifið musterið og byggt það aftur á þrem dögum! Fyrst þú ert svona mikill maður, bjargaðu þá sjálfum þér og stígðu niður af krossinum!“
31Æðstu prestarnir, sem einnig voru þarna nærstaddir ásamt öðrum trúarleiðtogum, hæddu hann og sögðu: „Hann var nógu iðinn við að „frelsa“ aðra, en sjálfum sér getur hann ekki bjargað!“
32„Kristur!“ hrópuðu þeir til hans, „konungur Ísraels! Stígðu nú niður af krossinum og þá skulum við trúa á þig!“
Ræningjarnir, sem áttu að deyja með honum, tóku einnig í sama streng og formæltu honum.
33Um hádegi varð dimmt um allt landið og hélst myrkrið allt til klukkan þrjú síðdegis.
34Þá kallaði Jesús hárri röddu: „Elí, Elí, lama sabaktaní!“ (Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?)
35Sumir þeirra, sem þarna stóðu, héldu að hann væri að kalla á Elía spámann. 36Þá hljóp einn þeirra eftir svampi, fyllti hann af ediki, rétti Jesú á langri stöng og sagði: „Bíðum við, sjáum hvort Elía kemur og tekur hann niður af krossinum.“
37En Jesús kallaði aftur hárri röddu og gaf upp andann.
38Þá rifnaði fortjald musterisins í tvennt, ofan frá og niður úr.
39Þegar rómverski liðsforinginn, sem stóð við kross Jesú, sá hvernig hann gaf upp andann, hrópaði hann: „Þessi maður hefur áreiðanlega verið sonur Guðs.“
40Hópur kvenna stóð álengdar og fylgdist með öllu sem gerðist. Þeirra á meðal voru María Magdalena, María (móðir Jakobs yngri og Jóse) og Salóme. 41Þær höfðu, auk margra annarra kvenna, fylgt honum og þjónað meðan hann var norður í Galíleu og nú höfðu þær komið með honum til Jerúsalem.
42Atburðir þessir áttu sér stað daginn fyrir helgidaginn. Síðdegis þennan sama dag herti Jósef frá Arímaþeu upp hugann og fór til Pílatusar og bað um líkama Jesú. Jósef þessi var virtur meðlimur hæstaréttar og trúaður maður (sem sjálfur vænti komu guðsríkisins). 44En Pílatus trúði ekki að Jesús væri þá þegar dáinn og lét því kalla á liðsforingjann, sem sá um aftökuna, og spurði hann. 45Liðsforinginn staðfesti að Jesús væri dáinn og gaf þá Pílatus Jósef leyfi til að taka líkið.
46Jósef keypti langan léreftsdúk, tók líkama Jesú niður af krossinum og vafði hann í dúkinn. Síðan lagði hann líkið í gröf sem höggvin hafði verið í klett og velti steini fyrir dyrnar. 47(María Magdalena og María móðir Jóse fylgdust með þegar Jesús var lagður í gröfina.)
¿Sabías que…?
Juicio, crucifixión y sepultura
- Según el Easton's Bible Dictionary (1897), Poncio Pilato fue procurador romano de Judea del año 26 al 36 d. C., con sede en Cesarea, aunque a menudo subía a Jerusalén. En la fiesta era su costumbre soltar a un preso elegido por el pueblo. Barrabás, nombre que significa “hijo de Abba” o “hijo de un padre”, era un ladrón notorio, preso con rebeldes que habían cometido un asesinato durante una insurrección, y la multitud exigió que lo soltaran a él en lugar de Jesús.Fuentes: Pontius Pilate · Barabbas · el propio texto bíblico
- Llevaron a Jesús a un lugar llamado Gólgota, que Marcos explica como el Lugar de la Calavera. El nombre representa en letras griegas la palabra aramea Gulgaltha, el hebreo gulgoleth, que significa “calavera”, y es el mismo lugar conocido como Calvario. Era un pequeño montículo redondeado como una calavera desnuda, un sitio bien conocido fuera de la puerta y cerca de la ciudad.Fuentes: Golgotha · el propio texto bíblico
- A la hora novena, Jesús clamó: “Eloi, Eloi, lema sabachthani?”, que Marcos explica como “Dios mío, Dios mío, ¿por qué me has desamparado?”. Algunos que estaban cerca pensaron que llamaba a Elías, el profeta tisbita, y alguien sugirió que esperaran para ver si Elías venía a bajarlo.Fuentes: el propio texto bíblico · Elijah
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Cyrene · 32.821, 21.851 · versículo 21
- Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 41
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 41
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org