Marcos 10
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Jesús svarar spurningum
1Eftir þetta fór Jesús frá Kapernaum og kom til Júdeu og byggðanna austan Jórdanar. Fólkið streymdi til hans eins og áður og hann kenndi því.
2Nokkrir farísear komu þá til hans og spurðu: „Leyfir þú hjónaskilnað?“ Þeir ætluðu að snúa á hann með þessari spurningu.
3Jesús svaraði með annarri spurningu: „Hvað sagði Móse um slíkt?“
4Þeir svöruðu: „Hann sagði að það væri ekkert við það að athuga. Það eina, sem maðurinn þyrfti að gera, væri að afhenda konu sinni skilnaðarbréf. Það væri allt og sumt.“
5„Ég skal segja ykkur hvers vegna hann sagði þetta,“ sagði Jesús. „Það var tilslökun vegna illsku ykkar, 6því þannig hafði Guð ekki hugsað sér það. Í upphafi skapaði hann karl og konu og hann ætlaði þeim að lifa saman alla ævi í hjónabandinu. Karlmaðurinn á því að yfirgefa föður og móður, 8og búa með eiginkonu sinni, svo að þau verði ekki lengur tvö heldur eitt. 9Það sem Guð hefur sameinað, má enginn maður sundur skilja.“
10Þegar hann síðar var orðinn einn með lærisveinum sínum í húsinu, tóku þeir upp þráðinn á ný.
11Þá sagði Jesús: „Sá sem skilur við konu sína og kvænist annarri, drýgir hór gegn henni. 12Og skilji kona við mann sinn og giftist öðrum, drýgir hún hór.“
13Sumir komu með börnin sín til Jesús og báðu hann að blessa þau. Lærisveinarnir stugguðu þeim þá frá og sögðu að ekki mætti ónáða hann. 14Þegar Jesús sá þetta, sárnaði honum, og hann sagði við lærisveinana: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því slíkra er guðsríki. 15Ég legg á það áherslu að sá, sem ekki vill koma til Guðs eins og lítið barn, mun aldrei komast inn í ríki hans.“ 16Síðan tók hann börnin í fang sér, lagði hendur yfir þau og blessaði.
17Jesús var í þann veginn að leggja upp í ferð, þegar maður nokkur kom hlaupandi til hans, kraup og spurði. „Góði meistari, hvað verð ég að gera til að eignast eilíft líf?“
18„Hvers vegna kallar þú mig góðan?“ spurði Jesús. „Enginn er góður nema einn og það er Guð. 19Þú þekkir boðorðin: Þú skalt ekki morð fremja, ekki drýgja hór, ekki stela, ekki ljúga, ekki svíkja og heiðra skaltu föður þinn og móður.“
20„Meistari,“ svaraði maðurinn, „ég hef hlýtt þessum boðorðum allt frá barnæsku.“
21Jesú fór að þykja vænt um þennan mann; hann leit á hann og sagði: „Eitt vantar þig samt: Seldu allt sem þú átt og gefðu fátækum peningana – þá munt þú eiga auðæfi á himnum. Komdu síðan og fylgdu mér.“
22Þá varð maðurinn niðurlútur og fór burt, dapur í bragði, því hann var mjög ríkur.
23Jesús horfði á eftir honum þegar hann gekk burt, síðan sneri hann sér að lærisveinunum og sagði: „Það er erfitt fyrir ríka menn að komast inn í guðsríki.“
24Lærisveinarnir urðu undrandi! Jesús sagði því aftur: „Börnin góð, það er erfitt fyrir þá, sem treysta auðæfunum, að komast inn í guðsríki. 25Auðveldara er fyrir úlfalda að fara gegnum nálarauga, en ríkan mann að komast inn í guðsríki.“
26Nú urðu lærisveinarnir öldungis forviða! „Hver getur þá orðið hólpinn?“ spurðu þeir. 27Jesús horfði fast á þá og sagði: „Án Guðs er það ómögulegt, en Guði er enginn hlutur um megn.“
28Þá tók Pétur að telja upp allt sem hann og lærisveinarnir hefðu yfirgefið og sagði síðan: „Við höfum yfirgefið allt og fylgt þér…“
29Jesús svaraði: „Ég fullvissa ykkur um að hver sá sem yfirgefur allt – heimili, bræður, systur, móður, föður, börn eða eignir – af kærleika til mín og til að geta flutt öðrum gleðiboðskapinn, mun fá sín laun. 30Honum verður launað hundraðfalt! Heimili, bræður, systur, mæður, börn og land – og ofsóknir. Allt þetta mun hann fá á jörðu og auk þess eilíft líf í hinum komandi heimi. 31Þá mun lítið verða úr mörgum sem nú telja sig mikla, en margir sem nú eru fyrirlitnir, munu þar hljóta virðingu.“
Jesús segir fyrir um dauða sinn
32Nú lá leiðin til Jerúsalem. Jesús gekk hratt á undan lærisveinunum, sem fylgdu honum undrandi og kvíðnir.
Jesús fór með þá afsíðis og tók enn að lýsa fyrir þeim því sem biði hans í Jerúsalem.
33„Þegar þangað kemur mun ég, Kristur, verða handtekinn og leiddur fyrir æðstu prestana og leiðtoga þjóðarinnar. Þeir munu dæma mig til dauða og selja mig í hendur Rómverjanna, svo þeir geti tekið mig af lífi. 34Fyrst munu þeir hæðast að mér og hrækja á mig, síðan húðstrýkja, og því næst lífláta mig. Þrem dögum síðar mun ég rísa upp frá dauðum.“
35Nú komu Jakob og Jóhannes, synir Sebedeusar, til hans og sögðu við hann í hálfum hljóðum: „Meistari, okkur langar að biðja þig um nokkuð.“
36„Hvað er það?“ spurði hann.
37„Okkur langar að sitja næst þér í konungsríki þínu, annar hægra megin, hinn vinstra megin,“ svöruðu þeir.
38„Þið vitið ekki um hvað þið eruð að biðja!“ sagði Jesús. „Getið þið drukkið þann sorgarbikar sem ég verð að drekka? Eða skírst þeirri þjáningaskírn sem ég verð að skírast?“
39„Já, já, það getum við,“ svöruðu þeir. Þá sagði Jesús: „Já, þið munuð vissulega fá að drekka þennan bikar minn og skírast þessari skírn, 40en ég hef ekki leyfi til að láta ykkur eftir hásætin sem næst mér eru og það hefur reyndar þegar verið ákveðið hverjir þau skuli hljóta.“
41Þegar hinir lærisveinarnir komust að því hvers Jakob og Jóhannes höfðu spurt, urðu þeir mjög gramir. 42Jesús kallaði þá til sín og sagði: „Þið vitið að þeir sem teljast ráða yfir þjóðunum, drottna yfir þeim og láta þær kenna á valdi sínu, 43en þannig er það ekki meðal ykkar. Sá ykkar sem vill verða mikill, verður að vera þjónn hinna, 44og sá sem vill verða mestur allra, verður að vera allra þræll. 45Ég, Kristur, kom ekki hingað til að láta þjóna mér, heldur til að þjóna öðrum, og gefa líf mitt sem lausnargjald fyrir marga.“
46Þeir komu til Jeríkó. Síðar, þegar þeir voru að fara þaðan aftur, fylgdi honum mikill mannfjöldi. Við veginn sat blindur betlari, Bartímeus, sonur Tímeusar.
47Þegar Bartímeus heyrði að Jesús frá Nasaret færi þar, tók hann að hrópa og kalla: „Jesús, sonur Davíðs, miskunnaðu mér!“
48Margir skipuðu honum að þegja, en það varð til þess að hann hrópaði enn ákafar: „Sonur Davíðs, miskunnaðu mér!“
49Þegar Jesús heyrði hrópin, nam hann staðar og sagði: „Segið honum að koma.“ Þeir kölluðu því á blinda manninn og sögðu: „Þú ert heppinn! Hann sagði þér að koma.“ 50Bartímeus henti af sér yfirhöfninni, stökk á fætur og flýtti sér til Jesú.
51„Hvað viltu að ég geri fyrir þig?“ spurði Jesús. „Meistari,“ sagði blindi maðurinn, „mig langar að fá sjónina!“
52„Bæn þín er heyrð,“ sagði Jesús. „Trú þín hefur læknað þig.“ Samstundis fékk blindi maðurinn sjónina og fylgdi Jesú áleiðis.

¿Sabías que…?
Discipulado y Fe en el Camino a Jerusalén
- Mientras Jesús y Sus seguidores viajaban hacia Jerusalén pasando por Jericó, en el valle del Jordán, encontraron a Bartimeo, cuyo nombre significa hijo de Timeo. Sentado junto al camino como un mendigo ciego, aclamó repetidamente a Jesús como 'Hijo de David' antes de recobrar la vista y seguirlo por el camino.Fuentes: Jericho · Bartimaeus · Timaeus · el propio texto bíblico
- Santiago y Juan, los hijos del pescador galileo Zebedeo, le pidieron a Jesús los dos lugares de mayor honor a Su derecha y a Su izquierda. Jesús aprovechó la petición para contrastar a los gobernantes gentiles que se enseñorean de los demás con el reino de Dios, donde quien quiera ser el primero debe hacerse servidor y esclavo de todos.Fuentes: James (Son of Zebedee) · John the Apostle · Zebedee · el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Jordan · Hoy: Jordan River · 31.761, 35.558 · versículo 1
- Judea · Hoy: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículo 1
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 17, 32, 33
- Jericho · Hoy: Tell el Alayiq · 31.852, 35.436 · versículo 46
- Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 47
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org