Mateo 9
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Jesús fyrirgefur og læknar
1Jesús steig því aftur út í bátinn og þeir héldu yfir vatnið til Kapernaum, heimabæjar hans. 2Ekki var liðin löng stund er menn báru lamaðan mann til hans á dýnu. Þegar Jesús sá trú þeirra sagði hann við veika manninn: „Vertu hughraustur, vinur minn. Ég hef fyrirgefið þér syndirnar.“
3„Guðlast!“ hugsuðu fræðimenn Gyðinganna, sem þarna voru staddir. „Þessi maður heldur þó ekki að hann sé Guð?“ 4Jesús vissi hvað þeir hugsuðu og spurði því: „Hvers vegna hugsið þið illt? 5Er erfiðara að fyrirgefa syndir mannsins en að lækna hann?“ Síðan sneri hann sér að lamaða manninum og sagði: „Ég segi við þig, til þess að sanna að ég hef vald hér á jörðu til þess að fyrirgefa syndir: Stattu upp! Taktu dýnuna þína og farðu heim til þín!“
7Maðurinn spratt á fætur og flýtti sér heim! 8Ótti greip fólkið þegar það sá kraftaverkið gerast þannig fyrir augum sér, og það lofaði Guð fyrir að hafa gefið manni slíkt vald.
Matteus skattheimtumaður
9Jesús lagði nú af stað niður veginn og sá þá Matteus, skattheimtumann, sitja hjá skattstofunni. „Komdu og vertu lærisveinn minn,“ sagði Jesús við hann. Matteus stóð þegar á fætur og fylgdi honum.
10Síðar voru Jesús og lærisveinar hans saman í boði (heima hjá Matteusi). Meðal gestanna voru margir sem höfðu illt orð á sér, svo sem alræmdir svindlarar.
11Nú var faríseunum nóg boðið og þeir spurðu lærisveinana: „Hvers vegna umgengst meistari ykkar slíka menn?“ 12Jesús varð fyrir svörum og sagði: „Vegna þess að heilbrigðir þurfa ekki læknishjálp, heldur hinir sjúku!“ 13Síðan bætti hann við: „Farið og reynið að skilja þetta biblíuvers: „Það eru ekki fórnir ykkar eða gjafir sem ég þrái – heldur að þið sýnið miskunnsemi.“ Ég kom til að leiða synduga menn til Guðs, en ekki réttláta.“
Spurt um föstu
14Dag einn komu lærisveinar Jóhannesar skírara til Jesú og spurðu: „Hvers vegna fasta lærisveinar þínir ekki? Það gerum við og farísearnir líka.“ 15„Haldið þið að vinir brúðgumans séu hryggir og fastandi meðan hann er hjá þeim?“ spurði Jesús. „Að því kemur að ég verð tekinn frá þeim, og þá fá þeir nægan tíma til að fasta.
16Hver haldið þið að bæti gamla flík með efni sem á eftir að hlaupa? Bótin mundi rifna frá og gatið verða enn þá stærra en áður. 17Og hver notar gamla vínbelgi undir nýtt vín? Gömlu belgirnir láta undan þrýstingnum og springa, vínið fer allt niður og belgirnir eyðileggjast. Nei, við notum nýja belgi undir nýtt vín og þá varðveitist hvort tveggja.“
Stúlka rís upp og kona læknast
18Rétt í þessu bar að forstöðumann samkomuhússins. Hann kraup að fótum Jesú og sagði: „Litla dóttir mín er nýdáin, en þú getur kallað hana aftur til lífsins ef þú vilt koma og snerta hana.“
19Meðan Jesús og lærisveinar hans voru á leið heim til forstöðumannsins, 20læddist kona sem þjáðst hafði af blæðingum í tólf ár, að baki honum og snerti fald yfirhafnar hans. 21Hún hugsaði: „Ef ég aðeins get snert hann, þá mun ég læknast!“ 22Jesús sneri sér við og sagði við hana: „Dóttir, vertu ekki kvíðin! Trú þín hefur læknað þig!“ Frá þeirri stundu var hún heilbrigð.
23Þegar Jesús gekk inn í hús forstöðumannsins og sá alla í uppnámi og heyrði útfarartónlistina, 24sagði hann: „Út með allt þetta fólk! – Litla stúlkan er ekki dáin, hún sefur.“
Þá hló fólkið og gerði gys að orðum hans. 25Loksins tókst þó að koma fólkinu út. Jesús gekk að rúmi litlu stúlkunnar og tók í hönd hennar. Við það reis hún upp og varð heilbrigð á sömu stundu! 26Fréttir af þessu stórkostlega kraftaverki bárust um allt héraðið.
Tveir blindir fá sýn
27Tveir blindir menn eltu Jesú þegar hann yfirgaf hús forstöðumannsins og hrópuðu: „Sonur Davíðs konungs! Vertu okkur miskunnsamur!“ 28Þeir fóru alla leið inn í húsið þar sem hann dvaldist. Jesús spurði þá: „Trúið þið að ég geti gefið ykkur sjónina?“ „Já, herra“, svöruðu þeir, „við trúum því.“
29Þá snerti hann augu þeirra og sagði: „Verði ykkur að trú ykkar.“ 30Á sömu stundu fengu þeir sjónina! Jesús bannaði þeim stranglega að segja frá þessu, 31en eigi að síður báru þeir söguna um allan bæinn.
32Þegar Jesús var að fara þaðan mætti hann manni sem var mállaus vegna þess að illur andi var í honum. 33Jesús rak illa andann út og þá talaði mállausi maðurinn. Fólkið varð forviða og hrópaði: „Aldrei höfum við séð neitt þessu líkt!“
34En farísearnir sögðu: „Hann getur rekið illu andana út af því að hann er sjálfur með illan anda. Sjálfur Satan, konungur illu andanna, er í honum!“
Verkamenn kallaðir til starfa
35Jesús ferðaðist nú til allra bæja og þorpa á þessum slóðum. 36Hann kenndi í samkomuhúsum og flutti gleðiboðskapinn um guðsríkið. Hvar sem hann kom læknaði hann fólk af hvers konar sjúkdómum. Hann kenndi í brjósti um mannfjöldann sem til hans kom, því fólkið sá enga lausn á vanda sínum. Það var eins og hjörð án hirðis. 37Jesús sagði þá við lærisveina sína: „Uppskeran er mikil en verkamennirnir fáir. 38Biðjið því hann, sem ræður uppskerunni, að senda fleiri verkamenn út á akrana.“

¿Sabías que…?
Misericordia, curación y vino nuevo
- Mateo, hijo de Alfeo, era publicano, es decir, recaudador de impuestos, en Cafarnaúm. Jesús, al subir desde la orilla del lago, pasó por el puesto de impuestos donde Mateo estaba sentado y le dijo: “Sígueme”. Antes se lo conocía como Leví; ese mismo día ofreció un gran banquete, descrito como una despedida, a Jesús, a los discípulos y, probablemente, a muchos de sus antiguos compañeros.Fuentes: Matthew · el propio texto bíblico
- Quienes preguntan por qué ellos y los fariseos ayunan tan a menudo, mientras los discípulos de Jesús no ayunan, son discípulos de Juan el Bautista. A Juan se lo llama el precursor; era de linaje sacerdotal, su padre Zacarías sacerdote del turno de Abías y su madre Elisabet una de las hijas de Aarón.Fuentes: John the Baptist · el propio texto bíblico
- Una cronología sitúa la curación del paralítico, el llamado de Mateo, la pregunta sobre el ayuno y la parábola de los odres en el año 28 d. C.Fuentes: Healing the Man with Palsy · Jesus Calls Matthew · Fasting Question · Parable of the Winseskins
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Sea of Galilee · 32.819, 35.590 · versículo 1
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org