Nations Bible

Mateo 14

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

Jóhannes skírari hálshöggvinn

1Þegar Heródes konungur frétti um Jesú, 2sagði hann við menn sína: „Þessi Jesús hlýtur að vera Jóhannes skírari, risinn upp frá dauðum, 3fyrst hann gerir öll þessi kraftaverk.“ Heródes hélt Jóhannesi hlekkjuðum í fangelsi að kröfu Heródíasar, konu Filippusar bróður síns, 4en Jóhannes hafði ávítað Heródes fyrir að taka hana frá honum og kvænast henni sjálfur. 5Heródes hefði látið taka Jóhannes af lífi fyrir löngu, ef hann hefði ekki óttast uppþot, því almenningur trúði að Jóhannes væri spámaður. 6Á afmælisdegi Heródesar dansaði dóttir Heródíasar fyrir hann og líkaði honum það svo vel 7að hann hét að gefa henni hvað sem hún vildi að launum. 8Að ósk móður sinnar bað stúlkan um höfuð Jóhannesar á fati. 9Konungurinn varð hryggur, en hann vildi ekki ganga á bak orða sinna í áheyrn gestanna og gaf því skipun um að þetta skyldi gert. 10Jóhannes var hálshöggvinn í fangelsinu, 11og stúlkunni fært höfuð hans á fati. Hún afhenti síðan móður sinni það. 12Lærisveinar Jóhannesar sóttu líkið og greftruðu, sögðu síðan Jesú frá atburðinum. 13Þegar Jesús fékk fréttirnar hélt hann, á bátnum, á óbyggðan stað til þess að geta verið einn. Þegar fólkið sá hvert hann fór, streymdi það þangað landleiðina úr þorpunum.

Jesús mettar fimm þúsundir

14Þegar Jesús steig á land beið hans mikill mannfjöldi. Hann vorkenndi fólkinu og læknaði þá sem sjúkir voru. 15Um kvöldið komu lærisveinarnir til hans og sögðu: „Það er löngu kominn kvöldverðartími, en hér í óbyggðinni er engan mat að fá. Sendu fólkið burt, svo að það geti farið til þorpanna og keypt sér mat.“ 16„Það er óþarfi,“ svaraði Jesús, „þið skuluð gefa því að borða!“ 17„Ha, við!“ hrópuðu þeir. „Við eigum aðeins fimm brauð og tvo fiska.“

18„Komið með það hingað,“ sagði Jesús, 19og því næst sagði hann fólkinu að setjast niður í grasið. Hann tók brauðin fimm og fiskana, horfði til himins og þakkaði Guði fyrir matinn. Þegar hann hafði brotið brauðin í sundur, rétti hann lærisveinunum þau og þeir skiptu þeim meðal fólksins. 20Allir urðu mettir! Eftir á fylltu þeir tólf körfur með brauðmolum sem af gengu! 21(Um 5.000 karlmenn voru þarna þennan dag, auk kvenna og barna.) 22Strax að þessu loknu sagði Jesús lærisveinunum að fara um borð í bátinn og sigla yfir vatnið, á meðan ætlaði hann að koma fólkinu frá sér.

Jesús gengur á vatninu

23Þegar fólkið var farið, fór hann upp á fjallið til að biðjast fyrir. Nóttin skall á og lærisveinarnir áttu í erfiðleikum úti á miðju vatninu. Það hafði hvesst og þeir áttu fullt í fangi með að verja bátinn áföllum. 25Um fjögurleytið kom Jesús til þeirra gangandi á vatninu! 26Þeir æptu af skelfingu, því þeir héldu að þetta væri vofa. 27En þá kallaði Jesús til þeirra og sagði: „Verið óhræddir, þetta er ég!“ 28Þá hrópaði Pétur til hans og sagði: „Herra, ef þetta ert þú, leyfðu mér þá að koma til þín.“ 29„Já, gerðu það. Komdu!“ svaraði Jesús. Pétur steig þá yfir borðstokkinn og gekk á vatninu í átt til Jesú. 30En þegar Pétur sá öldurótið varð hann skelkaður og tók að sökkva. „Jesús, bjargaðu mér!“ hrópaði hann. 31Jesús rétti honum samstundis höndina og dró hann upp. „Þú hefur litla trú,“ sagði Jesús. „Af hverju efaðist þú?“ 32Veðrið lægði um leið og þeir stigu í bátinn. 33Hinir sem í bátnum voru sögðu þá fullir ótta og lotningar: „Þú ert sannarlega sonur Guðs!“

Margir snertu hann og læknuðust

34Þegar þeir komu að landi í Genesaret, 35fréttist jafnskjótt um allan bæinn að þeir væru komnir. Fólk fór um allt og hvatti aðra til að fara með sjúklinga til hans. 36Þeir sem veikir voru báðu hann að leyfa sér að snerta, þó ekki væri nema faldinn á yfirhöfn hans, og allir sem það gerðu læknuðust.

¿Sabías que…?

La muerte de Juan y el mar de Galilea

  • El tetrarca Herodes es Herodes Antipas, hijo de Herodes con Malthace. Herodías, hija de Aristóbulo y Berenice, dejó a su esposo, Herodes Felipe I, hermano de Antipas, y se casó con Antipas; el Easton's Bible Dictionary (1897) también identifica a Felipe como padre de Salomé. Juan dijo que el matrimonio era ilícito, y Antipas lo encarceló y después lo hizo decapitar, probablemente en el castillo de Macheronte, según ese relato.Fuentes: el propio texto bíblico · Herod Antipas · Herodias · Philip
  • Una cronología fecha la decapitación de Juan, la alimentación de los cinco mil y a Jesús caminando sobre el mar, todas en el año 29 d.C. Después de que los discípulos de Juan sepultaron el cuerpo y avisaron a Jesús, él se retiró en barca a un lugar solitario, pero las multitudes lo siguieron a pie desde los pueblos.Fuentes: John Beheaded · Feeding of Five Thousand · Jesus Walks on Water · el propio texto bíblico
  • Después de cruzar el mar, desembarcaron en Genesaret, ciudad de Neftalí en la orilla occidental del lago al que dio su nombre. La ciudad se llamaba Cineret y, más tarde, Genezar y Genesaret; no queda rastro de ella, y una cronología fecha las curaciones allí en el año 29 d.C. Su llanura, notable por su fertilidad y hermosura, ha sido llamada el Paraíso de Galilea y hoy se llama el-Ghuweir.Fuentes: Gennesaret · Healing in Gennesaret · el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 1
  • Gennesaret · Hoy: El Ghuweir · 32.861, 35.507 · versículo 34

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.