Lucas 4
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Satan freistar Jesú
1Jesús fylltist heilögum anda, sem leiddi hann frá ánni Jórdan og út í auðnir Júdeu. 2Þar var hann í fjörutíu daga matarlaus og hungrið svarf að. 3Þá freistaði Satan hans og sagði: „Ef þú ert sonur Guðs, þá segðu þessum steini að verða að brauði.“
4Jesús svaraði: „Biblían segir: „Maðurinn lifir ekki bara á brauði.“ “
5Þá tók Satan hann með sér og sýndi honum á augabragði öll ríki heimsins 6og sagði: „Öll þessi ríki og dýrð þeirra er mín eign og ég get ráðstafað þeim að vild. Þetta skal allt verða þitt, ef þú fellur fram og tilbiður mig.“
8En Jesús svaraði: „Í Biblíunni stendur: „Drottin Guð þinn átt þú að tilbiðja og þjóna honum einum.“ “
9Þá fór Satan með hann upp til Jerúsalem og alla leið upp á þakbrún musterisins og sagði: „Ef þú ert sonur Guðs, stökktu þá fram af! Segir Biblían ekki að Guð muni senda engla sína til að gæta þín og vernda þig, svo þú merjist ekki á stéttinni fyrir neðan?“
12Jesús svaraði: „Þetta stendur einnig í Biblíunni: „Ekki skaltu freista Drottins Guðs þíns.“ “
13Þegar djöfullinn hafði lokið freistingum sínum, fór hann burt og yfirgaf Jesú að sinni.
Jesús hefur starf sitt
14Eftir þetta sneri Jesús aftur til Galíleu, fylltur heilögum anda, og orðrómurinn um hann barst út um öll héruðin þar í grennd. 15Hann predikaði í samkomuhúsunum og allir lofuðu hann.
16Hann kom á æskustöðvar sínar í Nasaret og fór á helgideginum í samkomuhúsið, eins og hann var vanur, og stóð upp til að lesa úr Biblíunni. 17Honum var fengin bók Jesaja spámanns. Hann opnaði hana og las:
18„Andi Drottins er yfir mér. Hann hefur valið mig til að flytja fátækum gleðilegan boðskap. Hann hefur sent mig til að boða fjötruðum frelsi, gefa blindum sýn, leysa hina undirokuðu frá áþján og boða að Guð sé fús að hjálpa öllum sem til hans koma.“
20Hann lokaði bókinni og rétti þjóninum. Síðan settist hann niður. Allir störðu á hann fullir eftirvæntingar. 21Hann tók til máls og sagði: „Þessi ritningargrein, sem þið hafið nú heyrt, hefur ræst í dag.“
22Fólkið lét ánægju sína í ljós og undraðist þau ljúfu orð sem komu af vörum hans. „Hver er skýringin á þessu,“ spurðu menn, „er þetta ekki sonur Jósefs?“
23Þá sagði Jesús: „Þið minnið mig sjálfsagt á máltækið: „Læknir, læknaðu sjálfan þig“ – og eigið þá við: „Af hverju gerirðu ekki svipuð kraftaverk hér í heimabæ þínum og þú hefur gert í Kapernaum?“ 24Ég segi ykkur satt: Enginn spámaður er viðurkenndur í heimabæ sínum! 25Þið munið til dæmis að spámaðurinn Elía gerði kraftaverk til að hjálpa ekkjunni í Sarepta, en hún var útlendingur og bjó í landi Sídonar. Það hafði ekkert rignt í þrjú og hálft ár og mikið hungur var í öllu landinu. Margar Gyðingaekkjur þörfnuðust hjálpar, en þó var Elía ekki sendur til neinnar þeirra. 27Og munið þið eftir spámanninum Elísa? Hann læknaði Naaman frá Sýrlandi, en ekki þá mörgu Gyðinga sem voru holdsveikir og þörfnuðust hjálpar.“
28Við þessi orð Jesú urðu menn æfir af reiði. 29Þeir stukku úr sætum sínum, þyrptust að honum og hröktu hann út á brún fjallsins, sem bærinn stóð á, með það í huga að hrinda honum fram af þverhnípinu. 30En Jesús gekk út úr þvögunni og yfirgaf þá.
31Eftir þetta fór hann til Kapernaum, bæjar í Galíleu, og þar predikaði hann í samkomuhúsinu á hverjum helgidegi. 32Hér fór á sömu leið, fólkið undraðist það sem hann sagði, því máttur fylgdi orðum hans.
33Eitt sinn, er Jesús var að kenna í samkomuhúsinu, fór maður, sem hafði illan anda, að hrópa að honum: 34„Farðu burt! Við viljum ekkert með þig hafa, Jesús frá Nasaret. Þú ert kominn til að granda okkur. Ég veit að þú ert hinn heilagi sonur Guðs.“
35Þá greip Jesús fram í fyrir illa andanum og sagði skipandi: „Hafðu hljótt um þig og farðu út.“ Andinn fleygði þá manninum í gólfið í augsýn allra og yfirgaf hann án þess að valda honum tjóni.
36Fólkið varð forviða og spurði: „Hvaða vald býr í orðum þessa manns, fyrst illu andarnir hlýða honum!“ 37Fréttin um þetta breiddist eins og eldur í sinu um allt héraðið.
38Þegar Jesús yfirgaf samkomuhúsið fór hann heim til Símonar. Þá var tengdamóðir Símonar þar rúmliggjandi með háan hita. Allir viðstaddir báðu Jesú að lækna hana. 39Jesús gekk að rúmstokknum og hastaði á sótthitann, sem þá hvarf skyndilega, og hún fór á fætur og matreiddi handa þeim.
40Við sólarlag þetta kvöld komu þorpsbúar með sjúklinga til Jesú. Það skipti ekki máli hver sjúkdómurinn var, þegar Jesús snerti þá læknuðust þeir. 41Sumir höfðu illa anda sem fóru út að skipun hans. Andar þessir æptu: „Þú ert sonur Guðs!“ Þeir vissu að hann var Kristur, en hann þaggaði niður í þeim og leyfði þeim ekki að tala.
42Við sólarupprás morguninn eftir, lagði hann leið sína á óbyggðan stað. Mannfjöldinn leitaði hans um allt og fann hann loks. Fólkið bað hann að fara ekki burt frá Kapernaum, 43en því svaraði hann: „Ég verð líka að fara á fleiri staði og flytja þar gleðifréttirnar um að Guð sé nálægur með vald sitt og hjálp, því til þess var ég sendur.“ 44Síðan hélt hann áfram ferð sinni og predikaði í samkomuhúsunum í Júdeu.
¿Sabías que…?
La Tentación y el Inicio del Ministerio de Jesús
- En la sinagoga de Nazaret, la ciudad donde se había criado, a Jesús se le entregó el rollo del profeta Isaías. Tras desenrollarlo y leer el pasaje sobre dar buenas nuevas a los pobres y proclamar libertad a los cautivos, lo enrolló de nuevo, se lo devolvió al asistente y se sentó a enseñar.Fuentes: el propio texto bíblico · Isaiah · Nazareth
- Para señalar la falta de fe de sus oyentes locales, Jesús recordó cómo Elías fue enviado a socorrer a una viuda en Sarepta de Sidón y no a viudas de Israel, y cómo Eliseo sanó a Naamán el sirio en lugar de a leprosos israelitas.Fuentes: el propio texto bíblico · Elijah · Elisha · Naaman
- Tras ser rechazado y casi arrojado desde la cima de la colina de Nazaret, Jesús trasladó su actividad a Capernaúm, en Galilea, donde enseñaba con autoridad en día de reposo, expulsaba demonios y sanó a la suegra de Simón de una intensa fiebre.Fuentes: el propio texto bíblico · Capernaum · Galilee
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Jordan · Hoy: Jordan River · 31.761, 35.558 · versículo 1
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 9
- Galilee · 32.760, 35.527 · versículos 14, 31
- Nazareth · 32.702, 35.298 · versículos 16, 34
- Sidon · Hoy: Sandikli archaeological site in Sidon · 33.561, 35.372 · versículo 26
- Zarephath · Hoy: Sarepta · 33.464, 35.295 · versículo 26
- Judea · Hoy: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículo 44
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org