Lucas 23
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Jesús sakfelldur og dæmdur
1Síðan lagði allt ráðið af stað með Jesú til Pílatusar landstjóra. 2Er þangað kom, byrjuðu þeir strax að ákæra hann: „Þessi maður var að leiða þjóðina afvega. Hann segir að enginn eigi að borga skatta til rómversku yfirvaldanna og sjálfur segist hann vera Kristur konungurinn.“
3„Ert þú Kristur – konungur þeirra?“ spurði Pílatus.
„Já,“ svaraði Jesús, „það er eins og þú segir.“
4Þá sneri Pílatus sér að æðstu prestunum og mannfjöldanum og sagði: „Ég finn alls enga sök hjá honum.“
5Þá æstust þeir um allan helming og sögðu: „Hann æsir til andófs gegn yfirvöldunum hvar sem hann fer, um allt skattlandið, allt frá Galíleu þar sem hann byrjaði og hingað til Jerúsalem.“
6„Er hann frá Galíleu?“ spurði Pílatus.
7Þegar þeir játuðu því, sagði hann þeim að fara með Jesú til Heródesar konungs, því að Galílea væri lögsagnarumdæmi hans. Og þannig vildi til að Heródes var staddur í Jerúsalem um þetta leyti. 8Heródesi þótti gaman að fá tækifæri til að sjá Jesú, því að hann hafði heyrt margt um hann og vonaðist til að sjá hann gera kraftaverk.
9Hann spurði Jesú fjölmargra spurninga, en fékk ekkert svar. 10Á meðan stóðu æðstu prestarnir og hinir trúarleiðtogarnir þar hjá og ákærðu hann harðlega.
11Síðan tóku Heródes og hermenn hans að hæða Jesú og spotta. Þeir klæddu hann í konunglega skikkju og sendu hann síðan aftur til Pílatusar. 12Þennan dag urðu Heródes og Pílatus vinir – en áður höfðu þeir verið svarnir óvinir.
13Nú kallaði Pílatus saman æðstu prestana og leiðtoga Gyðinganna, ásamt fólkinu 14og kunngjörði úrskurð sinn:
„Þið komuð hingað með þennan mann og ákærðuð hann fyrir að stjórna uppreisn gegn rómversku yfirvöldunum. Ég hef rannsakað mál hans gaumgæfilega og komist að þeirri niðurstöðu að hann sé saklaus. 15Heródes er mér sammála og hann sendi hann aftur til okkar. Þessi maður hefur ekkert gert sem dauða er vert. 16Ég ætla því að láta húðstrýkja hann og sleppa honum síðan, enda er venja að náða einn fanga á páskunum.“
18Þá kvað við hávært óp frá mannþyrpingunni – allir hrópuðu sem einn maður: „Burt með hann! Krossfestu hann! En slepptu Barrabasi.“ 19(Barrabas sat í fangelsi fyrir að vekja uppþot í Jerúsalem gegn yfirvöldunum og fyrir manndráp.) 20Pílatus reyndi nú að sannfæra þá, því að hann vildi sleppa Jesú 21en þeir hrópuðu á móti: „Krossfestu hann! Krossfestu hann!“
22Enn einu sinni – í þriðja sinn – spurði Pílatus ákveðinn: „Hvers vegna? Hvaða glæp hefur hann drýgt? Ég sé enga ástæðu til að dæma hann til dauða. Ég ætla því að láta húðstrýkja hann og sleppa honum síðan.“ 23Þá heimtuðu þeir aftur að Jesús yrði krossfestur og urðu hróp þeirra svo hávær að þau yfirgnæfðu allt annað.
24Þá dæmdi Pílatus Jesú til dauða, eins og fólkið krafðist, 25en sleppti Barrabasi samkvæmt ósk þess – manninum sem sat í fangelsi fyrir óeirðir og manndráp. Síðan afhenti hann þeim Jesú, svo að þeir gætu gert við hann það sem þeir vildu.
26Þegar hópurinn var lagður af stað með Jesú til aftökustaðarins, var maður sem var að koma utan úr sveit, Símon frá Kýrene, þvingaður til að bera kross hans. 27Mikill mannfjöldi fylgdi á eftir, þar á meðal margar grátandi konur.
28Jesús sneri sér við og sagði við þær: „Jerúsalemdætur, þið skuluð ekki gráta mín vegna, heldur vegna ykkar sjálfra og barna ykkar. 29Þeir dagar munu koma er barnlausar konur verða taldar heppnar. 30Þá munu menn biðja fjöllin um að hrynja yfir sig og hæðirnar að hylja sig, 31því að ef þetta er gert við mig, hið lifandi tré, hvernig mun þá fara fyrir ykkur.“
Jesús deyr á krossi
32Ásamt Jesú voru tveir afbrotamenn leiddir til aftökustaðarins sem hét „Hauskúpa“. Þar voru þeir allir krossfestir, Jesús í miðið, en hinir tveir sinn til hvorrar handar.
34Þá sagði Jesús: „Faðir, fyrirgef þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gera.“
Hermennirnir köstuðu nú hlutkesti um föt Jesú, eina flík í senn. 35Fólkið stóð og fylgdist með, en leiðtogar þjóðarinnar gerðu gys að honum og sögðu: „Hann gat hjálpað öðrum, en nú ætti hann að hjálpa sjálfum sér og sanna með því að hann sé í raun og veru Kristur, útvalinn konungur Guðs.“
36Hermennirnir hæddu hann líka með því að rétta honum súrt vín að drekka. 37Þeir hrópuðu: „Ef þú ert konungur Gyðinga, bjargaðu þá sjálfum þér.“
38Fyrir ofan hann var neglt spjald á krossinn. Þar stóð: „Þessi er konungur Gyðinga.“ 39Annar afbrotamannanna, sem hékk við hlið hans, sendi honum háðsglósu og sagði: „Svo þú ert Kristur, er það ekki? Sannaðu það þá með því að bjarga sjálfum þér – og okkur.“
40Hinn glæpamaðurinn mótmælti þeim fyrri og sagði: „Óttastu ekki einu sinni Guð á dauðastundinni? Við höfum unnið til þessarar þungu refsingar, en þessi maður hefur ekkert rangt aðhafst.“ 42Síðan sneri hann sér að Jesú og sagði: „Jesú, minnstu mín þegar þú kemur í ríki þitt.“
43Jesús svaraði: „Ég lofa þér því, að í dag skaltu vera með mér í Paradís.“
44Nú var komið hádegi, en þá varð dimmt um allt landið fram til klukkan þrjú, 45því að sólin myrkvaðist. Þá gerðist það að fortjaldið í musterinu rifnaði í tvennt.
46Þá hrópaði Jesús: „Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn,“ og að svo mæltu dó hann.
47Þegar rómverski herforinginn, sem stjórnaði aftökunum, sá hvað gerðist, varð hann hræddur og sagði: „Ég er viss um að þessi maður hefur verið saklaus.“
48Þegar fólkið, sem kom til að fylgjast með krossfestingunni, sá að Jesús var dáinn, fór það heim harmi slegið. 49Meðan þetta gerðist, stóðu vinir Jesú og konurnar, sem fylgt höfðu honum frá Galíleu, álengdar og fylgdust með.
Jesús lagður í gröf
50Maður nokkur frá Arímaþeu, Jósef að nafni, kunnur ráðherra, fór til Pílatusar og bað um líkama Jesú. Hann var guðrækinn maður, sem vænti komu Krists og hafði verið ósammála hinum um hvað gera skyldi við Jesú. 53Hann tók því líkama Jesú niður af krossinum og vafði í léreftsdúk og lagði síðan í nýja gröf sem höggvin hafði verið í klett. 54Þetta gerðist síðdegis á föstudegi, aðfangadegi páska, á sama tíma og fólk var að undirbúa hátíðina.
55Konurnar sáu er líkaminn var tekinn niður og fylgdust með þegar hann var lagður í gröfina. 56Síðan fóru þær heim og tilreiddu kryddjurtir og smyrsl til að smyrja hann með.
Í þann mund er þær höfðu lokið verki sínu, gekk hátíðin í garð. Þær héldu kyrru fyrir það kvöld og næsta dag, eins og krafist var í lögunum.

¿Sabías que…?
Juicio, cruz y sepultura
- Poncio Pilato, identificado por el Diccionario Bíblico de Easton (1897) como el sexto procurador romano de Judea (26–36 d.C.), tenía su sede en Cesarea, pero subía con frecuencia a Jerusalén. Las acusaciones del consejo en este capítulo son políticas: que Jesús subvertía a la nación, prohibía el pago de impuestos al César y se proclamaba el Cristo, un rey.Fuentes: Pontius Pilate · el propio texto bíblico
- Cuando Pilato supo que Jesús era galileo y estaba bajo la jurisdicción de Herodes, lo envió a Herodes Antipas, hijo de Herodes con Maltace, que entonces estaba en Jerusalén. Herodes hacía tiempo que quería ver a Jesús y esperaba un milagro, pero Jesús no respondió a sus preguntas. Después de que Herodes y sus soldados se burlaron de Jesús y lo vistieron con un manto fino, lo enviaron de vuelta, y aquel día Herodes y Pilato, que habían sido enemigos, se hicieron amigos.Fuentes: Herod Antipas · el propio texto bíblico
- El lugar de la crucifixión se llama la Calavera; la forma latina Calvaria traducía el griego Kranion, que vertía el hebreo Gulgoleth. Probablemente recibió ese nombre por su forma, una elevación baja, redondeada y desnuda, algo parecida a un cráneo humano, y la Escritura en ningún lugar lo llama colina. La crucifixión tuvo lugar fuera de los muros de la ciudad y cerca de un camino público.Fuentes: Skull · el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Galilee · 32.760, 35.527 · versículos 5, 6, 7, 49, 55
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 5, 7, 19, 28
- Judea · Hoy: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículos 5, 51
- Cyrene · 32.821, 21.851 · versículo 26
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org